Fréttablaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 5. júlí 2007 23
Urð og grjót - Upp í mót ...
göngu-
sumarsins
garpa
Fyrir
Meindl Island Pro GTX
Flokkun BC
„Einn sá allra besti“
Heil tunga og vandaður frágangur.
Ótrúlega léttir! Þyngd: 830g (stærð 42).
GTX vatnsvörn.
MFS fóður lagar sig að fætinum.
Vibram veltisóli með fjöðrun.
Sérlega góður stuðningur við ökklann.
Einnig fáanlegir í dömustærðum, bláir.
Verð24.990kr.
TNF Pinyon Mid GTX XCR
Flokkun A
Strigaskór á sterum!!
Gore Tex XCR vatnsvörn.
Súperléttur gönguskór í léttari notkun.
Nubuk leður og nylon.
Til í dömuútfærslu.
Verð13.990kr.
Meindl Vakuum GTX MF
NÝJUNG! MFS „passar betur“
Flokkun B
Nubuk leður.
Hár gúmmíkantur, meiri ending!
MFS fóður lagar sig að fætinum.
Gore Tex vatnsvörn.
Vibram sóli.
Verð22.990kr.
Meindl Main Mid GTX
Flokkun AB
Mjúkir léttir og þægilegir.
Nubuk leður.
Gore Tex vatnsvörn.
Þyngd: 520g (stærð 42).
Einnig til í dömuútfærslu.
Verð15.990 kr.
Meindl Colarado lady
Flokkun B
Nubuk leður.
Gore Tex vatnsvörn.
Multigriff sóli.
Þyngd: 750g (stærð 42).
Einnig til í herraútfærslu.
Tilboð17.990kr.
Verð áður 19.990 kr.
Meindl Air Revolution GTX
Flokkun B
Hönnun sem miðar að hámark öndun.
Ótrúlega léttir! Þyngd: 630g (st.37).
Gore Tex vatnsvörn.
Vibram veltisóli með fjöðrun.
Fáanlegir í dömu- og herraútfærslum.
Verð22.990kr.
Við skiptum skónum hjá okkur í flokka eftir því til hvaða notkunar þeir eru hugsaðir. A: Fyrir auðvelda göngu og daglega notkun • AB: Fyrir göngu á slóðum og láglendi • B: Fyrir lengri göngur og bakpokaferðalög • BC: Fyrir erfiðari göngur og fjallabrölt • C: Fyrir alpagöngur, kletta, ís og brodda
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
38
06
2
06
/0
7
Á heimasíðu Istorrent geta
netnotendur dreift tónlist,
kvikmyndum, sjónvarps-
þáttum og tölvuleikjum
að vild. Nánast allt efnið
er sett á vefinn án leyfis
höfundarrétthafa. Aðstand-
endur Istorrent taka nú við
peningagreiðslum gegn því
að viðkomandi fái að hala
niður meira af efni.
Síðastliðinn mánudag var haldin
svokölluð „deilimagnssala“ hjá
skráskiptasvæðinu Istorrent. Þar
var notendum síðunnar boðið að
borga 500 krónur og fá í staðinn
að hala niður
tíu gígabæt
um af gögn
um í gegnum
Istorrent.
Daginn eftir
höfðu tæp
lega fjögur
hundruð þús
und krónur
verið lagðar
inn á reikning
Svavars
Lúthers
sonar,
forsprakka
Istorrent.
„Við erum
ennþá að telja
styrkina, það
er mikið eftir,“ segir Svavar.
„Það er ekki hugmyndin að pen
ingurinn fari í minn vasa, en það
má búast við að hann fari í rekst
ur Istorrent og aðra tengda
hluti.“
Hann segir engan skatt greidd
an af fénu. „Þar sem Istorrent er
ekki að vinna í hagnaðarskyni þá
er peningurinn skattfrjáls. Ég
hringdi í Ríkisskattstjóra og þeir
virtust vera sammála mér í því.“
Aðspurður hvort honum finnist
ekkert athugavert við að selja
leyfi til að hala niður efni sem er
í langflestum tilfellum dreift á
ólöglegan hátt segir Svavar svo
ekki vera. „Við göngum út frá því
að þeir sem
senda inn efni
hafi til þess
leyfi þangað
til annað
kemur í ljós.“
Samtök
myndrétthafa
á Íslandi,
Smáís, hafa
lengi haft
horn í síðu
Istorrent,
enda segja
þeir höfund
arréttarbrot
stunduð dag
lega á síðunni.
