Fréttablaðið - 22.06.2007, Blaðsíða 22
[Hlutabréf]
Fjárfestingafélagið Gnúpur,
félag þeirra Kristins Björnsson-
ar, Magnúsar Kristinssonar og
Þórðar Más Jóhannessonar, fór
yfir fimm prósenta hlut í Kaup-
þingi í gær. Þetta gerist skömmu
eftir að félagið jók hlut sinn í FL
Group upp fyrir tuttugu prósent.
Miðað við síðasta gengi Kaup-
þings, 1.108 krónur á hlut, er 5,19
prósenta hlutur metinn á rúma
42,5 milljarða króna.
„Við teljum að Kaupþing verði í
lykilstöðu í frekari útrás og upp-
byggingu íslenskra fjármálafyr-
irtækja erlendis. Þeir hafa sterkt
stjórnendateymi sem hefur vakið
víða athygli. Í því viljum við fjár-
festa,“ segir Þórður Már Jóhann-
esson, forstjóri Gnúps. Ekki hefur
komið til tals að fjárfesta meira í
Kaupþingi að sögn Þórðar Más.
Þessi kaup gera Gnúp að þriðja
stærsta hluthafanum í Kaupþingi
á eftir Existu (22,8%) og óstofn-
uðu hollensku dótturfélagi Kjal-
ars hf. (9,9%).
Gnúpverjar hafa verið að auka
hlut sinn í Kaupþingi á árinu,
einkum það sem af er júní. Kaup-
in í gær námu 3.663 milljón-
um króna, um 0,45 prósentum af
heildarhlutafé Kaupþings. Um
áramótin átti félagið um 2,2 pró-
sent í bankanum.
Gnúpur er jafnframt stærsti
hluthafinn í FL Group með rúman
tuttugu prósenta hlut. Samanlagt
eru eignarhlutir félagsins í FL og
Kaupþingi metnir á 90 milljarða
króna. Gnúpur átti einnig um 1,1
prósent í Straumi-Burðarási í síð-
ustu viku.
Eignarhlutir Gnúps í FL Group og Kaupþingi eru metnir á níutíu milljarða króna.
Þórður Már Jóhannesson segir að félagið vilji fjárfesta í stjórnendum Kaupþings.
Peningaskápurinn...
Sól ehf. gekk í gær frá kaupum
á Emmessís hf., einu af þekktari
vörumerkjum landsins, frá Auð-
humlu svf., móðurfélagi Mjólkur-
samsölunnar. Samkomulag náðist
um viðskiptin seint í maí með fyr-
irvara um áreiðanleikakönnun,
sem nú er lokið. Fyrirtækjaráð-
gjöf SPRON sá um söluna en Arev
aðstoðaði kaupanda. Kaupverð er
trúnaðarmál.
Sól er tæplega þriggja ára fyr-
irtæki og framleiðir ávaxtasafa í
plastumbúðum. Fimmtán manns
vinna hjá Sól en 40 hjá Emmessís.
Snorri Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Sólar og einn stofn-
enda fyrirtækisins, tók við lykl-
unum að Emmessís í gær. Hann
segir engar breytingar fyrirhug-
aðar á rekstrinum fyrr en undir
lok árs.
„Fyrirtækin verða rekin hvort í
sínu lagi til að byrja með en fljót-
lega undir sömu kennitölu. Við
gerðum þriggja ára leigusamn-
ing við Auðhumlu um að Emmess-
ís verði á Bitruhálsi næstu þrjú
árin en stefnum að því að sameina
fyrirtækin undir eitt þak,“ segir
hann.
Emmessís í Sólina
Norska fjármálaeftirlitið hefur
veitt gagnkvæma tryggingafé-
laginu Gjensidige þriggja mán-
aða frest til þess að kaupa sig upp
í fimmtungshlut í Storebrand.
Gjensidige heldur utan um tæp
tíu prósent og er annar stærsti
hluthafinn á eftir Kaupþingi sem
er með um tuttugu prósent. Í mars
veitti fjármálaeftirlitið bæði
Kaupþingi og Gjensidige heim-
ild til að fara með fimmtungshlut
í Storebrand. Kaupþing beið ekki
boðanna og keypti um tíu prósent
í Storebrand á skömmum tíma.
Hlutabréf í Storebrand tóku
við sér við þessi tíðindi en þau
hafa lækkað að undanförnu. Það
kemur þó ekki alveg að sök í til-
viki Kaupþings sem færir eignar-
hlutinn með hlutdeildaraðferð.
Gjensidige
fær meiri tíma
Hlutabréf í Føroya Banka ruku
upp um 28,6 prósent frá útboðs-
gengi á fyrsta viðskiptadegi fé-
lagsins í kauphöllunum á Íslandi
og í Kaupmannahöfn. Útboðs-
gengið var 189 danskar krónur
á hlut, fyrstu viðskipti fóru fram
á genginu 240 en lokagengið var
243. Velta var töluverð í Kaup-
höll Íslands eða um 530 milljón-
ir króna í 241 viðskiptum.
Markaðsvirði bankans jókst
þar með um 540 milljónir danskra
króna, jafnvirði sex milljarða ís-
lenskra króna. Heildarvirði
bankans í lok viðskiptadags var
um 27,2 milljarðar króna.
Eins og komið hefur fram í
Fréttablaðinu sýndu íslenskir
fjárfestar einkavæðingunni mik-
inn áhuga en yfir sex þúsund ís-
lenskir aðilar skráðu sig fyrir
bréfum.
Føroya Banki
hækkaði um 29%
Markaðsvirði bankans jókst um sex milljarða króna.
REYKJAVÍK:
Kringlan
Bankastræti 5
Faxafen 12
KÓPAVOGUR:
Smáralind
GARÐABÆR:
Miðhraun 11
AKUREYRI:
Glerárgata 32
Setberg golffatnaður
Vindþéttur og regnheldur
Verð:
Anorak 16.500
Buxur 14.500