Fréttablaðið - 22.06.2007, Side 72
Átján stig skilja að FH og KR
Gunnleifur Gunnleifsson
er leikmaður sjöundu umferðar
Landsbankadeildar karla að mati
Fréttablaðsins. Hann lagði grunn
að sigri HK á KR í fyrrakvöld með
því að halda marki sínu hreinu í 2-
0 sigri sinna manna. Hann sagði
að sigurinn hafi vitanlega verið
sætur, en ekkert sætari en aðrir
sigrar.
„Mér finnst allir sigrar frábær-
ir, hvort sem það er gegn KR eða
einhverjum öðrum,“ sagði hann
en Gunnleifur er gamall leik-
maður KR. „Ég skipti yfir í KR á
sínum tíma og lærði margt gott á
mínum tíma þar. En ég HK-ingur
að upplagi og það er félagið sem
ég elska. Ég stend og fell með
HK.“
Hann segir að sigur HK-inga
hafi verið sanngjarn í þessum
leik. „Við börðumst fyrir þessum
stigum og nýttum okkar færi. Þeir
nýttu ekki sín færi. Það eru marg-
ar leiðir til að ná árangri í fótbolta
og þetta snýst ekki eingöngu um
að spila sambabolta. Við verjumst
vel og berjumst mikið. Það hefur
skilað sér vel hingað til.“
Flestir þeir sem fylgjast með
íslenskri knattspyrnu eru gáttað-
ir á stöðu KR í deildinni en liðið
er á botninum með aðeins eitt
stig. Menn spyrja sig hvað sé að
hjá KR.
„Tja, þeir eru bara ekki nógu
góðir. Mér er samt eiginlega
alveg sama hvað er að hjá þeim,“
sagði Gunnleifur og hló.
Hann er ánægður með byrjun
HK í mótinu en liðið er nú í fyrsta
sinn í efstu deild og hefur náð tíu
stigum eftir fyrstu sjö umferð-
irnar. Liðið situr í fimmta sæti
deildarinnar.
„Við erum búnir að vinna alla
okkar heimaleiki en höfum ekki
verið að standa okkur nógu vel
á útivelli. Það er eins og að við
séum ekki með það sjálfstraust
á útivöllum sem við erum með
heima. Ef við náum að stappa að-
eins í okkur stálinu í útileikjunum
erum við í góðum málum.“
Árangurinn á heimavelli er
glæsilegur, þrír sigurleikir og
markatalan er 5-1. Á útivelli
hefur HK náð einu jafntefli en
tapað fjórum leikjum. Liðið hefur
enn ekki skorað mark á útivelli en
hefur fengið átta á sig.
„Næstu þrír leikir verða allir
á Kópavogsvelli en einn af þeim
er „útileikur“ á móti Breiðabliki.
Stefnan hlýtur því að vera sett á
níu stig í þessum leikjum,“ sagði
hann.
HK var nánast undantekninga-
laust spáð falli úr deildinni í vor og
kom Gunnleifi nokkuð á óvart sú
umræða sem var um liðið.
„Oft fannst mér að fólk hlyti að
halda að við kynnum einfaldlega
ekki að sparka í bolta. Við værum
bara handknattleiksfélag. En þessi
umræða þjappaði okkur saman. Við
erum kannski ekki að fara að rúlla
upp þessu móti enda er það ekki
hálfnað og við erum alls ekkert ör-
uggir með okkar sæti í deildinni.“
Næsti leikur HK verður einmitt
gegn grönnunum í Breiðabliki á
þriðjudaginn kemur og má búast
við afar athyglisverðri rimmu.
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður HK, er leikmaður sjöundu umferðar
Landsbankadeildar karla að mati Fréttablaðsins. Hann hélt marki sínu hreinu er
liðið vann góðan sigur á botnliði KR. Hann er ánægður með frammistöðu HK.
Valur og Fram hafa lé-
legasta aðsókn áhorfenda á
heimaleiki sína það sem af er
Landsbankadeild karla. Bæði
félög spila heimaleiki sína á
Laugardalsvelli, þjóðarleikvangi
Íslands. Völlurinn tekur tíu þús-
und manns í sæti og er því nokk-
uð tómlegt um að litast á leikjum
Vals og Fram.
Ásamt þeim félögum eru
Breiðablik og HK einu liðin sem
ekki ná þúsund manns að með-
altali á leik. Þau lið spila bæði á
Kópavogsvelli en þar er verið að
byggja nýja stúku.
FH og KR fá langflesta áhorf-
endur á sína heimaleiki.
Fæstir mæta á
Laugardalsvöll
1. deildarliðið Reynir í
Sandgerði fékk Stefán Örn Arn-
arson lánaðan í einn mánuð frá
Keflavík í gær. Stefán hefur lítið
verið viðriðinn Keflavíkurlið-
ið í sumar og aldrei fengið sæti
í byrjunarliðinu. Hann kemur
til með að styrkja Reynisliðið
svo um munar en félagið berst
í neðrihluta 1. deildarinnar um
þessar mundir.
Eftir einn mánuð verður málið
endurskoðaður og ákvörðun tekin
um framhaldið.
Stefán lánaður
frá Keflavík
Hörður Sveinsson og
Hólmar Örn Rúnarsson ætla að
vera áfram hjá danska félag-
inu Silkeborg sem féll úr úrvals-
deildinni á síðasta tímabili. Hörð-
ur sagði við Fréttablaðið í gær að
sér liði vel í bænum en Silkeborg
kom saman til æfinga í gær eftir
sumarfrí.
„Okkur líður mjög vel hérna,
það er gert vel við okkur og stefn-
an er sett á að fara beint aftur
upp. Ef það gerist ekki þá mun
ég skoða mín mál,“ sagði Hörður
sem er samningsbundinn til 2009.
Hörður sagði Hólmar Örn vera
í sömu stöðu en Bjarni Ólafur Ei-
ríksson er aftur á móti kominn
aftur til Vals.
Heldur í Hörð
og Hólmar Örn
FH-ingurinn Daði Lár-
usson bætti persónulegt met sitt
þegar hann hélt marki sínu hreinu
í 51 mínútu gegn Breiðabliki á
miðvikudaginn. Daði hélt marki
sínu samtals hreinu í 437 mínút-
ur frá því Keflvíkingurinn Símun
Samuelsen skoraði hjá honum á
64. mínútu í 2. umferð og þar til
Nenad Petrovic skoraði á 51. mín-
útu í 7. umferð í vikunni.
Daði bætti metið sitt frá því í
fyrra um 10 mínútur.
Bætti metið sitt
ÞÓR HF | REYKJAVÍK : Ármúla 11 | Sími 568-1500 | AKUREYRI: Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor. is
Nú er rétti tíminn til að kaupa garðsláttuvélar
Á GÓÐU VERÐI!
4 ha Briggs & Stratton mótor
51,5 cm sláttubreidd,
5 hæðarstillingar,
Grassasfnari.
28.900,- 35.900,-
5 ha Briggs & Stratton mótor
51,5 cm sláttubreidd,
5 hæðarstillingar,
Grassasfnari.
45.900,-
6 ha Briggs & Stratton mótor
51,5 cm sláttubreidd,
5 hæðarstillingar,
Grassasfnari, drif.
3,5 ha Briggs & Stratton mótor
50 cm sláttubreidd,
5 hæðarstillingar,
21.900,-