Fréttablaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 8
8 5. júlí 2007 FIMMTUDAGUR BRJÖMS- NJUMS- BRRÖMS- BRÖMS- SNJÖMM- … AHHH! Á kexmáli þýðir þetta: úrvalsgott súkkulaði, hafrar, hveilhveiti og unaðslegt bragð. Hob-Nobs er nefnilega eina kexið sem talar! ÍS L E N S K A /S IA .I S /N A T 3 76 44 0 6/ 07 n Ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálf- stæðisflokks ákvað að selja 15,2 prósenta hlut sinn í Hitaveitu Suð- urnesja til einkaaðila. Sérstaklega var tekið fram í auglýsingu, sem birtist 7. mars í dagblöðum, að opinberar aðilar gætu ekki tekið þátt í útboðinu þar sem það gæti farið gegn samkeppnislögum. n Orkuveita Reykjavíkur, þar sem Framsóknar- og Sjálfstæðisflokk- ur eru í meirihluta og Vilhjálm- ur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri situr í stjórn, hefur falast eftir því að kaupa hlut ríkisins líkt og fleiri hluti sveitarfélaga. Þessi aðkoma Orkuveitunnar að kaupunum er athyglisverð fyrir þær sakir að ríkið stefndi sérstaklega að því að selja hlut sinn til einkaaðila, en nú hafa kjörnir fulltrúar sömu flokka og vildu selja hlutinn til einkaaðila beitt sér fyrir því að komast yfir hlutinn og halda honum þannig í eigu opinbers aðila. n Orkuveita Reykjavíkur gæti að hámarki eignast 37 prósenta hlut í Hitaveitu Suðurnesja en ekki liggur fyrir hversu mikill hlutur fyrirtækis- ins verður. n Sveitarfélögin sem eiga í Hita- veitunni hafa 60 daga frest til þess að ákveða hvort þau nýta for- kaupsréttinn. Í síðasta lagi í byrjun september verður ljóst hvort Orku- veitan mun eignast eitthvað í Hita- veitunni eða ekki, vegna forkaups- réttarins. Fyrrverandi stjórnar- flokkar tvístígandi Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks vildi selja hlut ríkisins í Hita- veitu Suðurnesja til einkaaðila, en meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks, í gegnum Orkuveitu Reykjavíkur, vill halda hlutnum í opinberri eigu. n Ríkið gekk frá sölu á um 15,2 pró- senta hlut í Hitaveitunni til Geysis Green Energy í maí en þar sem Reykjanesbær, Hafnarfjarðarbær og Grindavík nýttu sér forkaupsrétt þá varð ekkert af sölunni. n Grindavíkurbær og Hafnarfjarðar- bær vilja selja sinn hlut af ríkishlutn- um til Orkuveitu Reykjavíkur en Reykjanesbær, sem er stærsti ein- staki eigandinn í Hitaveitu Suður- nesja, vill selja til Geysis. n Björgvin G. Sigurðsson við- skiptaráðherra segir of geyst hafa verið farið þegar einkavæðingin var ákveðin. Hann segir nauðsyn- legt að ræða málið frekar og skoða kosti sölunnar og galla betur. Þessu er Árni Mathiesen fjármálaráðherra ósammála líkt og einkavæðingar- nefnd. Ríkisstjórnin er því augljós- lega tvístígandi í afstöðu sinni til málsins. n Undir niðri er tekist á um hvert hlutverk Hitaveitu Suðurnesja eigi að vera. Reykjanesbær, sem er einn eigenda Geysis, vill taka þátt í verk- efnum með fyrirtækinu, meðal ann- ars á erlendum vettvangi, og telur mikla krafta losna úr læðingi með innkomu einkafyrirtækisins í Hita- veituna. Pólitískur vilji virðist vera til þess innan Hafnarfjarðar að halda