Fréttablaðið - 04.07.2007, Page 26

Fréttablaðið - 04.07.2007, Page 26
„Ég geri það sem ég vil núna. Ég hef bara ekki tíma til að gera það allt.“ Hulda Jakobsdóttir varð bæjarstjóri í Kópavogi, fyrst kvenna, þann 4. júlí fyrir fimmtíu árum. Í tilefni af því verður opnuð sýning um störf Huldu í Bókasafni Kópavogs í dag. Sýning- in samanstendur af munum í eigu af- komenda Huldu auk opinberra skjala. „Þegar við áttuðum okkur á því að fimmtíu ár væru liðin frá því fyrsta konan varð bæjarstjóri á Íslandi þá hugsuðum við okkur ekki lengi um áður en við ákváðum að við vildum halda sérstaklega upp á það,“ segir Una María Óskarsdóttir, formað- ur jafnréttisnefndar Kópavogs, sem stendur fyrir sýningunni ásamt ætt- ingjum Huldu. Hulda Jakobsdóttir fæddist í Reykjavík 21. október 1911. Hún gift- ist Finnboga Rúti Valdemarssyni, sem þá var ritstjóri Alþýðublaðsins, árið 1938. Tveimur árum síðar fluttu þau í Kópavoginn, settust að á Marbakka og hófu fljótt afskipti af málefnum sveitarfélagsins. Finnbogi varð fyrst oddviti og svo bæjarstjóri frá 1955 til 1957 og vermdi því bæjarstjórastólinn fyrir konu sína sem tók við og gegndi stöðunni til 1962. Una María efar ekki að sú stað- reynd að Hulda hafi orðið bæjarstjóri svo snemma hafi haft áhrif á það að í Kópavogi var stofnuð fyrsta jafnrétt- isnefnd landsins. Svo mikils metur hún störf Huldu að hún myndi vilja sjá styttu af henni prýða bæinn í nán- ustu framtíð. „Hún amma er mjög sterk í okkar huga og hefur alltaf verið. Það hefur verið sérstaklega skemmtilegt að fara yfir gömul skjöl á héraðsskjalasafni Kópvogs, átta sig betur á því sem hún gerði enda hefur ekki verið lítið mál að reka bæjarfélag þegar verið var að byggja upp Kópavoginn,“ segir Hulda Dóra Styrmisdóttir, dóttur- dóttir Huldu Jakobsdóttur, sem held- ur framsöguerindið Amma sem fyrir- mynd við opnun sýningarinnar í dag. „Amma lagði alltaf mikla áherslu á að konur hefðu menntun enda var hún sjálf ein af fáum konum sem útskrifuð- ust sem stúdentar frá MR árið 1931,“ segir Hulda og bendir á að áherslur ömmu sinnar í bæjarmálum hafi verið mjög skýrar, sérstaklega hvað varð- aði velferð barnanna í bænum. „Pen- ingarnir voru settir í skóla og það var ekki fyrr en á síðasta árinu henn- ar sem meiri peningar fóru í vegamál en skóla,“ segir Hulda og bætir við að uppbygging skóla, sundlaugar og fé- lagsheimilis hafi verið ömmu sinni ofarlega í huga. Þá lagði hún einnig áherslu á byggingu Kópavogskirkju en hún var formaður sóknarnefndar í tíu ár. Til dæmis hafði hún persónulega samband við Gerði Helgadóttur um að búa til glerið í glugga kirkjunnar. Hulda hefur greinilega haft tals- verð áhrif á hugsunarhátt afkomenda sinna, sérstaklega kvenleggsins. „Mér, og ég veit að það sama átti við um syst- ur mínar og frænkur, datt hreinlega ekki annað í hug en að konur gætu gert hvað sem þeim sýndist og gegnt hvaða stjórnunarstarfi sem væri, af því að við vissum að amma okkar hafði verið bæjarstjóri,“ segir Hulda og bætir við að Hulda amma hafi verið henni og öðrum fjölskyldumeðlimum mikil fyr- irmynd í því hvernig sameina skyldi fjölskyldulíf og frama, enda áttu Hulda og Finnbogi fimm börn. Eftir að Hulda lét af störfum sem bæjarstjóri starfaði hún sem um- boðsmaður Brunabótafélags Íslands í Kópavogi. Hún var aftur kjörin bæj- arfulltrúi 1970 til 1974. Hún lést 31. október 1998. Sýningin verður sett í bókasafni Kópavogs í dag klukkan 17.00 en að dagskrá lokinni fer fram afhending árlegrar jafnréttisviðurkenningar sem veitt er í sjötta sinn. Danadrottning til Íslands Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Sverrir Norland Sunnuvegi 5, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut, þriðjudaginn 26. júní. