Fréttablaðið - 22.06.2007, Blaðsíða 48
BLS. 12 | sirkus | 22. JÚNÍ 2007
Peninga fyrir kleinuhringi
Naomi Campbell hefur komið sér í
svo mikið klúður undanfarið að greyið
stelpan fær varla vinnu. Ofurfyrirsætan
hefur þess vegna farið að ráðum Kfed
og tekið að sér að leika í auglýsingu þar
sem hún gerir grín að sjálfri sér. Það er
fyrirtækið Dunkin Donuts sem
hefur ráðið Naomi og í
auglýsingu mun hún taka eitt
af sínum frægu köstum. Það
verður forvitnilegt að sjá
hvort að þetta hafi
eitthvað að segja.
Þ að er orðið svaka trend allt í einu í Hollywood að láta allt flakka þegar það kemur að
hárgreiðslu nú orðið. Eitt sinn var
ekki hægt að láta sjá sig út á götum
Los Angeles með neitt annað en Cindy
Crawford-hár. En tímarnir hafa breyst
og nú eru allar skvísurnar með stutt
hár og bera það vel. Við erum að fíla
þetta.
SÆTAR STUTTHÆRÐAR
Falleg í fangelsinu
Paris Hilton er greinilega ekki
í neinni vinnu á meðan
fangelsisvist hennar stendur
yfir. Kathy Hilton, móðir
Parisar segir hana stara á
loftið og veggina allan
daginn. Fyrir nokkru reyndi
Paris að hengja upp myndir
af fjölskyldu sinni á veggina,
en fangelsisverðirnir gerðu
sér lítið fyrir og rifu þær allar
niður. Vinir Parisar segja hana
hinsvegar líta vel út. Hótelerfing-
inn má ekki setja neinar
snyrtivörur á sig og hafa vinir
hennar haft orð á því hve vel hún
liti út án þeirra. Æi, það er nú
gott að hún líti vel út í fangels-
inu. Vá, hvað okkur líður miklu
betur núna.
Laumast til að hittast
Nokkar myndir náðust af Jane
Pitt, móður Brads Pitt fyrir
utan hús fyrrverandi
tengdadóttur sinnar
Jennifer Aniston. Þær eru
greinilega enn mjög góðar
vinkonur. Vá, hvað þetta
hlýtur að fara í taugarnar á
Angelinu. Jane var í rúma tvo
klukkutíma hjá Jennifer. Það
hefði verið gaman að vera
fluga á vegg þegar
þessar tvær hittust.
Hvað skyldu þær
tala um? Angie,
Brad, börnin. Ó,
hvað þetta er
djúsí.
M unið þið eftir gömlu góðu dögunum þegar Angelina Jolie var ung og villt? Þegar
hún skipti um háralit einu sinni
viku, lék sér að hnífum og gerði
lítið annað en að fara í sleik við
Billy Bob Thornton.
Angelina Jolie hefur heldur betur
breyst síðan þá. Með komu Maddoz-
ar í líf leikkonunnar breyttist allt.
Angelina varð stillt og virðuleg
kona. Hún byrjaði að brosa meira
og allt við hana varð einlægara.
En Angelina mun örugglega allt-
af verða umdeild. Hún hóf ástar-
samband við giftan mann. Það
hefur án efa ekki farið framhjá
neinum. Ekki höfðu margir trúað
því að samband þeirra myndi end-
ast, en eins og staðan er í dag er
ekki ólíklegt að Bradgelina eigi
eftir að vera saman að eilífu. Brad
hefur ættleidd öll börn Angelinu
og eiga þau saman dótturina
Shiloh sem er án efa arftaki Ger-
ber-barnsins.
Angelina hefur verið afar opin-
ská um samband sitt við Brad og
lýsir honum sem einstökum manni
og föður. En nú aðeins fyrir nokkr-
um mánuðum ættleiddu þau sitt
þriðja barn. Það virðist ekkert
geta stöðvað þessi tvö og hefur
hún oft talað um það að henni
langi í sjö til 14 börn.
LEIKKONAN ANGELINA JOLIE HEFUR BREYST EFTIR ÞVÍ SEM ÁRUNUM HEFUR FJÖLGAÐ
NÝ STJARNA Á FERÐINNI Svona leit
Angelina út er hún lék í myndinni Gia
sem kom henni á kortið.
HVER MAN EKKI EFTIR
ÞESSU? Kossinn sem
sjokkeraði alla.
Angelina og bróðir
hennar James Haven.
SJÚK Í BILLY BOB Angelina Jolie og
Billy Bob Thornton slepptu ekki hvort
öðru á meðan sambandi þeirra stóð.
FYRIRMYNDARFJÖLSKYLDA Jolie-Pitt
fjölskyldan ásamt Shiloh og Zahöru. Eru
þau ekki sæt?
ROSALEGA GRÖNN
Angelina er sögð vera
um 49 kíló. Hún segist
þó ekki eiga við
átröskun að stríða
heldur hefur árið verið
erfitt fyrir hana.
Villingurinn sem
varð súpermamma
HAMINGJU-
SÖM Brad og
Angelina eru
á góðri leið
að verða nýja
gullna parið í
Hollywood.
MICHELLE
WILLIAMS
Dawson’s
Creek-skvísan
er lík Miu
Farrow í
Rosemary’s
Baby og það
fer henni vel.
VICTORIA
BECKHAM Er
miklu sætari
með stutt
hár, en hún
var orðin
þreytt á því
að vera
endalaust
með
hárlengingar.
SELMA BLAIR
Er alltaf sexí
og getur í
raun gert
hvað sem er
við hárið á
sér.
Það hlýtur þó að taka sinn toll
að vera í svona opinberu sam-
bandi, eiga fjögur börn og vera
fræg kvikmyndastjarna því mikið
hefur verið rætt í fjölmiðlum
hversu grönn Angelina er orðin
og hvort hún ætti við vandamál
að stríða en Angelina hefur komið
fram og sagt að móður missirinn
ásamt því að vera með barn á
brjósti væri um að kenna. Sam-
kvæmt fjölmiðlum vestanhafs er
Angelina aðeins 49 kíló. Þrátt
fyrir að vera afar létt er hún ótrú-
lega sterk, og heldur á tveimur af
fjórum börnum sínum eins og
ekkert sé. Ekki slæmt það.