Hitaveitunni í opinberri eigu, sé mið tekið af viðbrögðum forsvarsmanna bæjarins við fyrirhugaðri sölu á hlut ríkisins. n Tilboð Geysis Green í hluti í Hita- veitunni er hæst, á genginu 7,1, en tilboð Orkuveitunnar, sem Hafnar- fjarðarbær hefur samþykkt að selja hlut sinn til, er á genginu 7,0. magnush@frettabladid.is FóTbolTI Kostnaður við að senda börn á knattspyrnumót eins og pollamótið í Vestmannaeyjum fer fyrir brjóstið á mörgum. Það kost- ar um 30.000 krónur að senda börnin á þessi mót. Friðbirni Valtýssyni, fram- kvæmdastjóra ÍBV, kemur þessi upphæð á óvart. Þeir hjá ÍBV taki 12.000 krónur fyrir hvert barn. „Við höfum heyrt af þessari umræðu og erum mjög óhress með þennan málflutning og að gagnrýnin beinist að okkur,“ segir Friðbjörn. „Félögin sem senda krakkana rukka 30.000 krónur fyrir hvern krakka og jafnvel meira en ég veit ekki hver þessi millikostnaður er.“ Til dæmis sé frítt fyrir börn með Herjólfi. „Það er verið að kaupa galla á félaga og það er góðra gjalda vert en það má ekki blanda því við móts- gjaldið.“ Knattspyrnu- mót fyrir fimmta flokk karla hófst á Akureyri í gær. Magnús Magn- ússon hjá KR segir að það kosti 24.500 kr. fyrir hvern KR-ing á mótið. Gjaldið skiptist í þrennt: fararstjórn, peysu og far aðra leið. Safnanir hafi verið í gangi og því misjafnt hvað hver og einn þurfi að borga mikið. - pal Margir foreldrar óánægðir með kostnaðinn sem fylgir pollamótum í fótbolta: Ekki mótshöldurum að kenna Friðbjörn Valtýsson Framkvæmda- stjóri ÍBV segir Eyjamenn bjóða upp á glæsilegt mót sem jafnist ekki á við neitt annað á landinu. lonDon Sergei Ívanov, aðstoðarfor- sætisráðherra Rússlands, hefur lýst því yfir að Rússar gætu komið upp aðstöðu til að skjóta upp eld- flaugum í Kaliningrad, svæði á milli Litháen og Póllands. Þetta kemur fram á vef BBC. Ívanov segir að hugmyndin teng- ist áformum Bandaríkjamanna um að koma upp eldflaugavarnarkerfi í Póllandi og Tékklandi. En ríkis- stjórn Rússlands telur að það gæti ógnað öryggi Rússlands ef Banda- ríkjamenn koma upp eldflauga- varnarkerfi nálægt landamærum þess. Ráðherrann segir að Rússar þurfi ekki að koma eldflaugunum fyrir í Kaliningrad ef Bandaríkja- menn taka boði þeirra um að nota ratsjárstöðvar í Aserbaídsjan og í Suður-Rússlandi í staðinn fyrir að byggja eldflaugavarnarkerfi í Tékklandi og Póllandi. George Bush, forseti Bandaríkj- anna, hefur sagt að hugmynd Rússa sé „nýstárleg“ en að Bandaríkja- stjórn muni halda sig við fyrri áætl- anir sínar um að byggja eldflauga- varnarkerfið í Póllandi og Tékklandi. Bandaríkjastjórn hefur sagt að ekki sé verið að koma upp eldflaugavarnarkerfinu vegna hræðslu við árás frá Rússum held- ur vegna mögulegra árása frá lönd- um eins og Íran. - ifv Beint gegn áformum Bandaríkjamanna um eldflaugavarnarkerfi í Austur-Evrópu: Eldflaugar til Kaliningrad sErGEi ÍVanoV oG VladÍmÍrs PÚtÍn Aðstoðarforsætisráðherrann er talinn líklegur eftirmaður Pútíns sem forseti Rússlands. Pútín lætur af embætti á næsta ári. FRéTTABlAðið/AP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.