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni, fimmtu- daginn 5. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Margrét Norland Kristín Norland Jón Norland Sigríður Signarsdóttir Halla Norland Valdimar Sigurðsson og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Hreinn Helgason, Sæviðarsundi 29, Reykjavík, er lést 27. júní sl. verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 5. júlí kl. 13.00. Jónas Hreinsson Valdís Oddgeirsdóttir Ólafur Hreinsson Helga Þormóðsdóttir Steinar Hreinn Jónasson Elmar Helgi Ólafsson Freysteinn Jónsson, Vagnbrekku, Mývatnssveit, verður jarðsunginn frá Skútustaðakirkju föstudaginn 6. júlí kl. 14. Áslaug Freysteinsdóttir Guðmundur Þórhallsson Hjálmar Freysteinsson Sigríður Þórðardóttir Guðrún Freysteinsdóttir Húnn Snædal Egill Freysteinsson Dagbjört Bjarnadóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, sonur, bróðir, tengdasonur og afi, Einar S. Ólafsson framkvæmdastjóri, Háholti 6, Garðabæ, sem andaðist á heimili sínu aðfaranótt föstudagsins 22. júní, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 6. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar afbeðin en þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á heimahlynningu LSH (Krabbameinsfélagið, sími 540-1990). Inga Jóna Andrésdóttir Ásta Sigríður Einarsdóttir Finnbogi V. Finnbogason Elínborg Einarsdóttir Örn Þórðarson Inga Ólöf Sigurjónsdóttir Alexander Arndísarson Alexander Dagur Finnbogason Einar Auðunn Finnbogason Ólafur J. Einarsson Sjöfn Ólafsdóttir Eyjólfur Sigurðsson Sigríður Williamsdóttir Andrés Guðmundsson og aðrir aðstandendur. 60 ára afmæli Sextugur er í dag Guðjón Gestsson Hann tekur á móti vinum og vandamönnum að heimili sínu, Litlubæjarvör 14, Álftanesi, milli kl. 20 og 23 í dag, miðvikudaginn 4. júlí. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Karl Gústaf Ásgrímsson, lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut, sunnu- daginn 1. júlí. Jarðarförin auglýst síðar. Svanhildur Th. Valdimarsdóttir Margrét Inga Karlsdóttir Helga Jóhanna Karlsdóttir Rúnar Sólberg Þorvaldsson Bjarni Karlsson Svanhildur A. Sigurgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Fyrirtæki okkar verður lokað á morgun, fimmtudaginn 5. júlí, vegna útfarar Sverris Norland www.minningargreinar.is Okkar kæra mamma, tengdamamma, amma og langamma Ragnhildur Stefánsdóttir, Ljósheimum 8, Reykjavík, sem lést á Grensásdeild Landspítalans miðviðkudaginn 27. júní, verður jarðsungin í Fossvogskirkju föstudag- inn 6. júlí kl. 15. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Minningarsjóð Hollvinasamtaka Grensáss. Stefán Ómar Oddsson Ása Birna Áskelsdóttir Ríkharður Oddsson María Viggósdóttir María Berglind Oddsdóttir börn og barnabörn. Fallegir legsteinar á góðu verði

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.