Fréttablaðið - 05.07.2007, Page 20

Fréttablaðið - 05.07.2007, Page 20
20 5. júlí 2007 FIMMTUDAGUR hagur heimilanna „Verstu kaupin sem ég hef gert um ævina eru sennilega þegar ég keypti fyrsta bílinn minn. Þetta var pínu- lítill appelsínugul- ur Suzuki sem dó daginn eftir að ég keypti hann. Ég held meira að segja að ég hafi ekki náð einni ferð klakklaust á honum frá A til B,“ segir Elín Arna, ritstjóri Vik- unnar og tekur fram að þarna hafi ekki öll kurl verið komin til grafar enda var Suzukimartröðin ekki á enda eftir að bíllinn gaf upp öndina: „Best af öllu var að ég hafði náttúrlega ekki vit á því að taka númer- in strax af honum þar sem maður kann svo lítið á heiminn þegar maður er sautján ára. Ég endaði því á að þurfa að borga tryggingar af ónýtum bíl. Ég lærði þrennt af þessum kaup- um. Í fyrsta lagi borgar sig að taka ónýtan bíl af númerum, í öðru lagi segir liturinn ekki allt um bílinn og í þriðja lagi er ekki gáfulegt að rífast við starfsfólk sem vinnur hjá Ríkinu.“ Bestu kaupin segir Elín vera skókaup enda er hún mikil skóáhugamanneskja. „Bestu kaupin sem ég hef gert er að fjár- festa í tólf sentimetra háum hælaskóm frá Aldo sem gera mér kleift að horfast í augu við fólk án þess að fá hálsríg en þeir eru samt jafn þægilegir og Nike íþróttaskór. Ótrúlegt en satt.“ neytandinn: ElÍN ARNAR, RitStjÓRi VikuNNAR Liturinn segir ekki allt um bílinn NeyTeNDUR „Reglan er sú að ein- ungis Gullkorthafar í Vildarklúbb- num mega taka með sér gest í Saga Lounge-setustofu Icelandair. Hinum, sem hafa aðgang að setu- stofunni, er ekki heimilt að taka með sér gest þó um sé að ræða þeirra eigið barn,“ segir María Rún Hafliðadóttir, forstöðumaður þjónustudeildar Icelandair. Saga Lounge er sérstök setu- stofa í Leifsstöð þar sem öll aðstaða er hin þægilegasta fyrir þreytta ferðalanga. Þeir sem hafa aðgang að setustofunni eru meðal annars Saga Class-farþegar, Saga Gull- og Silfurkorthafar í Vildar- klúbbnum, Platínumkorthafar frá Visa tengd Vildarklúbbi Ice- landair og Viðskiptakorthafar frá Mastercard. „Ef maður ert með kort og á því stendur að maður hafi einn aðgang að setustofunni og megi ekki taka með sér gest þá flokkast barnið manns einnig sem gestur. Það stendur ekki til að breyta þessari reglu að svo stöddu.“ María segir börn velkomin í setustofuna sem gestir Gullkort- hafa í Vildarklúbbnum eða þau farþegar á Saga Class en hún segir að það sé alltaf að aukast að fólk bóki börn sín á Saga Class. María Rún bendir einnig á að venjulegur Saga Class-farþegi borgi hærri fargjöld en aðrir og er með því að leita eftir hvíld, ró og næði á ferðalagi sínu eins og allir aðrir sem sækja stofuna en þar er hægt að sitja í þægilegum sófum, horfa á sjónvarp, fara á internetið og fá sér hressingu.     larab@frettabladid.is Börn ekki velkomin í setustofu Börn korthafa sem hafa aðgang að Saga Lounge eru flokkuð sem gestir og fá ekki aðgang í setustofuna. „Stendur ekki til að breyta reglunni,“ segir forstöðu- maður þjónustudeildar Icelandair. Saga Lounge-SetuStofa iCeLandair  Enginn greinarmunur er gerður á fullorðnum gestum og börnum korthafa samkvæmt reglum icelandair. Hvers vegna ekki lægra verð? Á heimasíðu Neytendasamtakanna kemur fram að fjöl- margir hafi haft samband við Neytendasamtökin og kvart- að vegna þess að ferðskrifstofur lækka ekki verð hjá sér vegna styrkingar krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðl- um frá síðustu áramótum. Neytendasamtökin minna á að stór hluti af útgjöldum ferðaskrifstofa er í erlendri mynt og með því að lækka ekki verð eru ferðaskrifstofurnar að auka álagningu sína. n ferðaskrifstofur  n Sigríður Ásta Árnadóttir hönnuður veit alveg hvað á að gera við gömul dagblöð. „Það er algjört þjóð- ráð að pússa alla spegla og gler heim- ilisins með dagblöð- um. Þetta lærði ég af vinnufélaga mínum, 40 árum eldri, sem alltaf var sípússandi búðina þar sem við afgreiddum.