Fréttablaðið - 04.07.2007, Síða 24
HÚSNÆÐI
Leigusali
auglýstu frítt
Leigjandi
leitaðu frítt
Leiga.is býður
Leiguráðgjöf
Mat á leigjendum
Gerð leigusamninga
og trygginga
Leiga.is
Löggild leigumiðlun
ATVINNA
TILKYNNINGAR
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090
Auglýsing
um nýtt deiliskipulag og
breytingar á deiliskipulag-
sáætlunum í Reykjavík.
Einnig er hér birt leiðrétting á
auglýsingu sem birtist 20. júní sl.
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með
auglýstar tillögur að nýju og breyttu deiliskipulagi
í Reykjavík.
Stekkjarbrekkur, Hallsvegur suður
Tillaga að deiliskipulagi á svæði sem afmarkast
af ánni Korpu, Vesturlandsvegi og fyrirhuguðum
Hallsvegi frá Víkurvegi að Vesturlandsvegi.
Tillagan felur í sér að gert er ráð fyrir tveimur
atvinnulóðum, bráðabirgðavegi frá hringtorgi á
Vesturlandsvegi að miðsvæði vestan vegar, göngu-
og reiðstíg og fimm þúsund og fimm hundruð m²
settjörn. Einnig er tekið frá helgunarsvæði vegna
framtíðarlegu Lambhagavegar - Stekkjarbrekku
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tryggvagata 19
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir reit 1.118.3
Kvosina vegna lóðarinnar að Tryggvagötu 19.
Tillagan gerir ráð fyrir að aðkoma verði frá Naustum
á miðju húsi og er gert ráð fyrir bílageymslu á ann-
arri og þriðju hæð. Akstursbraut inni í húsinu verður
framlengd. Á fjórðu og fimmtu hæð er leyfð hækkun
á húsi í suður og verða þessar hæðir nýttar sem
skrifstofuhúsnæði. Hluti af þaki þriðju hæðar er
nýttur fyrir bílastæði
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags-
og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni
3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 4. júlí 2007
til og með 15. ágúst 2007. Einnig má sjá tillögurnar á
heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem
telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna
sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum
við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið
skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs
eigi síðar en 15. ágúst 2007.
Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir inn-
sendar athugasemdir með tölvupósti.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Sóltún 2-4.
Tillaga er auglýst á ný vegna villu í innslætti í fyrri
augl. sem birtist 20. júní sl. Einnig er hér með
upplýst að tillagan verður í kynningu frá 20. júní til
og með 15. ágúst, átta vikur samtals, samkvæmt
sérstakri bókun skipulagsráðs varðandi erindið.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Ármannsreit
við Sóltún vegna húsanna á lóðum við Sóltún 2 - 4.
Tillagan gerir ráð fyrir m.a. að á lóðinni að Sóltúni
4 megi byggja sex hæða hús, í stað fjögurra
hæða, fyrir hjúkrunartengda þjónustu auk einnar
hæðar tengibyggingar við núverandi hjúkrunar-
heimili. Lóðirnar Sóltún 2 og Sóltún 4 verða ein
lóð og verður sameiginleg bílastæðaþörf alls 174
bílastæði. Gert verður ráð fyrir bílakjallara undir
núverandi stæðum við Sóltún 2 sem myndi rúma 78
stæði. Sameiginleg lóð stækkar um 310 m² vegna
stækkunar byggingareits
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 4. júlí 2007
Skipulagsstjóri Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið