Fréttablaðið - 05.07.2007, Page 48
36 5. júlí 2007 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Hvaða mynd sástu síðast í bíó? Það er
orðið allt of langt síðan ég fór í bíó, en
Borat var síðasta kvikmyndin sem ég sá.
Húmorinn náði út yfir öll siðferðileg mörk
og gekk ítrekað fram af mér, en ég hafði
samt mjög gaman af.
Hvaða mynd sástu síðast á myndbandi?
Ég sá hina sígildu Footloose með Kevin
Bacon í aðalhlutverki. Myndin var góð
skemmtun, en um leið pínulítið hallæris-
leg þar sem árin eru farin að telja síðan hún
kom út. Myndin gengur út á baráttu ungs
fólks gegn forræðishyggju þar sem dans
og rokk er bannað af yfirvöldum, sem er í
rauninni ekki fjarri raunveruleikanum sem
við búum við í dag þar sem stjórnvöld telja
ýmsar lausnir felast í boðum og bönnum.
Hvaða kvikmynd hefur haft mest áhrif á
þig? Schindlers List hafði á sínum tíma gríð-
arlega sterk áhrif á mig.
Hefur þú grátið í bíó? Já ég verð að viður-
kenna það, en ég man einungis eftir tveim-
ur skiptum – annars vegar yfir myndinni
Titanic og hins vegar Moulin Rouge.
Uppáhalds íslenska persónan: Páll
sem Ingvar Sigurðsson túlkaði svo vel í
kvikmyndinni Englar alheimsins.
Mesta kvikmyndastjarna allra tíma:
Sean Connery hefur staðist tím-
ans tönn.
Mesta hetja hvíta tjaldsins: Mel
Gibson í Braveheart.
Mesti skúrkurinn: Túlkun Cristi-
ans Bale á geðsjúklinginum
Patrick Bateman í American
Psycho gaf orðinu skúrkur nýja merkingu.
Hver er versta kvikmynd sem þú hefur
séð? Það eru nokkrar myndir sem maður
hefur hreinlega séð eftir að hafa eytt
tíma í að horfa á. Gigli með Ben
Affleck og Jennifer Lopez er með
þeim verri.
Ef þú fengir að velja þér kvik-
mynd til að leika í, hvern-
ig væri söguþráðurinn,
hver væri leikstjóri og hver
myndi leika á móti þér?
Quentin Tarantino yrði leik-
stjóri í spennumynd sem
gerðist í Suður-Afríku um
Tarsan og Jane sem ég og
Morgan Freeman myndum
taka að okkur að leika.
kvikMyndanjörðUrinn Erla Ósk ásgEirsdÓttir forMaðUr HEiMdalls
Schindlers List hafði gríðarlega sterk áhrif
Kvikmyndin Evan Almighty
var frumsýnd í gær en
hún er sjálfstætt framhald
Bruce Almighty sem sló í
gegn fyrir fjórum árum.
Þá fékk Jim Carrey að vera
Guð en að þessu sinni er
það Steve Carell sem fær
skemmtilegt hlutverk hjá
almættinu.
Evan Baxter var fréttamaðurinn
sem fékk að finna fyrir óþrjótandi
valdi hins hégómagjarna Bruce.
En margt hefur breyst síðan þá,
Evan er hættur í fjölmiðlum og
hefur verið kosinn á þing í Wash-
ington. Hann flytur því með alla
fjölskyldu sína til höfuðborgar-
innar og hlakkar til að geta þjónað
bæði landi og þjóð. En þá kemur til
kasta Guðs sem hefur allt annað
í hyggju. Hann nálgast Evan og
biður þingmanninn um að byggja
örk, svipaða og Nói gerði forðum
daga. Enda sé mikið flóð í vænd-
um og því þurfi að bjarga mann-
kyninu frá glötun. Eða að minnsta
kosti íbúum höfuðborgarinnar.
Eflaust væri hægt að halda
langar ræður um hvað höfundur-
inn Steve Oedekerk hefur haft í
huga þegar honum datt í hug að
láta manninn vera Guð. Og svo að
hann yrði nánasti samstarfs-
maður hans í nútímanum.
En það er eflaust engin til-
viljun að Nói skuli koma til
höfuðborgarinnar og eigi að
smíða örk til að bjarga
mannslífum og dýrum.
