Fréttablaðið - 04.07.2007, Page 28
Nú hefur aldeilis
dregið til tíðinda
í heimi mínum
og dagar stræt-
óferða dauðans
og fóteymsla
vegna óhóflegra
labbitúra eru
taldir. Ástæðan
er sú að Brúnó
er kominn inn í
líf mitt. Brúnó er
lít- ill og nettur. Brúnó er gam-
all og sætur. Brúnó er appelsínu-
brúnn á litinn en það er litur sem
ég hélt að væri ekki til þangað
til ég sá Brúnó. Hann er svolítið
svona „seventís“. Brúnó er sem
sagt voða krúttleg bíldrusla sem
kærastinn festi kaup á í síðustu
viku. Stoltara andlit hef ég sjald-
an séð en þegar hann keyrði inn
götuna.
Nú þeytumst við um fjöll og
firnindi án þess að þurfa að
treysta á góðvild annarra með að
lána okkur bíl. Ef okkur langar til
Ísafjarðar, förum við bara þangað.
Lífið er talsvert auðveldara með
Brúnó. Smáralindin virðist ekki
jafn fjarlægur draumur og ferðir
í Ikealand verða fjórfalt fleiri.
Mér þykir reyndar frekar sorg-
legt að kaupa bíl akkúrat núna
þegar gróðurhúsaáhrifin eru að
setja heiminn úr skorðum. Ég
hugga mig við það að bíllinn er
lítill og sparneytinn. Svo er ekki
eins og eitthvað annað hafi komið
til greina enda virðist strætókerf-
ið ekki vera til þess að nota það.
Ég held að strætóarnir séu bara til
skrauts, til þess að gera borgina
aðeins heimsborgarlegri. Það er
ekki eins og maður sjái fólk inni
í strætóunum! Bara svona ein-
staka hræða sem fær líklega borg-
að fyrir það að sitja þarna.
Áður fyrr var ég voða ánægð
með strætó og sat þar heilu tím-
ana á meðan strætó keyrði fram
og til baka um borgina. Ég man
líka þegar það kostaði 25 kall í
strætó. Núna heyrir maður af
því að skiptinemar í háskólunum
tími ekki að fara í strætó. Tíma
ekki! Hljómar það ekki eitthvað
skringilega? En ég er hætt að
velta mér upp úr því og bruna í
Brúnó mínum um allan bæ.
Bónus-vinningur
6
milljónir
Alltaf á mi›vikudögum!
100
50
150
1. vinningur
MILLJÓNIR
Fá›u flér
mi›a fyrir
kl. 16
í dag e›a
taktu sén
s á
a› missa
af flessu
!
MILLJÓNIR
Á LAUSU!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
8
5
8
0
Potturinn stefnir í 50 milljónir. Ofurpotturinn stefnir
í 100 milljónir og bónusvinningurinn í 6 milljónir.
Ekki gleyma að vera með, nældu þér í áskrift.