Fréttablaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 47
FIMMTUDAGUR 5. júlí 2007
Hamingjudagar skella á í Gallery
Turpentine í eftirmiðdaginn þegar
Guðrún Vera Hjartardóttir mynd-
listarkona opnar þar sýningu. Guð-
rún segist hafa smíðað sýninguna
inn í rýmið á Ingólfsstrætinu þar
sem Turpentine er til húsa. Verkin
eru fjögur og passa inn: „Þau eru
öll í stærri kantinum,“ segir Guð-
rún. Guðrún Vera hélt síðast sýn-
ingu á Íslandi í lok ársins 2005, þá
í Listasafni Reykjavíkur – Hafnar-
húsi. Sú sýning hét „Velkomin(n)
til mannheima“ og túlkaði m.a.
fæðingu og fyrstu skref mannsins
í gleymskunni eftir að hann var
gerður brottrækur frá Paradís. Í
Hamingjudögum skoðar listakon-
an hins vegar mannlegar fýsnir
og freistingar, s.s. lygi, græðgi eða
hvers kyns ofneyslu sem ætlað er
að fylla upp í tómleika. Verk hennar
hafa um langt skeið verið bernsk-
ar mannverur úr leir í hvítu rými,
einmanakennd hefur svifið yfir
vötnum í sköpun listakonunnar en
nú segist hún stigin til jarðar og
komin í mannheima. Verkin fjög-
ur eru unnin með blandaðri tækni,
mest í leir en fleiri efni koma til.
Nú eru verur hennar komnar í
föt. Grunnur verkanna er unninn
í plastleir: „Svona eins og krakkar
eru með á leikskólum,“ segir lista-
konan. Efnið er bæði þjált í mótun
og hefur mjúka áferð þegar það
harðnar, þótt steypa verði gler-
hjálmi yfir sum eldri verka hennar
til að hlífa þeim við meiðslum. Hún
segist hafa byrjað með tvo póla við
undirbúning sýningarinnar: hung-
ur og græðgi. Græðgin hafi unnið
á í fyrirferð í vinnslunni. Hungr-
ið þorrið, enda ekki eins sjáanlegt
og græðgin.
Yfirskriftin er fengin að láni
frá samnefndu leikriti Samuels
Becketts. Þar sagði af hinni sælu
frú sem sat í stórum sandbing og
sökk æ dýpra í hauginn uns haus-
inn einn stóð upp úr. Guðrún seg-
ist ekki vera móralisti þótt lestir
mannsins og fýsnir hafi att henni
af stað í undirbúningi Hamingju-
daga: „Ég er bara manneskja,“
segir hún og trúir á siðferðiskennd
mannsins.
Sýningin stendur til 22. júlí.
Hamingjudagar
Myndlist Guðrún Vera Hjartardóttir
myndlistarkona. Ljósmynd/ViLHeLm
Myndlist Fitan flæðir yfir mótið. einn
skúlptúra Guðrúnar Veru á sýningu
hennar í Gallery Turpentine sem hún
opnar á morgun.
Ljósmynd/Guðrún Vera. BirT með GóðFúsLeGu LeyFi
LisTamannsins oG GaLLery TurpenTine
NASA – ÞAR SEM ÍSLENSKUM HOMMUM
OG LESBÍUM FINNST SKEMMTILEGAST
AÐ DJAMMA.
PRIDE
DJ
PÁLL
ÓSKAR
STJÓRNAR STUÐINU
BÆÐI KVÖLDIN
OG TREÐUR UPP
ÁSAMT FLEIRUM.
GAY
STYRKTARBALL 07.07.’07
HÚSIÐ OPNAR KL. 23.00
ALDURSTAKMARK 20 ÁRA
MIÐAVERÐ:1000 KR.