Stjórnvöld þar
í borg hafa
verið harðlega
gagnrýnd bæði
innanlands og er-
lendis og þá hefur forset-
inn George W. Bush verið
duglegur við afla sér óvina
og nýtur sífellt meiri óvin-
sælda heima fyrir en
hann er sem kunnugt er
mjög trúaður.
Kristnir trúarflokk-
ar hafa á hinn bóginn
tekið Evan Almighty
opnum örmum en
bókstafstrúarmenn eru áhrifa-
mikill minnihlutahópur þar í
landi. Þeir telja
myndina vel til
þess fólgna að
skerpa aðeins á
trúnni og kristnu
líferni.
En gagnrýn-
endur hafa ekki
verið hrifnir af
þessu nýjasta
útspili Steves
Carell og Oede-
kerks og dómar
um myndina
eru ekki í sam-
ræmi við vænt-
ingar og vonir framleiðend-
anna. Carell hefur hingað til
verið talinn ein skærasta
stjarna bandarísk gam-
anleiks og
bera vin-
sældir
bandarísku út-
gáfunnar The Off-
ice þess glögg merki.
Að ógleymdri Óskars-
verðlaunamyndinni
Little Miss Sunshine.
Evan Almighty átti í
reynd að steypa Jim
Carrey endanlega af
stóli sem fyndnasta
manni Bandaríkj-
anna.
Helstu
bíórýnar Bandaríkjanna hafa jafn-
vel margir gengið svo langt segja
að ef Evan Alm-
ighty væri ekki
svona mein-
laus þá kæmi
hún sterk-
lega til greina
sem versta
mynd sumars-
ins. Handrit-
ið sé því miður
veikt og mis-
takist að nýta
sér alla þær
Biblíutilvísanir
sem hefði verið
hægt að útfæra
listilega. Washington hafi verið
miðdepill pólitískra mistaka und-
anfarin ár og nægi þar að minnast
á Íraksstríðið umdeilda og aðgerð-
arleysi stjórnvalda þegar fellibyl-
urinn Katrína gekk yfir New Or-
leans og orsakaði ein mestu flóð í
sögu Bandaríkjanna. Þetta hefði
myndin getað nýtt sér með sög-
unni af Nóa sem forðaði hinum
sanntrúuðu frá glötun eftir að
mannkynið hafði reitt Guð sjálf-
an til reiði.
Evan Almigthy virðist því ekki
vera sá hápunktur sem vonast
hafði verið til fyrir feril Carells
en stjarna hans ætti þó að kom-
ast ólöskuð frá borði. En toppn-
um verður eflaust náð fyrr held-
ur en síðar.
Dagurinn sem þú hittir Guð
Ekki svo alMáttUgUr Evan Baxter virðist ekki ná að fylgja eftir gríðarlegri hylli
Bruce Nolan fyrir fjórum árum.
Gagnrýnandi kvikmyndabiblíunnar Variety fer fögr-
um orðum um kvikmyndina Mýrina eftir Baltasar
Kormák en hún var frumsýnd á Karlovy Vary-kvik-
myndahátíðinni í Tékklandi á sunnudaginn. Segir
Eddie Crockrell að myndin eigi eflaust eftir að vekja
mikla athygli, hún höfði til margra og eigi vafalít-
ið eftir að gera góða hluti á kvikmyndahátíðum úti
um allan heim. Þá hrósar hann sérstaklega tæknilegu
hliðinni.
Tékkneska vefsíðan blisty.cz sparar hins vegar ekki
stóru orðin og segir þetta vera eina bestu mynd leik-
stjórans Baltasars. Hann sýni einstaka hæfileika til
að blanda saman lífi, listum og skemmtun í eina heild
sem sé hreint út sagt frábær. Baltasar er hlaðinn lofi
í gagnrýninni og Mýrin fær fullt hús stiga. Hún er
sögð uppfylla öll þau skilyrði sem breskar sakamála-
myndir setji og það sé í raun sorglegt hversu lítið sjá-
ist til hreinræktaðra sakamálamynda á borð við Mýr-
ina.
