Fréttablaðið - 05.07.2007, Page 47

Fréttablaðið - 05.07.2007, Page 47
FIMMTUDAGUR 5. júlí 2007 Hamingjudagar skella á í Gallery Turpentine í eftirmiðdaginn þegar Guðrún Vera Hjartardóttir mynd- listarkona opnar þar sýningu. Guð- rún segist hafa smíðað sýninguna inn í rýmið á Ingólfsstrætinu þar sem Turpentine er til húsa. Verkin eru fjögur og passa inn: „Þau eru öll í stærri kantinum,“ segir Guð- rún. Guðrún Vera hélt síðast sýn- ingu á Íslandi í lok ársins 2005, þá í Listasafni Reykjavíkur – Hafnar- húsi. Sú sýning hét „Velkomin(n) til mannheima“ og túlkaði m.a. fæðingu og fyrstu skref mannsins í gleymskunni eftir að hann var gerður brottrækur frá Paradís. Í Hamingjudögum skoðar listakon- an hins vegar mannlegar fýsnir og freistingar, s.s. lygi, græðgi eða hvers kyns ofneyslu sem ætlað er að fylla upp í tómleika. Verk hennar hafa um langt skeið verið bernsk- ar mannverur úr leir í hvítu rými, einmanakennd hefur svifið yfir vötnum í sköpun listakonunnar en nú segist hún stigin til jarðar og komin í mannheima. Verkin fjög- ur eru unnin með blandaðri tækni, mest í leir en fleiri efni koma til. Nú eru verur hennar komnar í föt. Grunnur verkanna er unninn í plastleir: „Svona eins og krakkar eru með á leikskólum,“ segir lista- konan. Efnið er bæði þjált í mótun og hefur mjúka áferð þegar það harðnar, þótt steypa verði gler- hjálmi yfir sum eldri verka hennar til að hlífa þeim við meiðslum. Hún segist hafa byrjað með tvo póla við undirbúning sýningarinnar: hung- ur og græðgi. Græðgin hafi unnið á í fyrirferð í vinnslunni. Hungr- ið þorrið, enda ekki eins sjáanlegt og græðgin. Yfirskriftin er fengin að láni frá samnefndu leikriti Samuels Becketts. Þar sagði af hinni sælu frú sem sat í stórum sandbing og sökk æ dýpra í hauginn uns haus- inn einn stóð upp úr. Guðrún seg- ist ekki vera móralisti þótt lestir mannsins og fýsnir hafi att henni af stað í undirbúningi Hamingju- daga: „Ég er bara manneskja,“ segir hún og trúir á siðferðiskennd mannsins. Sýningin stendur til 22. júlí. Hamingjudagar Myndlist Guðrún Vera Hjartardóttir myndlistarkona. Ljósmynd/ViLHeLm Myndlist Fitan flæðir yfir mótið. einn skúlptúra Guðrúnar Veru á sýningu hennar í Gallery Turpentine sem hún opnar á morgun. Ljósmynd/Guðrún Vera. BirT með GóðFúsLeGu LeyFi LisTamannsins oG GaLLery TurpenTine NASA – ÞAR SEM ÍSLENSKUM HOMMUM OG LESBÍUM FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA. PRIDE DJ PÁLL ÓSKAR STJÓRNAR STUÐINU BÆÐI KVÖLDIN OG TREÐUR UPP ÁSAMT FLEIRUM. GAY STYRKTARBALL 07.07.’07 HÚSIÐ OPNAR KL. 23.00 ALDURSTAKMARK 20 ÁRA MIÐAVERÐ:1000 KR.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.