Fréttablaðið - 05.07.2007, Qupperneq 10
10 5. júlí 2007 FIMMTUDAGUR
„Grunnferlið er svipað og þegar verið
er að brugga bjór,“ segir Þórður um
bruggun maltviskís. „Kornið er látið
spíra og á réttu stigi er það tekið og
spírunin stöðvuð. Síðan er það malað
og unninn úr því grautur sem er lát-
inn gerjast.
Þegar gerjunin er afstaðin er maður
kominn með nokkurs konar bjórlíki.
Sá vökvi er tekinn og eimaður, tvisv-
ar til þrisvar sinnum, og þá er kom-
inn áfengur vökvi sem er rúmlega 50
prósent.
Hann er geymdur í nokkur ár og er
svo stilltur af með vatni svo að áfeng-
ishlutfallið sé rétt.“
Níu til tólf ára ferli
IðnAðUR Þórður Freyr Sigurðs-
son, 25 ára Sunnlendingur, hefur
látið af áformum sínum um að
framleiða íslenskt viskí á bæ
sínum, Hátúni í Landeyjum.
„Þessu er þannig séð lokið,“
segir Þórður, sem nýverið lauk
viðskiptafræðinámi við Háskól-
ann á Bifröst. „Það bara skorti
fjármagn í þetta verkefni.“
Þórður hóf undirbúning fyrir
framleiðslu maltviskís árið 2003
með gerð viðskipta- og markaðs-
áætlana.
„Það er ekkert því til fyrir-
stöðu að framleiða gott viskí á
Íslandi,“ segir Þórður. „Við
höfum gott hráefni, íslenska
vatnið og íslenska kornið. Þetta
er afbragðshráefni. Eina spurn-
ingin snýr að markaðssetningu
og það fjármagn sem þarf til
hennar. Íslenskur markaður er
fulllítill fyrir flesta til að hefja
framleiðslu.“
Til verkefnisins fékk Þórður
styrki frá Impru nýsköp-
unarmiðstöð, landbúnaðarráðu-
neytinu og Atvinnuþróunarsjóð
Suðurlands. Hann hafði einnig
haft samband við erlenda fram-
leiðendur.
„Hugmyndin var að framleiða
þetta úr heimaræktuðu hráefni,“
segir Þórður. „Þetta strandaði á
því að ég hafði ekki aðgang að
þolinmóðu fjármagni. Það tekur
svo langan tíma fyrir viskíið að
eldast.“
Nokkuð er framleitt af viskíi í
Japan, Kanada, Bandaríkjunum,
Írlandi, Nýja-Sjálandi og Sví-
þjóð, að sögn Þórðar. Skotland sé
þó að sjálfsögðu þekktasta fram-
leiðslusvæðið.
Þórður segist þó ekki hafa end-
anlega gefið hugmyndina upp á
bátinn. „Ef einhverjir fjársterkir
aðilar hafa áhuga þá er ég með
viðskiptaáætlun og markaðs-
áætlun í höndunum, það er hægt
að láta reyna á það,“ segir Þórð-
ur. steindor@frettabladid.is
Ísland kjörið
til framleiðslu
á góðu viskíi
Ekkert verður af fyrirhugaðri framleiðslu maltviskís
á bænum Hátúni í Landeyjum. Skortur á þolin-
móðu fjármagni er helsta ástæðan að sögn Þórðar
Freys Sigurðssonar sem hugðist hefja framleiðslu.
Þórður freyr SigurðSSoN Hugðist framleiða viskí á bænum sínum Hátúni, sunn-
an af Hvolsvelli. Fréttablaðið/Pjetur
HátúN viSkí Svona var fyrirhugað að
viskíið yrði útlits.
PeRsónUveRnD Alcan á Íslandi ber,
samkvæmt úrskurði Persónuvernd-
ar, ábyrgð á þeim persónuupplýs-
ingum sem söfnuðust við upp-
lýsingaöflun félagsins fyrir
íbúakosningarnar um stækkun
álversins í Straumsvík. Það er því í
höndum Alcan að afla þeirra gagna
sem Persónuvernd þarf á að halda
til þess að skera úr um hvort upp-
lýsingasöfnunin hafi verið lögmæt.
