Fréttablaðið - 04.07.2007, Page 32
JOHN MCCLANE ER
MÆTTUR AFTUR!
ÞORIR ÞÚ AÐ MÆTA?
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
DIE HARD 4.0 kl. 5 - 8 - 10.45
DIE HARD 4.0 LÚXUS kl. 5 - 8 - 10.45
SHREK THE THIRD kl. 3 - 5 - 7 - 9.10 - 11.10
SHREK HINN ÞRIÐJI (ÍSL TAL) kl. 3 - 5 - 7
FANTASTIC FOUR 2 kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
HOSTEL 2 kl. 9
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
MIÐASALA Á
DIE HARD 4.0 kl. 5.40 - 8.20 - 11
PREMONITION kl. 5.45 - 8 -10.15
FANTASTIC FOUR 2 kl. 6 - 8.20 -10.30
THE HOAX kl. 5.30 - 8
28 WEEKS LATER kl. 10.30
14
18
14
12
12
16
14
12
18
14
DIE HARD 4.0 kl. 5.40 - 8 - 10.20
PREMONITION kl. 8 - 10
FANTASTIC FOUR 2 kl. 6
14
12
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
DIE HARD 4.0 kl. 5.15 - 8 - 10.45
PREMONITION kl. 5.45 - 8 -10.15
FANTASTIC FOUR 2 kl. 6 - 8 - 10
HOSTEL 2 kl. 8 - 10
THE LIVES OF OTHERS kl. 5.30
Martröð eða
raunveruleiki?
YIPPEE KI YAY
EVAN ALMIGHTY kl. 4, 6, 8 og 10 L
DIE HARD 4.0 kl. 7.30 og 10-POWER 14
SHREK 3 enskt tal kl. 4, 6 og 10 L
SHREK 3 íslenskt tal kl. 4, 5.45 og 8 L
www.laugarasbio.is - Miðasala á
- bara lúxus
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
Sími: 553 2075
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SHREK, Fíóna, Stígvélaði kötturinn og
Asninn eru mætt aftur í skemmtilegasta
ævintýri allra tíma
ÁLFABAKKA
SHREK 3 M/- Ensku TAL kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 L
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 4 - 6 L
PIRATES 3 kl. 5:30 10
ZODIAC kl. 9 16
EVANT ALMIGHTY kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 L
EVANT ALMIGHTY VIP kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 L
BLIND DATING kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 10
OCEAN´S 13 kl. 10:10 7
DIGITAL
DIGITAL
KRINGLUNNI
DIGITAL
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 6:15 L
SHREK 3 M/- Ensku TAL kl. 8:15 - 10:20 L
CODE NAME CLEANER kl. 6 - 8 10
OCEAN´S 13 kl. 10:10 7
PIRATES 3 kl. 5:30 - 8:40 10
KEFLAVÍK
AKUREYRI
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 6 L
SHREK 3 M/- Ensku TAL kl. 6 - 8 L
BLIND DATING kl. 8 10
er blind
EVAN ALMIGHTY kl. 8 - 10 L
DIE HARD 4 kl. 8 - 10:30 14
www.SAMbio.is 575 8900
Íslendingar lenda stund-
um í því að nöfnum þeirra
sé snúið á hvolf og farið er
með rangt þjóðerni þeirra.
Ólafur Jóhannesson er nýj-
asta fórnarlambið.
„Ég er ekki Svíi og á engar ættir
að rekja til Svíþjóðar,“ segir kvik-
myndaleikstjórinn Ólafur en hann
hefur nú bæst í hóp þeirra Íslend-
inga sem hefur verið sviptur föð-
urlandi sínu og var nýlega sagð-
ur sænskur á hinni vinsælu kvik-
myndasíðu AC Media. Á síðunni
var verið að greina frá næstu verk-
efnum leikaranna úr mafíu-þátt-
unum Sopranos en eins og komið
hefur fram í Fréttablaðinu leikur
einn aðalleikari þáttanna, Micheal
Imperioli, stórt hlutverk í nýjustu
kvikmynd Ólafs, Stóra planið.
Að sögn Ólafs skilur hann ekk-
ert hvernig þessi misskilningur
getur hafa átt sér stað. En frétt-
in hafi farið víða og Ólafur er alls
staðar sagður vera sænskur leik-
stjóri. Leikstjórinn er þó ekki eini
Íslendingurinn sem hefur lent
í þessum misskilningi en vinur
hans, Dagur Kári, er oft sagður
vera danskur og þar að auki hafa
Danir verið duglegir við að eigna
sér listamanninn Ólaf Elíasson
þannig að eitthvað virðist Ólafs-
nafnið flækjast fyrir blaðamönn-
um. Ekki má hins vegar gleyma
knattspyrnukappanum Jon Dahl
Tomason sem fjölmiðlar þreytast
seint að minnast á að er íslenskur
í aðra ættina.
