Fréttablaðið - 05.07.2007, Page 16
16 5. júlí 2007 FIMMTUDAGUR
Elvar Sigurgeirsson, véla-
verktaki í Bolungarvík,
hefur sankað að sér sautj-
án Deutsch-dráttarvélum,
tuttugu gömlum fólksbifreið-
um og nokkrum vörubílum.
Hann dreymir um að stofna
tækjasafn í Bolungarvík og
stendur fyrir fornbílasýn-
ingu í bænum um helgina.
Elvar er ekki nema 33 ára gamall en
hefur safnað á fimmta tug dráttar-
véla, fólksbifreiða og vörubíla. „Það
eru ekki nema þrjú ár síðan ég byrj-
aði að safna fólksbílunum,“ segir
hann. „Ég hef haft áhuga á Deutsch-
dráttarvélum í nokkurn tíma og
safnað þeim héðan og þaðan um
landið. Eitt sinn þegar ég var að
flytja einn traktorinn var mér boð-
inn bíll sem ég gat ekki afþakkað og
síðan hefur þetta undið upp á sig.“
Elvar er með níu manns í vinnu
og þegar hægist um hjá fyrirtæk-
inu á veturna nýtir hann krafta
þeirra til að gera upp dráttarvélar
og bíla. „Þeir eru hvort eð er í vinn-
unni þannig það er eins gott að nýta
þá í það.“ Hann er að leggja loka-
hönd á fimmtu Deutsch-dráttarvél-
ina sem hann gerir upp og telur
ótvírætt að hann eigi stærsta safn
slíkra dráttarvéla á landinu. Spurð-
ur hvers vegna hann hafi svona
mikinn áhuga á þessum tilteknu
dráttarvélum er svarið einfalt: „Afi
átti alltaf Deutsch.“
Elvar býr svo vel að eiga 1.200
fermetra skemmu þar sem hann
geymir flesta bílana og dráttarvél-
arnar. Í bílasafninu gætir ýmissa
grasa. Innan um Benz, Saab og
Willis-jeppa blasir til dæmis við
Lada Samara, sem Elvar segir hafa
ótvírætt söfnunargildi. „Eftir
fimmtán ár eða svo sjást þessir
bílar ekki lengur á götum hér á
landi.“ Sumir bílanna eru afar illa
farnir. Elvar segir það sinn veik-
leika að rekist hann á bíl með sér-
stöðu geti hann ekki hugsað sér að
honum sé fleygt. Suma fær hann
gefins en aðra kaupir hann og gerir
sér vonir um að geta gert þá alla
upp með tíð og tíma. „Varahlutina
er flesta hægt að fá á eBay og ég
smíða ansi margt sjálfur. Öðruvísi
væri þetta ekki hægt.“
Djásnið í safninu segir Elvar vera
Pontiac Chieftain, árgerð 1956. sem
hann pantaði af eBay og notar í
spássitúra á sunnudögum. „Ég borg-
aði 1,6 milljónir króna fyrir hann og
sé ekki eftir því,“ segir hann. Þótt
hann hafi gert upp nokkrar dráttar-
vélar og sé kominn vel áleiðis með
Benz-bifreið hvarflar ekki að Elvari
að selja nokkuð af bílunum. Hann
viðurkennir að þetta sé dýrt áhuga-
mál en kona hans setji sig þó ekki
upp á móti því. „Á móti kemur að ég
smakka ekki áfengi, þannig það er
kannski alveg eins hægt að eyða
peningunum í þetta í staðinn. Um
daginn fékk ég tilboð í Benzinn og
bar undir hana og hún sagði þvert
nei.“
Um helgina ætlar Elvar að bóna
bestu bílana og halda fornbílasýn-
ingu, sem hann vonar að sé aðeins
vísirinn að því sem koma skal.
