Fréttablaðið - 05.07.2007, Page 50
38 5. júlí 2007 FIMMTUDAGUR
maturogvin@frettabladid.is
Jón Brynjar Birgisson er
menntaður mjólkurfræðing
ur. Hann heldur úti rjómaís
vef og framleiðir dýrindis
ís heima í eldhúsi.
Jón Brynjar hefur ísgerðina þó
ekki að atvinnu um þessar mund-
ir. „Nei, ég starfa hjá Rauða
krossinum eins og er. En ég hef
unnið við ísgerð bæði hérna á Ís-
landi og í Danmörku,“ útskýrði
hann.
Jón Brynjar segir ísgerð heima
í eldhúsi ekki þurfa að vera mikla
kúnst. „Það á hver sem er að geta
gert þetta, það er til það mikið af
einföldum uppskriftum,“ sagði
Jón Brynjar.
Öllu er blandað saman í þykk-
botna stálpotti og hitað upp að
suðu. Látið malla varlega við
lágan hita í 3-4 mínútur. Varist að
láta blönduna brenna við.
Blandan er kæld í 4-6 gráður og
látin þroskast í a.m.k. 4 klst. Best
er að gera hana degi áður en hún
er fryst.
Með heimilisísvél: Ísinn er
frystur og þeyttur í vélinni þang-
að til hann verður þykkur og
mjúkur. Þá er hann settur í loft-
þétt frystiílát og látinn harðna í
frystikistu í a.m.k. 2 klst.
Í höndunum: Blandan er sett í
frystiílát og látin frjósa í 4 klst. Á
því tímabili þarf tvisvar sinnum
að brjóta ísinn upp með þeytara
eða matvinnsluvél.
Áður en ísinn er borinn fram er
gott að láta hann standa í 10 mín-
útur. Þá má skafa hann í kúlur.
Ísgerð með fitusnauðari vörum,
á borð við kókosmjólkina sem Jón
notar í uppskrift dagsins, getur
þó verið aðeins snúnari. „Það er
svona skemmtilegt að leika sér
með það. En þá þarf að setja ísinn
í frysti, taka hann út og þeyta
hann aftur upp ef menn eru ekki
með sérstök tæki til að gera það,“
sagði hann. Sjálfur á Jón ágætis
ísgerðarvél sem hann pantaði af
internetinu. „En það eru líka til
hræódýrar, fínar vélar í búðum á
Íslandi,“ benti hann á.
Jón segir lítið mál að prófa sig
áfram með bragðtegundir í ís-
gerðinni. Kókosísinn er aðeins
einn af mörgum uppáhaldsísteg-
undum hans. „Á sumrin er maður
með mikið af ávaxtategundum –
kókosís og ávaxtasorbet og fleira.
Svo fer ég kannski meira í hefð-
bundnu tegundirnar yfir vetur-
inn,“ sagði Jón. Þá er ís með hvítu
súkkulaði í uppáhaldi hjá honum.
„Það er ekta jólaís, hann er mjög
þykkur og mikill. En það er svo-
lítil kúnst að gera hann,“ bætti
hann við.
Með kókosísnum mælir hann
með íssósum úr framandi ávöxt-
um á borð við mangó og ananas.
„Svo hef ég borið hann fram með
Bailey’s líka. Líkjörinn er það
þykkur að ef maður notar lítið
af honum er hann ágætis íssósa,“
sagði Jón. Vef hans er að finna á
jon.blog.is. sunna@frettabladid.is
Gerir sumarlegan kókosís
ísgerð lítil kúnst Jón Brynjar Birgisson segir ísgerð heimavið ekki þurfa að vera
mikla kúnst, nóg sé til af einföldum uppskriftum. fréttaBlaðið/vilhelm
Hvaða matar gætirðu síst verið án?
Það er kjöt og fiskur, bara fæðuflokkarn-
ir eins og þeir leggja sig. Og reyndar kartöfl-
ur líka.
Besta máltíð sem þú hefur fengið:
minnið nær nú ekki mörg ár aftur í tímann,
en á undanförnum mánuðum er það rosa-
lega góð máltíð sem ég fékk á Sjávarkjall-
aranum. ég fékk það sem þeir kalla Óvissu-
ferðina á matseðlinum og hún hefði hrein-
lega ekki getað verið betri. Það var fimm, sex
rétta máltíð með sjávarréttum, fuglakjöti og
alls konar gúrmet-gúmmulaði.
er einhver matur sem þér finnst vondur?
innmatur. hann er örugglega mjög hollur en
fær því miður ekki pláss á matseðlinum hjá
mér.
leyndarmál úr eldhússkápnum:
Það er mysa. ég nota hana í staðinn fyrir
hvítvín í mat eins og risotto og fiskrétti. hún
þjónar sama hlutverki og hvítvín og er eigin-
lega nauðsynleg í eldhúsið.
