Fréttablaðið - 05.07.2007, Page 24
24 5. júlí 2007 FIMMTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
Vöruskiptahalli nam 37,2 milljörð
um króna fyrstu sex mánuði árs og
hefur minnkað um tæpan helming
frá því í fyrra, samkvæmt bráða
birgðatölum frá Hagstofu Íslands.
Á sama tímabili í fyrra var vöru
skiptajöfnuður óhagstæður um
74,7 milljarða króna.
Fram kemur á vefsíðu greining
ar Glitnis að verulega hafi dregið
úr halla á vöruskiptum það sem af
er ári. Jón Bjarki Bengtsson, sér
fræðingur hjá greiningu Glitn
is, telur samdrátt í innflutningi á
fjárfestingavörum og aukinn út
flutning hafa átt stærstan þátt í
minnkandi vöruskiptahalla „Sam
dráttur í innflutningi var viðbúinn
enda verið að klára stóriðjufram
kvæmdir fyrir austan og í Hval
firði, sem hefur síðan í för með
sér aukinn útflutning. Við þetta
bættist að í vetur dró úr þessum
sveiflukenndustu liðum neyslu
innflutnings, til að mynda inn
flutningi á bílum, heimilistækjum
og raftækjum.“
Sá hraði viðsnúningur sem varð
í upphafi árs gaf þó ranga mynd af
raunverulegri þróun að mati Jóns
Bjarka. „Batinn varð óvenju hrað
ur á fyrstu mánuðum ársins. Þær
tölur áttu sér hins vegar ekki alveg
rætur í raunverulegum vöruflutn
ingum. Til að mynda keypti Avion
Group nokkrar flugvélar undir
lok síðasta árs og seldi þær síðan
strax aftur í ársbyrjun. Enn og
aftur rekum við okkur á það að í
okkar pínulitla hagkerfi þarf svo
lítið til að hagtölur skekkist.“
Útflutningur í júní nam 20,1
milljarði íslenskra króna, en inn
flutningur 29,7 milljörðum. Í fyrra
nam vöruskiptahallinn í júní 15,4
milljörðum króna.
Nokkurt bakslag hefur orðið
í þróun vöruskiptahallans, sem
minnkaði snögglega í upphafi árs.
Jón Bjarki segir hluta skýringar
innar liggja í því að útflutningur
á áli hefur ekki aukist jafn hratt
og búist var við eftir að álvers
framkvæmdum lauk í Hvalfirði
„Stækkun álversins í Hvalfirði
virðist ekki hafa skilað sér að fullu
í útflutningstölunum. Síðan hefur
aftur komið kippur í bílainnflutn
ing. Maður þarf heldur ekki annað
en að taka smá rúnt um bæinn til
að sjá að það er stuð á neytand
anum. Aðstæður heimilana eru
enda mjög góðar.“ jsk@frettabladid.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 602
8.541 +1,% Velta: 18.191 milljónir
HLUtAbréF Í úrVALSVÍSitÖLU: Actavis 89,60 0,00% ... Atorka
8,63 +0,82% ... Bakkavör 69,50 +0,58% ... Eimskipafélagið 40,10
+0,25%... Exista 35,90 +3,61 ... FL Group 30,05 +0,50% ... Glitnir
28,90 +0,00% ... Kaupþing 1.190 +2,85% ... Icelandair Group 28,95
+3.21 ... Landsbankinn 39,20 +1,42% ... Marel 75,70 -0,26% ... Mosa-
ic Fashions 17,00 -0,58% ... Straumur-Burðarás 22,20 1,60% ... Teymi
5,25 ... Össur 106,50 +0,00%
MESTA hæKKUn
EXiStA 3,61%
iCELANDAir GrOUP 3,21%
KAUPtHiNG bANK 2,85%
MESTA LæKKUn
MOSAiC FASHiON 0,58%
Ekki er búist við að Seðlabanki
Íslands breyti stýrivöxtum bank
ans úr 13,3 prósentum, en bank
inn kynnir ákvörðun sína núna
í morgunsárið. Fyrri framsetn
ing hljóðaði reyndar upp á 14,25
prósent, en niðurstaðan er þó sú
sama því nú eru birtir nafnvextir
í stað ávöxtunar á ári áður.