“ Hún segir dagblaðapappírinn ekki skilja eftir ló á glerinu og segir prentsvert- una hafa undrakraft. „Samt er betra að láta síður sem eru alveg heilprentað- ar í lit eiga sig. Sérstaklega þykir mér gaman að nota íþróttasíðurnar í þetta því þær eru svo leiðinlegar,“ segir Sigríður Ásta. Góð húsRáð SpegLar og dagbLöð umhverfisvænir bílar ekki til kia Motors í Svíþjóð hefur verið bannað að markaðssetja Picanto Eco sem „um- hverfisvænan“. Þetta kemur fram á heimasíðu Neytendasamtakanna. umboðs- maður neytenda í Svíþjóð segir markaðssetninguna villandi þar sem bílar hafi í grunninn mjög slæm áhrif á umhverfið. kia Motors í Svíþjóð hefur í kjölfarið lofað að hætta við auglýsinguna. n bílar Veljið rétt Þegar sólarvörn er valin fyrir börn er mikilvægt að velja vörn sem er ætluð börnum. Hægt er að fá sólarvörn sem þolir vatn og jafnvel sand og einnig sólarvörn fyrir viðkvæma húð en börnum er hættara við að fá ofnæmi en fullorðnum. Nauð- synlegt er að bera á húðina hálftíma áður en farið er út í sól- ina og síðan á tveggja klukkustunda fresti þegar sólin skín. n Sólarvörn fyrir börn  > kíló af kjötfarsi á ári HEiMild: HAgStofA ÍSlANdS 2001 2002 2003 2004 2005 47 1 kr 45 8 kr 46 1 kr 45 3 kr 53 1 kr Ef þú kaupir Miele þvottavél eða þurrkara færðu kaupverðið endurgreitt með betri meðferð á þvottinum Íslenskt stjórnborð Ný og betri tromla Verð frá kr.106.600 Hreinn sparnaður 1. verðlaun í Þýskalandi W2241WPS Þurrkari T223 Verð frá kr. 78.540 heIlbRIGðIsMál Hægt er að fá ódýr lyf frá Svíþjóð með því að fara inn á vefsíðuna minlyf.net. Aðalsteinn Arnarson læknir heldur úti síð- unni. Á heimasíðu Neytendasamtak- anna kemur fram að landlæknir taki vel í þetta framtak. Hann bendir á að ástæðan fyrir háum lyfjakostnaði sé ekki síst sú að hér á landi vanti meiri samkeppni um verð á samheitalyfjum. Póstverslun með lyf á Íslandi er bönnuð og Aðalsteinn veit að hann er á gráu svæði. „Hins vegar má segja að aðilar hér á landi sendi lyf með pósti og er það þá ekki póst- verslun?“ spyr Aðalsteinn. „Einnig má senda lyf frá útlöndum og flytja inn sem einstaklingur. Má þá ekki senda vini sínum lyf? Það verður fróðlegt að sjá hvernig Lyfjastofn- un túlkar þetta.“ - pal Íslenskur læknir í Svíþjóð býður fram þjónustu sína: Lyf í pósti frá Svíþjóð b-vítamín og bit flugna- og skordýrabit eru þreytandi fylgifiskar sólarlandaferða. Moskító- bit eru sérlega pirrandi og algeng í röku loftslagi. til að fyrirbyggja mosk- ítóbit er meðal annars hægt að kaupa krem sem fæla fluguna frá og tæki sem stungið er í samband sem hefur sömuleiðis fælandi áhrif. Ef fólki er virkilega alvara er sigurstranglegt að byrja að taka inn B-vítamíntöflur eða fólinsýrutöflur mánuði fyrir brottför. Við það framkallar líkaminn ákveðna lykt sem flugan þolir ekki og hún velur einhvern annan en þig til að bíta. n flugur 

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.