Fréttablaðið - 22.06.2007, Síða 66
SMS
LEIKUR
Yippee-Ki-Yay, Mo...!
JOHN MCCLANE ER MÆTTUR AFTUR! ÞARF AÐ SEGJA MEIRA!
HEIMSFRUMSÝND 27. JÚNÍ UM LAND ALLT!
SENDU SMS JA DHF
Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR
UNNIÐ BÍÓMIÐA!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR,
DVD MYNDIR, TÖLVULEIKIR
OG MARGT FLEIRA!
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
9. HVER
VINNUR!
Þriðja júní sl. voru liðin 30 ár frá útkomu plötunnar Exodus með Bob
Marley & The Wailers. Exodus er að mati margra besta plata Marleys
og ein af bestu plötum sögunnar. Til að halda upp á afmælið var plat-
an nýlega gefin út í 30 ára afmælisútgáfu, eða útgáfum réttara sagt
þar sem það eru fimm mismunandi út-
gáfur í boði: Vínyll, CD, CD og DVD (með
tónleikum í Rainbow Theater í London í
júní 1977), 144 síðna harðspjaldabók (CD
fylgir) og USB-minniskubbur. Exodus er
fyrsta platan sem kemur út á því formi,
en fleiri fylgja í kjölfarið, m.a. nýja White
Stripes platan Icky Thump.
3. desember 1976 réðust 7 byssumenn
inn á heimili Bob Marley í Kingston á
Jamaíka og skutu á Marley sjálfan, eigin-
konu hans Ritu og fleiri viðstadda. Þrem-
ur dögum seinna yfirgaf Marley Jam-
aíka og dvaldi næstu 16 mánuði í útlegð í London. Það var þar í Fall Out
Shelter og Basing Street hljóðverunum sem efnið á Exodus og Kaya
sem kom út árið á eftir var tekið upp. Sú pólitíska óöld sem ríkti á Jam-
aíka var þannig kveikjan að þessu meistaraverki Bob Marley.
Lögin tíu á Exodus eru öll frábær, en frægust eru sennilega titillag-
ið, Natural Mystic, Jamming, Three Little Birds, One Love og Waiting
In Vain. Exodus var fyrsta plata Marley til að fara á topp sölulistans í
Bretlandi og hún hafði mjög mikil áhrif á tónlistarlífið þar. Þetta var í
miðri pönkbylgjunni og pönkið og reggíið rugluðu saman reitum, m.a.
hjá sveitum eins og Clash og Members.
Tímaritið Time útnefndi Exodus plötu 20. aldarinnar, en það val vakti
á sínum tíma mikla athygli. Flestir hefðu veðjað á Bítlana, Dylan eða
Beach Boys. Exodus er hinsvegar ekkert síður vel að titlinum komin
(ef maður ætlar sér á annað borð þá firru að velja plötu aldarinnar)
heldur en Abbey Road eða Pet Sounds. Þetta er fullkomin poppplata, en
hefur um leið þjóðfélagslegan undirtón og eins og öll alvöru meistara-
stykki þá hljómar hún alltaf jafn fersk; – það er hreinlega ekki hægt að
fá leið á henni.
Plata 20. aldarinnar þrítug
Tónlist hinnar goðsagna-
kenndu ofursveitar The
Traveling Wilburys er nú
loks fáanleg í fyrsta sinn
í rúman áratug. Steinþór
Helgi Arnsteinsson fór yfir
feril sveitarinnar.
Um mitt árið 1988 þurfti George
Harrison að gera lag á b-hlið smá-
skífunnar This is Love sem hafði
verið að finna á plötunni Cloud Nine
þetta sama ár. Harrison hafði unnið
mikið með Jeff Lynne, leiðtoga
ELO, um þetta leyti en þeir fengu
Tom Petty, Roy Orbinson og Bob
Dylan til að vinna með sér að lagi í
hljóðveri þess síðastnefnda í Santa
Monica í Kaliforníu. Eftir tvo daga
varð til lagið Handle With Care og
auðvitað áttuðu menn sig á því að
þar var á ferð meira og merkilegra
efni en eitthvað til þess að eyða á b-
hlið. Að frumkvæði Harrison varð
til hljómsveitin The Trembling Wil-
burys (Harrison og Lynne kölluðu
ýmis tæki í hljóðverinu Wilbury
sem var stytting á We‘ll bury them
in the mix). Lynne stakk síðan upp
á Traveling í stað Trembling sem
allir samþykktu.
