Fréttablaðið - 04.07.2007, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 04.07.2007, Blaðsíða 17
Brynhildur Melot er átta ára gamall nemandi í Vesturbæjarskóla. Hún er í sumarfríi núna en ætlar síður en svo að sitja aðgerðalaus og er meðal annars búin að fara á sumarnámskeið hjá Kramhúsinu. Brynhildur er mjög ánægð með námskeiðið sem hún var á í Kramhúsinu og segir að margt skemmtilegt hafi verið gert á því. „Fyrst fórum við í svona minn- isleiki til þess að læra nöfnin á öllum og svo í dans og leiklist. Systir mín er að kenna afró í Kramhúsinu og við vorum líka hjá henni og síðan lærðum við að gera einhvers konar labbandi pýramída og fengum trúð í heimsókn,“ segir hún. Sumarnámskeiðin í Kramhúsinu eru vikulöng og Brynhildur var að fara á námskeið í fyrsta skipti en sennilega ekki það síðasta. „Ég gæti alveg hugsað mér að fara aftur á svona námskeið,“ segir hún ánægð. Allt á námskeiðinu var jafn skemmtilegt að sögn Brynhildar og hún getur alls ekki gert upp á milli. „Mér finnst bara mjög gaman að fara á svona nám- skeið á sumrin,“ segir hún. Brynhildur er því ekki hætt að fara á námskeið í sumar þótt hún sé búin á námskeiðinu í Kramhúsinu. Næst á dagskrá er nefnilega reiðnámskeið. „Ég hef heldur aldrei farið á reiðnámskeið áður svo ég hlakka mjög mikið til,“ segir hún. Gangandi pýramídi, afró og reiðnámskeið BORGARTÚNI 29 | 105 REYKJAVÍK | ICELAND | WWW.EXIT.IS | TEL. +354 562 2362 | FAX. +354 562 9662 // Starfsþjálfun í Evrópu Austurríki, Spánn, Frakkland, Ítalía, Malta, Þýskaland, Bretland og Írland. Ef þú ert á aldrinum 18 – 30 ára er starfsþjálfun góð leið til þess að læra tungumál, öðlast starfsreynslu og kynnast ólíkri menningu. Hægt er að sækja um Leonardo da Vinci styrk sem rennur til greiðslu á hluta kostnaðar. Smurþjónusta fyrir allar gerðir bíla Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla Komdu með bílinn til okkar! Frábær verð og góð þjónusta! Alltaf heitt á könnunni!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.