Leikstjórinn sagðist þó gera sér
grein fyrir því að hið nýja þjóðerni
gæti opnað honum nýjar dyr. Svíar
væru jú framarlega í kvikmynda-
geiranum. „Svona kannski til lengri
tíma litið er þetta kannski ekki svo
slæmt,“ segir Ólafur. Tökum á
Stóra planinu er nú lokið og situr
Ólafur sveittur við að klippa mynd-
ina en með aðalhlutverkin fara þeir
Pétur Jóhann Sigfússon og Eggert
Þorleifsson.
„Planið er að hafa þetta minna
í sniðum en síðustu ár. Ná kósí
stemningu og hafa það huggulegt
frekar en að hafa þetta eitthvert
stórt festival,“ segir Björn Borko
Kristjánsson, einn skipuleggjenda
tónlistarhátíðarinnar Innipúkans,
sem verður haldin í Reykjavík um
verslunarmannahelgina.
Innipúkinn verður haldinn á
nýja tónleikastaðnum Organ sem
mun opna síðar í þessum mán-
uði. Organ er staðsettur í port-
inu fyrir aftan Gauk á Stöng. Þar
var áður hinn skuggalegi Rökkur-
bar en búið er
að rífa úr hús-
inu mest allt
innvolsið, gjör-
breyta staðnum
og setja inn ný
innyfli.
„Þetta er
mjög flottur
staður, akkúr-
at tónleikastað-
urinn sem hefur
vantað í Reykja-
vík,“ segir
Björn. Staður-
inn rúmar um 300 manns og tón-
leikadagskráin verður bæði á
laugardag og sunnudag.
Ákvörðunin um að halda há-
tíðina í ár var tekin í gær og því
sagði Björn að enn sem komið er
væru engar hljómsveitir komnar
á hreint. Það er þó ákveðið að hafa
einungis íslenskar hljómsveitir og
þau eru byrjuð að hringja í hljóm-
sveitir á óskalistanum. Ásamt
Birni standa að hátíðinni uppruna-
legu innipúkarnir og Skakkam-
anage-hjónin Berglind og Svavar
Pétur.
Innipúkinn á nýjum tónleikastað
Geri Halliwell grátbað Vict-
oriu Beckham um fyrirgefningu
vegna þess hvernig hún yfir-
gaf hinar Kryddpíurnar á sínum
tíma, sem síðar átti eftir að leiða
til upplausnar stúlknasveitarinn-
ar í heild sinni. Afsökunarbeiðn-
in kom fyrst frá Geri árið 2004
en það var ekki fyrr en nú sem
Victoria ákvað að samþykkja
hana. Þessar sögulegu sættir
urðu til þess að Kryddpíurnar
hafa komið saman að nýju. Þessu
er haldið fram í enska götublað-
inu The Sun í gær.
Að sögn heimildarmanna
blaðsins hefur Victoria ein-
hverja hluta vegna litið á brott-
för Geri sem persónuleg svik frá
upphafi. Victoria er aukinheld-
ur sögð afar langrækin og hafði
hún áður sagt að hún myndi
aldrei fyrirgefa Geri fyrir fram-
komu sína. Sárin hafa hins vegar
greinilega gróið með tímanum
og fór vel með á þeim stöllum
þegar tilkynnt var um fyrirhug-
aða heimsreisu Kryddpíanna í
lok árs.
„Geri vissi alveg hvernig
hægt væri að sættast við Vict-
oriu. Hún brotnaði niður fyrir
framan Victoriu, baðst afsökun-
ar fyrir að hafa yfirgefið hljóm-
sveitina með þeim hætti sem hún
gerði og nánast grátbað hana um
fyrirgefningu,“ segir ónefnd-
ur heimildarmaður við The Sun
sem þekkir til stúlknanna. „Til
að bæta ofan á dramatíkina lét
Geri Victoriu vita hvað hún hefði
verið einmana og ringluð á þess-
um tímapunkti og á endanum fór
Victoria að finna til með Geri.
Þetta leiddi síðan til sáttanna
nú,“ sagði hann enn fremur.
Geri grátbað um fyrirgefningu