Fréttablaðið - 04.07.2007, Page 18

Fréttablaðið - 04.07.2007, Page 18
Honda Accord executive býður af sér góðan þokka og kemur fyrir sem hógvær en kraftmikil skepna. Við fyrstu kynni virkaði Honda Accord executive svolítið eins og félagsheimilið í myndinni Með allt á hreinu. Það var lítið að sjá að utan en þegar inn var komið blasti risa- stór, glansandi salur við Stuðmönn- um. Íburður Hondunnar er sam- bærilegur og það höfðaði til mín því það er alltaf ákveðinn klassi yfir því að vera ekki endilega með „blíngblíngið“, glysið og glamúr- inn útum allt að hætti olíufursta. Excecutive-útgáfan af Hondu Accord er meðal annars búin leð- ursætum og sóllúgu sem er góð blanda, sér í lagi þegar veðurblíð- an leikur við landsmenn. Á milli framsætanna er að finna mörg þægileg geymsluhólf og öruggur staður fyrir GSM-símann er undir útvarpstækinu en það er ótvíræð- ur kostur, því hver kannast ekki við það að gemsinn flýgur undir bílsætið ef maður leggur hann óvart frá sér á rangan stað? Að aka Hondu Accord var nán- ast óaðfinnanlegt. Viðnám stýris- ins hóflega eftirgefanlegt, hann er hljóðlátur og jafn snöggur upp og maður myndi búast við af bíl sem er búinn 2,4 lítra vél og 190 hest- öflum. Skriðstillirinn var alger snilld þegar út fyrir höfuðborgina var komið og mjög auðvelt að slökkva og kveikja á honum, enda stjórnkerfið í stýrinu. Mælaborð Hondunnar er með óbeinni, þrívíðri lýsingu sem skil- aði sínu án þess að trufla og er það í samræmi við áðurnefndan hóg- værðar klassa. Í nóvember í fyrra unnu tveir bílar frá Hondu (Honda Fit og Accord Hybrid) tvö efstu sætin í áreiðanleikakönnun sem gerð var á vegum CNN og almennt séð hefur þessi bíll notið mikilla vin- sælda í Evrópu og Bandaríkjun- um. Það er ekki að undra því Honda Accord er eftirgefanlegur og samviskusamur gæðingur sem lætur vel að stjórn og veldur eig- anda sínum ekki vonbrigðum. Enginn gleiðgosaháttur Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.