Greinendur efnahagsmála
búast þó við allhörðum tóni frá
bankanum vegna vísbendinga um
aukna einkaneyslu á vordögum
auk þess sem velta á fasteigna
markaði hefur verið heldur meiri
en bankinn gerði ráð fyrir.
Í Markaðnum í gær kemur
fram í máli Ásgeirs Jónssonar
forstöðumanns greiningardeild
ar Kaupþings að 80 prósenta þak
á útlán Íbúðalánasjóðs og vænt
ur niðurskurður í aflaheimildum
samkvæmt ráðleggingum Haf
rannsóknastofnunar hafi að lík
indum ekki áhrif á vaxtaákvarð
anir bankans fyrsta kastið, en
þensluhemjandi áhrif aðgerðanna
gætu þó orðið til þess að vextir
lækki hraðar eftir að vaxtalækk
unarferli bankans hefst. Grein
endur spá því flestir að það gæti
orðið í nóvember. - óká
Litlar líkur sagðar á
breyttum vöxtum
Stjórn Seðlabanka Íslands ákveður stýrivexti í dag.
Í SAL SEðLAbANKANS Arnór Sighvatsson aðalhagfræðingur, Ingimundur Friðriksson,
Eiríkur Guðnason og Davíð Oddsson bankastjórar Seðlabanka Íslands. FréTTABLAðIð/GVA
MArKAðSPUNKtAr
Matsfyrirtækið Fitch hefur uppfært
lánshæfiseinkunnir Singer & Friedland-
er, banka Kaupþings í Bretlandi.
Stuðningseinkunn bankans stendur í
tveimur en bankinn fær langtímaein-
kunnina A en skammtímaeinkunnina
F1. horfur eru stöðugar.
Samkeppnisyfirvöld ESB hafa dæmt
spænska símafyrirtækið Telefonica til
að greiða jafnvirði 12,8 milljarða króna
í sekt vegna samkeppnishamlandi
brota. Þetta er hæsta greiðsla í Evrópu
af þessum toga.
Gengi bréfa í bandaríska félaginu
AMr hefur hækkað um ellefu prósent
á rúmum hálfum mánuði og stóð í
28,36 dölum á hlut á þriðjudag. Grein-
ing Glitnis segir um 8,5 prósenta hlut
FL Group í félaginu nema 36 milljörð-
um króna.
Hallinn helmingi
minni en í fyrra
Vöruskiptahallinn minnkaði um helming fyrstu sex mán-
uði árs. Flugvélainnflutningur skekkti myndina í upphafi
árs að sögn sérfræðings Glitnis.
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur
komist að þeirri niðurstöðu í kjöl
far úttektar að umgjörð um reglu
vörslu NordVest Verðbréfa hf. hafi
verið ófullnægjandi.
FME gerir alvarlegar athuga
semdir við að tilnefning regluvarð
ar hafi ekki verið staðfest af stjórn
og að ekki hafi verið haldin skrá
um viðskipti starfsmanna.
Gagnrýnt er að ekki var sérstak
lega haldið utan um viðskipti starfs
manna og stjórnenda og verið dæmi
þess að starfsmenn seldu hluta
bréf sama dag og þau voru keypt.
Þá gerði FME athugasemdir um að
greiningu starfssviða og að starfs
menn störfuðu samtímis á fleiri
en einu starfssviði. Þá var fundið
að því að skorti á svokallaða kína
múra milli ólíkra starfssviða. - jab
Vilja úrbætur hjá NordVest
Góðir viðskiptahættir Milestone
nefnd á vegum Sænsku kauphallar-
innar hefur úrskurðað að racon
holdings, sænskt dótturfélag Mile-
stone, hafi að öllu leyti fylgt yfir-
tökureglum og góðum viðskipta-
háttum við yfirtöku á sænska
tryggingarfélaginu Invik. nokkr-
ir stórir fjárfestingar- og lífeyris-
sjóðir í Svíþjóð voru ekki á eitt
sáttir við það verð sem Mile-
stone bauð og sendu því
erindi til nefndarinnar.