Persónuvernd barst ábending í
mars um að starfsmenn Alcan
hefðu fengið tilmæli um að safna
upplýsingum um skoðanir vina og
nágranna sinna á fyrirhugaðri
stækkun álversins. Starfsmennirn-
ir áttu að skrá þessar upplýsingar
inn á vefsíðu sem allir starfsmenn
fyrirtækisins höfðu aðgang að.
Þegar Persónuvernd hafði sam-
band við Alcan vegna málsins sögðu
forsvarsmenn fyrirtækisins að þeir
hefðu keypt aðgang að kerfinu hjá
fyrirtækinu GPS almannatengsl hf.
og vísuðu ábyrgðinni þangað.
„Nú hefur verið skorið úr um
þennan ágreining og í kjölfarið
verður hægt að kanna hvort aðgerð-
in hafi verið lögmæt,“ segir Sigrún
Jóhannesdóttir, forstjóri Persónu-
verndar. Hún segir að úrskurður-
inn hafi dregist vegna þess að sein-
lega hafi gengið að afla gagna frá
GPS almannatengslum. Þar sem
Alcan er ábyrgt fyrir upplýsinga-
söfnuninni er það nú í þeirra verka-
hring að afla gagnanna og koma
þeim til Persónuverndar. - þo
Persónuvernd úrskurðar að Alcan beri ábyrgð á söfnun persónuupplýsinga:
Munu kanna lögmæti aðgerðarinnar
umdeild upplýSiNgaSöfNuN Starfs-
menn alcan fengu tilmæli um að safna
persónuupplýsingum um nágranna sína
og vini. Fréttablaðið/Gva
N1 BÍLAÞJÓNUSTA SÆKTU UM VIÐSKIPTA- OGSAFNKORT Á WWW.N1.IS
ER BÍLLINN
KLÁR Í FRÍIÐ?
ALLT A
Ð
10% A
FSLÁTT
UR!
Safnko
rtshafa
r fá 3%
afslátt
í form
i punk
ta.
Viðskip
takorts
hafar f
á 7% a
fslátt,
auk 3%
í form
i Safnk
orts-
punkta
– sam
tals
10% af
slátt.
Láttu smyrja bílinn og athuga hjólbarðana hjá Hjól-
barðaþjónustu N1 og farðu áhyggjulaus í sumarfríið.
Réttarhálsi 2, Rvík, hjólbarða- og smurþjónusta 587 5588
Fellsmúla 24, Rvík, hjólbarðaþjónusta 530 5700
Fellsmúla 24, Rvík, smurþjónusta 530 5710
Ægisíðu 102, Rvík, hjólbarða- og smurþjónusta 552 3470
Langatanga 1a, Mosfellsbæ, hjólbarða- og smurþj. 566 8188
Reykjavíkurvegi 56, Hafnarfirði, hjólbarðaþjónusta 555 1538
Dalbraut 14, Akranesi, hjólbarðaþjónusta 431 1777
Tryggvabraut, Akureyri, smurþjónusta 462 1080
sTjóRnMál Utanríkisráðuneytið
hefur ráðið Kristínu A. Árna-
dóttur, skrifstofustjóra borgar-
stjórnar Reykjavíkur, til að stýra
framboði Íslands
til Öryggisráðs
Sameinuðu
þjóðanna.
Kosningar til
Öryggisráðsins
fara fram á
allsherjarþingi
Sameinuðu
þjóðanna haustið
2008.
Kristín hefur
stýrt skrifstofu borgarstjórans í
Reykjavík undanfarin ár en
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri hefur veitt henni
leyfi frá störfum á meðan hún
sinnir verkefninu.
Kristín er með meistarapróf í
opinberri stjórnsýslu og stjórn-
un frá Syracuse University í
Bandaríkjunum. - lbb
Kristín A. Árnadóttir:
Stýrir framboði
til Öryggisráðs
kriStíN a.
árNadóttir
vel tekið í ókeypis strætó
bæjarráð Garðabæjar hefur tekið vel í
ósk Stúdentaráðs Háskóla Íslands og
bandalags íslenskra námsmanna um
ókeypis strætó.
garðabær