Mýrin sló eftirminnilega í gegn hér á landi og sló
gjörsamlega öll met í aðsókn. Myndin segir frá rann-
sóknarlögreglumanninum Erlendi sem rannsakar
dularfullt morð á barnaníðingi. Með aðalhlutverkin
fara þau Ingvar E. Sigurðsson, Atli Rafn Sigurðarson
og Ágústa Eva Erlendsdóttir. Myndin er byggð á sam-
nefndri bók Arnaldar Indriðarsonar.
Tékkar mjög hrifnir af Mýrinni
Mýrin Gagnrýnandi Variety segir Mýrina vera fína mynd en
vefsíðan blisty.cz hrósar henni í hástert.
Bandaríski leikstjórinn Woody
Allen er byrjaður að sópa til sín
leikurum fyrir sína næstu mynd.
Meðal þeirra sem þegar hafa
verið ráðnir eru Javier Bardem
og Penelope Cruz og nýlega bætt-
ist Patricia Clarkson í hópinn.
Fyrir þessari þrenningu fer síðan
auðvitað Scarlett Johansson sem
Allen virðist vera hugfangin af.
Woody hefur hingað til verið
þekktastur fyrir að nýta sér um-
hverfi Manhattan og er raunar
meinilla við að fara út fyrir land-
steinana. En hann hefur á undan-
förnum árum verið að færa sig út
fyrir landsteina og borið það fyrir
sig að bandarískum kvikmynda-
iðnaði sé meinilla við myndir sem
ekki skili gróða. Þannig hafa þrjár
síðustu myndir hans, Match Point,
Scoop og Cassandra‘s Dream að
mestu leyti verið framleiddar í
Bretlandi og teknar þar upp.
Bretar virðist vera jafn hrifn-
ir af Allen og sveitungar leik-
stjórans í New York en sömu
sögu er ekki að segja um aðra
íbúa Bandaríkjanna. Allen
hefur ekki farið leynt með
andúð sína á Hollywood og
þeirri peningamaskínu sem
þar virðist ráða ríkjum. Og
til marks um það hefur leik-
stjórinn aðeins einu sinni
mætt til að vera viðstaddur
Óskarsverðlaunaafhend-
inguna en það var árið 2002
þegar kvikmyndaakadem-
ían minntist fórnarlamba
hryðjuverkanna í New
York.
Sögusviðið að þessu sinni
hjá Allen er hins vegar
hvorki Manhattan né
London heldur heimaborg
Eiðs Smára Guðjohnsen,
Barcelona, en Allen virð-
ist vera ástfanginn af þessari
höfuðborg Katalóníuhéraðs-
ins. „Þetta á að vera ástarbréf
til borgarinnar og vonandi næ
ég að fanga anda borgarinn-
ar á sama hátt og ég hef gert
með Manhattan,“ sagði Allen
á blaðamannafundi nýlega.
Ekki hefur verið upplýst
hver söguþráðurinn er
en blaðamenn Empire
leika sér með hugsan-
legt handrit og skrifa á
heimasíðu tímaritsins
að hún verði að öllum
líkindum um ljóta
karlmenn sem fara á
stefnumót með stúlk-
um sem eru sex sinn-
um fallegri en þeir.
„Og að öllum líkind-
um verður hinn víð-
frægi Gaudí-garð-
ur notaður á svipað-
an hátt og Central
Park.“ Áætlað er að
tökur hefjist 9. júlí
og því verði hún í Ósk-
arskapphlaupinu.
Allen gerir Barce-
lona að Manhattan
Woody allEn Hyggst færa sig yfir til
Spánar og gerir mynd í Barcelona.
joHansson Ein örfárra ungl-
ingsstjarna sem halda sínu striki
í Hollywood.
fUglaMErgð Evan Baxter er hundeltur
af dýrum í myndinni.
BrUcE
alMigHty
Jim Carrey
fékk að
vera Guð
og nýtti
sér það til
fullnustu.
> GoTT Gláp
die Hard 4.0: Bruce Willis snýr aftur í hlutverk
John McClane í ágætri hasarmynd sem líður
fyrir lélegt illmenni.
apocalypto: Þrekvirki Mels Gibson er komið
á leigurnar og er forvitnilegt fyrir þær sakir að
sumir hafa séð gyðingahatur út úr myndinni
þrátt fyrir að hún fjalli um indjána.