Hvað borðar þú til að láta þér líða betur?
Þegar ég borða ofan í tilfinningarnar? Þá vil
ég góðar máltíðir sem eru eldaðar af alúð og
kunnáttu. Það lætur mér líða vel.
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?
ég á alltaf til appelsínur og léttmjólk.
ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvað tækirðu
með þér?
Þá held ég að ég hefði með mér ís. Brynjuís.
Hvað er það skrítnasta sem þú hefur borð-
að?
ég man bara ekki eftir neinu mikið skrítnu.
ég er rosa lítið í því að borða froskalappir og
svoleiðis mat.
matgæðingurinn Hildigunnur þráinsdóttir leikkona
Mysan ómissandi í eldhúsinu
Örveruástand á kryddi hefur batn-
að á síðustu árum samkvæmt eft-
irlitsverkefni Heilbrigðiseftir-
lits og Umhverfisstofnunar. Tekin
voru 106 sýni af kryddi og krydd-
blöndum og af þeim voru ellefu
sýni yfir mörkum um örverufjölda
en þetta kemur fram á heimasíðu
Umhverfisstofnunar.
Þetta sýnir að krydd sem selt er
í verslunum hérlendis er almennt
undir þeim mörkum sem miðað er
við varðandi örverufræðileg gæði
þess. Tíu prósent sýna stóðust
þó ekki viðmiðunarmörk vegna
myglusveppa og einnig greindust
saurkólígerlar langt yfir mörkum
í einu sýnanna.
Gott ástand á kryddi
krydd Örveruástand hefur batnað á síðustu árum. Þetta kemur fram á vef Umhverf-
isstofnunar.
Ef hummus heillar þig...
... prófaðu þá líka Baba Ganoush. Í stað
kjúklingabauna er uppistaðan í Baba
Ganoush grilluð eggaldin, en annars er það
náskylt hinu vinsæla hummus og er alveg
jafn ljúffengt sem ídýfa með brauði.
Athafnahjónin Jón Arnar Guð-
brandsson og Ingibjörg Þorvalds-
dóttir bjóða til grillveislu í þætti
Völu Matt, Matur og lífsstíll, í
kvöld. „Þetta var allt ofsalega
fljótlegt og einfalt en alveg súper-
gott,“ sagði Vala hrifin.
„Jón Arnar og Ingibjörg mar-
inera kjúkling sem þau setja
síðan á grillið. Snilldin hjá þeim
er sú að marineringin tekur ekki
nema klukkutíma, bara svona
rétt á meðan verið er að undir-
búa matarveisluna,“ sagði Vala.
„Þau eru líka með grillaðar kart-
öflur sem voru algjört sælgæti
og mjög einfalt að gera.
Síðan bjó Jón Arnar til grillsósu
til að hella yfir kjúklinginn. Hún
var alveg ofboðslega fljótleg og
ótrúlega góð,“ bætti Vala við.
Mangóið skorið í þunnar sneið-
ar. Sojasósu, ólífuolíu, agave-
sírópi og hunangi blandað saman.
Mangó lagt á kjúklingabitana og
blöndu hellt yfir. Marinerað í um
klukkutíma.
Grillveisla í Mat
og lífsstíl í kvöld
Fljótleg og ljúFFeng grillveisla Jón arnar og ingibjörg bjóða til grillveislu með
marineruðum kjúklingi sem þarf bara að standa í um klukkustund.
FERSKUR KÓKOSÍS
800 ml kókosmjólk
150 g sykur
200 g frosið kókospuré
GRILLAÐUR KJÚKLINGUR Í
DÝRINDIS MARINERINGU
Niðurskorinn kjúklingur,
magn fer eftir fjölda gesta
Marinering
1 mangó
2 msk sojasósa
1-2 msk ólífuolía
1 msk agave-síróp
1 msk hunang
SÓSA MEÐ KJÚKLINGNUM
Hlynsírópi og sojasósu
blandað saman í glas og hellt
út á grillaðan kjúklinginn.
+ Nánari upplýsingar og bókanir á www.icelandair.is
Sölutímabil Special Offer tilboða: til og með 13. júlí.
Ferðatímabil: til 10. desember.
Takmarkað sætaframboð.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
66
61
0
6
/0
7
Frá 9.900 kr. aðra leiðina