Sjóðirnir mótmæltu því
að tíu prósentum hærra
verð væri greitt fyrir A-
hlutabréf Inviks sem bera
meiri atkvæðisrétt en B-
bréf og töldu fyrirkomu-
lagið brjóta gegn góðum
viðskiptaháttum. Milestone lagði í vor fram ríf-
lega sjötíu milljarða tilboð í Invik. Ekkert er
því lengur til fyrirstöðu að Milestone afskrái
félagið úr Kauphöllinni í Stokkhólmi.
blacstone kaupir Hilton
Bandaríska fjárfestingarfélagið Black-
stone, sem skráð var á markað vestan-
hafs fyrir um hálfum mánuði, hefur keypt
hilton-hótelkeðjuna, eina af stærstu hótel-
keðjum í heimi. Kaupverð nemur 26 milljörð-
um dala, jafnvirði heilla 1.615 milljarða ís-
lenskra króna. Greitt verður fyrir keðj-
una í reiðufé.
Kaupverð á hlut nemur 47,5 dölum
en það er 32 prósentum yfir loka-
gengi bréfa í keðjunni á þriðjudag
þegar tilboðið var lagt fram.
Gert er ráð fyrir því að viðskiptunum
ljúki í árslok.
Peningaskápurinn...
Þann 22. júní 2007 gerðu F-Capital ehf.,
Kaupþing banki hf., Gnúpur fjárfestingafélag
hf., Kevin Stanford, Karen Millen, Millen Life
Interest Settlement, Don M Limited, Donald
McCarthy, Tessera Holding ehf. og tilteknir
stjórnendur Mosaic Fashions hf. með sér
samkomulag um stjórnun og rekstur Mosaic
Fashions hf. Þessir aðilar eiga samtals
64,4% af útgefnu hlutafé í Mosaic Fashions
hf. og ráða yfir sama hlutfalli af atkvæðisrétti í
félaginu. Samkvæmt 37. gr. laga nr. 33/2003
um verðbréfaviðskipti hefur samkomulag
aðilanna í för með sér skyldu til þess að
gera öðrum hluthöfum yfirtökutilboð, þ.e.a.s.
tilboð um að kaupa hluti þeirra í félaginu.
Tilboðshafar
Tilboðið tekur til allra hluta í Mosaic Fashions
hf. sem ekki eru í eigu samstarfsaðilanna á
þeim degi sem tilboðið er sett fram. Hluthafar
sem skráðir eru í hlutaskrá Mosaic Fashions
hf. við lokun viðskipta þriðjudaginn 3. júlí
2007 munu fá sent tilboðsyfirlit, samþykkis-
eyðublað og svarsendingarumslag.
Framangreind gögn er einnig hægt að nálgast
hjá fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings banka hf.,
Borgartúni 19, Reykjavík. Tilboðsyfirlitið er
auk þess hægt að nálgast á vefsíðu bank-
ans (http://www.kaupthing.is) og í fréttakerfi
OMX Norrænu kauphallarinnar Íslandi (http://
www.omxgroup.com/nordicexchange).
Umsjónaraðili
Fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings banka hf. hefur
umsjón með yfirtökutilboðinu fyrir hönd
tilboðsgjafans. Nánari upplýsingar veita ráð-
gjafar bankans í síma 444-7000.
Tilboðsverð
Verð samkvæmt tilboðinu er 17,5 krónur
fyrir hvern hlut, kvaða- og veðbandalausan.
Tilboðsgjafinn og samstarfsaðilarnir hafa
ekki greitt hærra verð fyrir hlutafé í Mosaic
Fashions hf. á síðustu 6 mánuðum áður en
tilboðið er sett fram.
Gildistími tilboðs
Tilboðið gildir frá kl. 9 árdegis mánudaginn
9. júlí 2007 til kl. 4 síðdegis þriðjudaginn 7.
ágúst 2007. Verður samþykki að hafa borist
umsjónaraðila fyrir lok gildistímans.
Afskráning
Í kjölfar yfirtökutilboðsins munu tilboðsgjaf-
inn og samstarfsaðilarnir fara fram á það
við stjórn Mosaic Fashions hf. að hlutabréf
félagsins verði afskráð úr OMX Norrænu
kauphöllinni Íslandi.
Yfirtökutilboð
til hluthafa
í Mosaic Fashions hf.
Tessera Holding ehf.
býðst til að kaupa hlutabréf þín
í Mosaic Fashions hf.