Snæbjörn
Steingrímsson, framkvæmda
stjóri Smáíss, segir ljóst að lög
brot Svavars séu komin á annað
stig sé hann farinn að selja deili
magn á síðunni fyrir pening.
„Ef starfsemin er í hagnaðar
skyni þá horfir málið öðruvísi
við. Það er bara tímaspursmál
hvenær lögreglan fer að rann
saka þetta,“ segir hann. „Við
skiljum sjálfir lítið í aðgerða
leysi yfirvalda, en það er mann
ekla hjá þeim og mikið að gera.“
„Þegar menn eru farnir að
reyna að hafa tekjur af athæfi
sem er síðan dæmt lögbrot þá
gerir það málið alvarlegra,“ segir
Björn Þorvaldsson, saksóknari
efnahagsbrota hjá Ríkislögreglu
stjóra. „Það er þá oftast metið til
refsiþyngingar fyrir dómstól
um.“
salvar@frettabladid.is
Græða á höfundarréttarbrotum
niðurhalNotendur Istorrent eru nú orðnir yfir tuttugu þúsund. Þeir geta halað
niður bíómyndum, geisladiskum og öðru höfundarréttarvörðu efni án þess að greiða
fyrir það krónu. Stjórnendur síðunnar hafa þó fengið töluvert fé frá notendum .
SvavarlútherS-
Son,Stofnandi
iStorrent
SnæbjörnStein-
grímSSon,fram-
kvæmdaStjóri
SmáíSS
víSindaheimurinn
efastumloftslagsbreytingar
56 prósent Breta telja að vísinda-
menn deili enn um hvort loftslagið
sé að breytast af völdum mannsins.
Þetta eru niðurstöður könnunar sem
rannsóknarfyrirtækið Ipsos Mori gerði
í Bretlandi í júní. Varaforseti breska
vísindasamfélagsins sagði almenning
hafa látið blekkjast af fólki sem af-
skræmir vísindin.
júpíterhefurfataskipti
Rendur á yfirborði Júpít-
ers eru að breytast. Hvít
svæði eru orðin brún
og þau brúnu eru að
lýsast upp. Vísinda-
menn telja árstíða-
skipti vera orsaka-
valdinn, en eitt Júp-
íterár jafnast á við tólf
jarðarár.
Sviffuglmeðsjömetra
vænghaf
Stærsti fugl sem nokkurn tímann
hefur flogið um himininn var að
öllum líkindum eins konar sviffugl. Í
stað þess að blaka vængjunum eins
og venjulegir fuglar stökk hann fram
af klettum eins og svifflugmaður til
að komast á loft. Hópur bandarískra
vísindamanna hefur rannsakað flug-
hætti fuglsins, sem flaug yfir Argent-
ínu fyrir sex milljón árum.
atlantisfærfarheim
Geimskutlan Atlantis flaug frá lend-
ingarstað sínum í Kaliforníu til Kenn-
edy-geimstöðvarinnar í Flórída í fyrra-
dag. Hún flaug þó ekki ein, heldur
fékk far ofan á þaki Boeng 747-flug-
vélar.
gætifættsystursína
Kanadísk móðir hefur látið frysta egg
úr sér til að sjö ára dóttir hennar geti
notað þau í framtíðinni. Dóttirin, Fla-
vie Boivin, getur ekki eignast börn
vegna meðfædds sjúkdóms. Noti hún
egg móður sinnar mun hún eignast
barn sem er líka hálfsystkini hennar.
Finreactor var finnsk torrent-síða
sem svipaði til hinnar íslensku Is-
torrent. Notendafjöldi var á svipuð-
um skala og hlutverk síðunnar það
sama. Árið 2004 gerði finnska lög-
reglan húsleit hjá stjórnendum síð-
unnar og voru þeir kærðir fyrir brot
á höfundarréttarlögum. Í lok síðasta
árs féll dómurinn: Samtals þurfti 21
maður að greiða um fjörutíu millj-
ónir í sekt.
Snæbjörn Steingrímsson, fram-
kvæmdastjóri Smáíss, segist von-
ast eftir svipuðum dómi í máli Istor-
rents. „Menn verða að vera ábyrgir
fyrir því sem þeir gera.“
Svavar Lúthersson, stofnandi Istor-
rent, segist sjálfur ekki hafa áhyggj-
ur. „Mér finnst mjög hæpið að nota
þennan dóm sem einhvers konar
samanburð. Lögin eru öðruvísi,
dómshefðir eru öðruvísi og aðstæð-
ur eru öðruvísi. Ef vefurinn verður
dæmdur ólöglegur er ekki þar með
sagt að það verði einhverjar milljón-
ir í sekt.“
milljónaSektífinnlandi