Fréttablaðið - 05.07.2007, Qupperneq 12
5. júlí 2007 FIMMTUDAGUR
Fólk Mikið verður um að vera um
helgina víða um land og alls kyns
hátíðir haldnar. Þar mætti nefna
þjóðlagahátíð, írska daga, gos-
lokahátíð, mærudaga og munu
þúsundir manna leggja leið sína á
þær.
Alltaf er vinsælt að fara á írska
daga á Akranesi. Í fyrra voru tíu
til tólf þúsund gestir á hátíðinni
og er búist við öðru eins í ár. Dag-
skráin hefur aldrei verið veglegri
og helsta nýbreytnin er sú að
mikið verður lagt upp úr sunnu-
deginum. „Við viljum sýna með
því að þetta sé fjölskylduhátíð,“
segir Ólöf Vigdís Guðnadóttir,
einn af skipuleggjendum írskra
daga. Sunnudagurinn verður
leikjadagur. Farið verður í fullt af
leikjum í skógræktinni, strand-
blakkeppni verður haldin og götu-
keppni í fótbolta, leikritið Dýrin í
Hálsaskógi verður sýnt í skógin-
um og margt, margt fleira. Önnur
nýbreytni er útitónleikar í mið-
bænum á föstudagskvöld og sjá
Stuðmenn um fjörið.
Þjóðlagahátíðin á Siglufirði er
heldur betur búin að sanna sig og
þótti hún takast mjög vel í fyrra.
Hátíðin í ár ber yfirskriftina Ríma
og verða kvæðamenn atkvæða-
miklir á svæðinu. Rúmlega hundr-
að flytjendur verða á hátíðinni og
koma víða að, meðal annars frá
Armeníu. Alls kyns tónlist verður
flutt, til að mynda djass og búlg-
arskir dansar, kór frá Þýskalandi
heldur tónleika og hið forna hljóð-
færi langspil verður áberandi á
hátíðinni. Um þúsund gestir voru
á þjóðlagahátíðinni í fyrra.
Goslokahátíð verður haldin í
Vestmannaeyjum um helgina og
er þetta viðburðamesta helgin í
Eyjum fyrir utan þjóðhátíðina.
Nær allt gistirými er uppbókað en
nýtt tjaldsvæði hefur verið tekið í
gagnið. Viðamikil dagskrá er á
hátíðinni og á laugardagskvöldið
fer gleðskapurinn fram í Skvísu-
sundi þar sem eru gamlir beiting-
arskúrar. Hljómsveitir spila í
fjórum þeirra þannig að það verð-
ur tónlist fyrir alla aldurshópa.
Búist er við að meira en þúsund
manns mæti til Eyja um helgina.
Kristín Jóhannesdóttir, ferða- og
menningarfulltrúi Vestmanna-
eyja, segir að þeir sem komi til
Eyja á þessa hátíð séu yfirleitt á
aldrinum um þrítugt og upp úr;
unglingarnir fari frekar á þjóðhá-
tíð.
Pollamót verður haldið á Akur-
eyri og verða þrjú til fjögur þús-
und manns þar í tengslum við
mótið. Markaðshelgi verður í Bol-
ungarvík og Mærudagar á Húsa-
vík. peturla@frettabladid.is
Von á þúsund-
um gesta á
bæjarhátíðir
Búist er við þúsundum manna á bæjarhátíðir víða
um land um helgina. Þjóðlagahátíð á Siglufirði var
sett í gær. Írskir dagar á Akranesi hefjast í kvöld og
goslokahátíð verður í Eyjum svo fátt eitt sé nefnt.
SandkaStalakeppni á langaSandi Hin árlega sandkastalakeppni verður haldin
á írskum dögum á Akranesi, ásamt keppni um rauðhærðasta gestinn. Tíu til tólf
þúsund manns sóttu írska daga í fyrra. mynd/HilmAr þorsTeinn HilmArsson
PAkISTAN, AP Meira en 700 róttækir
fylgismenn Rauðu moskunnar í
Islamabad, höfuðborg Pakistans,
sem pakistanski herinn hefur setið
um í nokkra daga, gáfust upp í gær.
Sextán manns létu lífið í átökum á
milli fylgismanna moskunnar og
hersins á þriðjudag. Frestur fylgis-
manna moskunnar til að gefast upp
rann út í gærmorgun.
Talið er að mörg þúsund manns
séu inni í moskunni og hafa yfirvöld
í Pakistan lofað konum og börnum
friðhelgi ef þau gefast upp en að
menn sem hafi tekið þátt í bardög-
um við herinn verði sóttir til saka.
Bardagar héldu áfram við mosk-
una í gær. - ifv
Sextán manns létu lífið við moskuna:
700 gáfust upp
16 létu lífið einn af þeim sem lét lífið
í átökum á milli pakistanskra hermanna
og heittrúaðra múslíma við rauðu
moskuna í islamabad, höfuðborg Pakist-
ans, í fyrradag. AP/fréTTAblAðið
ALPARNIR
Íslensku
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ:
Smáralind
Kringlan
Bankastræti 5
Faxafen 12
GARÐABÆR:
Miðhraun 11
AKUREYRI:
Glerárgata 32
Spáð er rigningu!
Við kynnum Rán Light, léttan barnafatnað sem
er vatnsheldur, ófóðraður og andar vel.
Rán light byggir á Rán fatnaðinum sem var svo vinsæll hjá okkur í vetur.
Verð:
Jakki 5.500 – Buxur 3.700
Jakkar fást í gráu, rauðu, appelsínugulu, bláu og svörtu.
Rán Light fæst ekki í verslun okkar í Bankastræti.
Írskir dagar á Akranesi
þjóðlagahátíð á siglufirði
Goslokahátíð í Vestmannaeyjum
markaðshelgi í bolungarvík
mærudagar á Húsavík
sveitamarkaðir í eyja- og mikla-
holtshreppi á snæfellsnesi
fótboltamót fyrir fimmta flokk karla
á Akureyri
Hátíðir
um Helgina