Fréttablaðið - 04.07.2007, Blaðsíða 4
Eldur kom upp í Malbik-
unarstöðinni Höfða við Sævar-
höfða í gærmorgun klukkan tíu.
Kviknað hafði í við rætur blönd-
unarturns stöðvarinnar er neisti
hljóp í dísilolíu sem notuð er við
malbiksgerð.
„Við úðuðum olíu á vagn og það
virðist hafa komist neisti í þá olíu
og það dugði til að upp kom
eldur,“ segir Valur Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Malbik-
unarstöðvarinnar.
Allt tiltækt slökkvilið var kallað
á staðinn og tókst greiðlega að
slökkva eldinn. Lögregla lokaði
Sævarhöfða við Malarhöfða, en
þykkan og svartan reyk lagði frá
svæðinu.
„Það er talsvert tjón, rafmagns-
lagnir og ýmislegt er ónýtt,“
segir Valur. „Við erum með aðra
stöð þarna svo að við getum eitt-
hvað framleitt, en ekki eins mikið
og við hefðum annars gert.“
Nokkur hætta var á sprengingum
á svæðinu vegna olíutanka og -
leiðslna í jörðu.
Að minnsta kosti
fjórir menn af þeim átta sem hafa
verið handteknir vegna mis-
heppnuðu hryðjuverkatilræðanna
í London og Glasgow eru læknar
frá Írak, Jórdaníu og Indlandi.
Samkvæmt upplýsingum Sky-
sjónvarpsstöðvarinnar eru tveir
menn til viðbótar, sem handteknir
voru í Glasgow á sunnudag,
læknanemar á sjúkrahúsi í borg-
inni. Yfirvöld í Glasgow hafa neit-
að að staðfesta þetta. BBC gengur
lengra og heldur því fram að allir
mennirnir átta hafi unnið í breska
heilbrigðiskerfinu: sjö sem lækn-
ar eða læknanemar og einn á
rannsóknarstofu sjúkrahúss.
Á föstudag aftengdi lögreglan í
London sprengjur í tveimur bílum
sem stóðu í miðborg Lundúna og
á laugardag keyrðu tveir menn
jeppa fullan af sprengiefni á flug-
stöðvarbyggingu Glasgow-flug-
vallar. Engan sakaði i tilræðunum
annan en ökumann jeppans sem
liggur alvarlega slasaður á
sjúkrahúsi í Glasgow. Að sögn
BBC heitir hann Khalid Ahmed
og er læknir en lögreglan í Glas-
gow hefur ekki viljað staðfesta
það.
Áttundi maðurinn sem var
handtekinn heitir Muhammed
Haneef og er indverskur læknir.
Hann var tekinn höndum á
alþjóðaflugvellinum í áströlsku
borginni Brisbane á mánudags-
kvöld. Haneef var á leiðinni til
Indlands. John Howard, forsætis-
ráðherra Ástralíu, sagði að lög-
reglan væri að yfirheyra annan
lækni í landinu.
Lögreglan handtók svo tvo
menn í Blackburn á Norðvestur-
Englandi um hádegisbilið í gær á
grundvelli laga um hryðjuverka-
varnir. Mennirnir, sem vitni sögðu
að litu út fyrir að vera frá Suður-
Asíu, höfðu náð í átta stór gas-
hylki í iðnaðarhverfi í bænum.
Slík gashylki voru notuð í öllum
þremur hryðjuverkatilræðunum.
Í yfirlýsingu frá lögreglunni kom
fram að of snemmt væri að stað-
festa hvort handtaka mannanna
tengdist hinum tilræðunum þrem-
ur.
Eftir árásina á Glasgow-flug-
völl á laugardag var lýst yfir
hæsta vástigi í Bretlandi, sem
þýðir að búist er við hryjuverka-
árás hvenær sem er, og hefur lög-
reglan í Bretlandi brugðist skjótt
við í rannsókn sinni.
Gordon Brown forsætisráð-
herra tilkynnti í gær, í fyrstu
ræðu sinni á þingi eftir að hann
tók við völdum, að stofna ætti
nýtt þjóðaröryggisráð. Brown
mun sjálfur fara fyrir ráðinu sem
reglulega mun gefa út áætlun um
þjóðaröryggi þar sem sagt verður
frá mögulegum ógnum sem steðja
að Bretlandi.
Fjórir hinna hand-
teknu eru læknar
Samkvæmt upplýsingum breskra fjölmiðla eru flestir ef ekki allir þeirra átta
manna, sem eru grunaðir um aðild að misheppnuðu hryðjuverkatilræðunum í
London og Glasgow, læknar eða læknanemar og múslimar af erlendum uppruna.
Kim Jong Il,
einræðisherra Norður-Kóreu,
sagði í gær að ríkin sem vilja að
yfirvöld í landinu hætti við
kjarnorkuáætlanir sínar eigi að
standa við eigin skuldbindingar í
afvopnunarsamningnum sem
gerður var í febrúar. Kim sagði
þetta á fundi með aðstoðarutan-
ríkisráðherra Kína, Yang Jiechi, í
gær, að því er kínverskir fjöl-
miðlar greindu frá.
Í samningnum kemur fram að
Norður-Kórea eigi að loka stærsta
kjarnakljúfi sínum og fá marg-
háttaða aðstoð í staðinn. Orð
Kims koma í kjölfar þess að í
síðustu viku leystist loks deila um
fé Norður-Kóreustjórnar sem
fryst hafði verið á erlendum
bankareikningum.
Kim vill standa
við samninginn
Pókermót sem haldið
var laugardaginn 16. júní síðastlið-
inn er enn til rannsóknar hjá
lögreglu. Búið var að senda málið
til lögfræðisviðs, en rannsaka þarf
ákveðna þætti frekar áður en tekin
verður ákvörðun um ákæru, segir
Karl Vilbergsson, lögfræðingur
hjá lögreglu höfuðborgarsvæðis-
ins.
Hann segir að lögum samkvæmt
taki ríkissaksóknari ákvörðun um
það hvort gefin verði út ákæra í
málum sem þessum, og málið fari
væntanlega þangað. Líklega séu þó
um tvær vikur í það hið minnsta.
Um 150 pókerspilarar tóku þátt í
mótinu, en lögregla stöðvaði það
þegar 20 til 30 voru eftir.
Verður sent til
ríkissaksóknara
Úrvalsvísitalan hækkaði
um 1,08 prósent í 5,8 milljarða
króna viðskiptum í Kauphöllinni í
gær, sem skilaði sér í því að
vísitalan endaði í 8.408 stigum. Hún
hefur aldrei verið hærri.
Vísitalan hefur hækkað um 31,15
prósent það sem af er árs.
Mest var hækkun á gengi bréfa í
Föroya Banka, sem fór upp um 3,04
prósent. Mesta lækkunin var hins
vegar á gengi bréfa í færeyska
olíuleitarfyrirtækinu Atlantic
Petroleum en gengi bréfanna fór
niður um 1,82 prósent.
Úrvalsvísitalan
aldrei jafn há