„Draumurinn er að koma upp tækja-
safni hér í Bolungarvík einhvern
daginn. Það á eftir að taka sinn tíma
en rætist vonandi einn góðan veður-
dag.“ bergsteinn@frettabladid.is
nær og fjær
„orðrétt“
djásnið í safninu Elvar pantaði þennan Pontiac Chieftain, árgerð 1956, á eBay og borgaði 1,6 milljónir króna fyrir.
FréttaBlaðið/gva
Hluti safnsins Elvar á skemmu þar sem hann geymir flesta bílana og dráttarvél
arnar. FréttaBlaðið/gva
Eins og ný Elvar er að leggja lokahönd
á þessa Deutschvél og á aðeins eftir að
festa sætið. FréttaBlaðið/gva
safngripur
Elvar segir þennan vörubíl
líklega einn af fyrstu bílun
um sem var breytt hér á
landi og telur sig geta gert
hann upp.
FréttaBlaðið/gva
Stærsta safn Deutsch-traktora á Íslandi
Fær Elton að kíkja í
túr?
„Þyrlur eru frábærar til brúks
á íslandi.“
ÓlaFi ÓlaFssyni í samskiPum
Finnst Ekki mikið tiltökumál
að vElja Dýrari lEiðina til að
komast á milli staða.
fréttablaðið 4. júlí.
Fýla í lúxussnekkju
„Það er hins vegar engin
lúxuslykt í honum núna.“
vignir sigursvEinsson, rEkstr
arstjÓri lúxussnEkkjunnar
ElDingar ii, var Ekki Par ánægð
ur mEð ÓþEFinn sEm FylgDi
Bráðnun gúmmiBarka um Borð
í Bátnum.
fréttablaðið 4. júlí.
„það er bara allt gott að frétta í þessu blíð
skaparveðri, það er eiginlega ekki
annað hægt,” segir gísli Hrafn atla
son, karlahópi Femínistafélags
íslands. „ég er líka í svo fínu verk
efni þessa dagana þar sem ég
flakka um borgina á vegum vinnu
skóla reykjavíkur og tala við ungl
inga um kynferðisofbeldi. við sitjum
úti í svona góðu veðri og spjöllum
um þessi mál.
unglingarnir eru svo fínir og
jákvæðir. þeir taka þessu
almennt mjög vel,
betur en margir þeirra
sem eldri eru. svo er
ég loksins orðinn ís
lendingur að því
leytinu til að ég er
búinn að steypa mér í skuldir við kaup á
minni fyrstu íbúð. Hingað til hef ég ekki
búið í eigin húsnæði. þannig að í frí
tíma mínum, þegar ég hef einhvern
tíma, er ég að vinna í íbúðinni.
við í karlahópi Femínistafélags
ins erum líka að fara af stað með
átakið okkar gegn nauðgunum fyrir
verslunarmannahelgina og erum að
skipuleggja það á fullu. það er mjög
ánægjulegt að það eru margir nýir að
koma sem vilja taka þátt í þessu
með okkur og það er sérlega
jákvætt að það séu að
koma ný andlit í karla
hópinn. það er eitt af
meginmarkmiðunum,
að fá fleiri karla til að
taka þátt.“
Hvað Er að frétta? gísli Hrafn atlason karlaHópi fEmínistafélagsins
Talar um kynferðisofbeldi við unglinga
n the Phantom, eða Draugurinn, er
leikjatölva sem ætlað var að keppa
við xbox, Play
station 2 og
gameCube
leikjatölv
urnar en mis
heppnaðist gjörsamlega.
tölvan átti að státa af lykla
borði, mús og mögnuðu netspilun
arkerfi, og gat spilað alla venjulega
PCtölvuleiki á pappírnum. þrátt fyrir
fagrar fyrirætlanir komst tölvan aldrei
af teikniborðinu. útgáfudegi henn
ar var frestað ár eftir ár eftir ár, þar til
hætt var við hana um mitt síðasta ár.
nú til dags ber hana aðeins á nafn
þegar rætt er um misheppnuðustu
tæknifyrirbæri sögunnar.
TölvUleIkIR:
draugalEikjatölvan
sEm aldrEi kom út