Í lok árs 1988 kom síðan út plat-
an Traveling Wilburys Vol. 1. Þrátt
fyrir þessar kanónur innan borðs
héldu þeir sig við leyninöfn og köll-
uðu sig Nelson (Harrison), Otis
(Lynne), Lefty (Orbison), Charlie T.
Jr. (Petty), Lucky (Dylan).
Þessi nýstofnaða hljómsveit varð
hins vegar fyrir áfalli í desember
sama ár þegar Roy Orbinson lést
sviplega. Sveitin ákvað hins vegar
að halda áfram og var rætt um að
Del Shannon (þekktastur fyrir slag-
arann sinn Runaway frá 1961) tæki
stöðu Orbinson. Shannon framdi
hins vegar sjálfsmorð árið 1990.
Traveling Wilburys Vol. 3 leit síðan
dagsins ljós í október árið 1990 og
aftur breyttu þeir félagar nöfnum
sínum. Margar sögusagnir hafa
verið uppi um ástæður þess að Vol.
2 kom aldrei út, og segja sumir að
það hefði verið í virðingarskyni við
Orbinson en aðrir telja að um ein-
falt grín hafi verið að ræða. Hvað
sem því líður þá fékk Vol. 3 ekki
nærri eins góðar viðtökur og fyrri
platan, þó að platan hafi vissulega
selst í milljónum eintaka.
Eftir því sem leið á áratuginn
komu reglulega upp sögusagn-
ir um að ný plata væri í bígerð en
aldrei varð neitt meira úr þeim get-
spám. Plöturnar tvær voru síðan
aldrei endurútgefnar sökum rétt-
indaágreinings en réttindin voru í
höndum Harrisons. Hann lést svo
eins og margir vita árið 2001.
Petty gaf síðan út í viðtali við XFM-
útvarpsstöðina í Bretlandi að stefnt
væri að endurútgáfu platnanna og
Lynne staðfesti slíkt í viðtali við Q-
tímaritið í febrúar síðastliðnum. Í
dag hefur því langþráðum áfanga
verið náð. Sett með báðum plötum
Traveling Wilburys, auk mynddisks
sem inniheldur myndbönd sveitar-
innar og heimildamynd er nú fáan-
legt um allan heim. Plötur sveitar-
innar hafa fyrir þetta gengið kaup-
um og sölum á netinu og víðar og
verið fáanlegar frá fjögur þúsund
krónum og allt upp í rúmar tíu þús-
und krónur.
Aðdáendur geta því tekið gleði
sína á ný og hlustað á hið frábæra
byrjunarlag Vol. 3, She‘s My Baby,
skemmt sér yfir gömlu mynd-
böndunum og fengið gæsahúð yfir
Handle With Care á nýjan leik. Við-
tökurnar láta heldur ekki á sér
standa en platan fór í efsta sæti
plötusölulistans í Bretlandi og hjá
Amazon.
Rokksveitin Gavin Portland er á tónleika-
ferð um Bretland sem stendur yfir til 2. júlí.
Fyrst hitar sveitin upp fyrir Hell is for Her-
oes en eftir það heldur hún
nokkra tónleika ein og sér.
„Þetta hefur gengið
ágætlega. Þetta eru stærri
staðir en við erum vanir,
þannig að þetta er upp-
lifun fyrir okkur,“ segir
söngvarinn Kolbeinn Þór
Þorgeirsson, sem býr
í Englandi. „Við erum
þyngsta bandið í „line-up“-
inu og maður sér að sumir
eru ekki alveg að fíla það
en okkur er alveg sama. Þó svo að það væri
bara einn af þrjú hundruð sem fílar okkur þá
væri það alveg nóg því þetta fólk hefur engan
sjéns í að heyra í okkur annars.“
Gavin Portland hefur þegar spilað í Liver-
pool en Kolbeinn segir þá félaga ekkert hafa
getað skoðað sig um í borginni. „Við eigin-
lega týndumst í Liver-
pool í tvo tíma og hlupum
inn rétt fyrir „sándtékk-
ið“. Hinar hljómsveitirn-
ar eru allar með leiðar-
kerfi í bílunum sínum en
við erum bara með gömlu
góðu kortabókina,“ segir
Kolbeinn og bætir við:
„Við komum náttúrlega úr
hardcore-pönksenunni og
erum vanir harki og því að
hlutirnir séu einfaldir. Við
erum bara komnir til að spila og spjalla við
fólk og allar hugmyndir um baksviðsherbergi
og umboðsmenn eru svolítið undarlegar.“
Týndust í Liverpool