Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.07.2007, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 05.07.2007, Qupperneq 56
44 5. júlí 2007 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is FóTbolTI Ólafur Örn Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, verður ekki áfram hjá norska úr- valsdeildarliðinu Brann þar sem hann hefur verið síðustu fjögur árin. Þetta kom fram í norskum fjölmiðlum í fyrradag og staðfesti hann það í samtali við Fréttablað- ið í gær. Hann segir að þessi ákvörðun hafi átt sér langan aðdraganda. „Í æfingaferðinni á La Manga í vor sagði þjálfarinn mér að þeir myndu vilja halda mér lengur en bara þetta eina ár,“ sagði Ólaf- ur en núverandi samningur hans rennur út í lok tímabilsins. „Svo funduðum við aftur eftir 3-4 leiki í deildinni og þeir sögðu að mér yrði boðinn nýr samningur, það væri bara ekki vitað hversu lang- ur hann yrði.“ Það var svo fyrir rúmri viku að Ólafur fundaði með framkvæmda- stjóra félagsins. „Hann sagði að þeir vildu bíða fram á haustið með mín samningamál. Daginn eftir kom ég aftur til hans og sagði að þetta yrði þá mitt síðasta ár með félaginu. Ég vil fá að stjórna þess- um hlutum sjálfur og ekki bíða fram á haustið og sjá hvað þeir vilja gera.“ Hann segir að það þurfi að vera eitthvað gott í boði til að hann verði áfram í atvinnumennsku á meginlandi Evrópu. „Ég ætla ekki að flakka á milli liða og leita mér að nýju félagi. Ég lít ekki á það sem neikvætt að koma heim. Ég ætlaði mér alltaf að koma heim og spila í 2-3 ár.“ Ólafur er 32 ára gamall og seg- ist vera í betra líkamlegu ástandi nú en þegar hann fór fyrst til Nor- egs fyrir fjórum árum. „Ég er ekki búinn að missa úr æfingu í tvö ár með Brann.“ Hann segir það ekki sjálfsagt að hann spili með Grindavík ef hann kemur heim í haust en þar er hann uppalinn og hefur spilað alla sína tíð hér á landi. „Grindavík er í myndinni en það yrði algjör forsenda fyrir mig að þeir kæmust aftur upp í úrvals- deildina. En aðalmálið fyrir mig er að ég vil finna einhverja góða vinnu með boltanum. Ég er ekki að fara elta peninga hingað og þang- að. Fyrst og fremst vil ég koma mér vel fyrir heima á Íslandi.“  eirikur@frettabladid.is ólafurörnHér í búningi Brann en hann er sennilegast á heimleið. fréttaBlaðið/scanpix Ekki neikvætt að koma heim Ólafur Örn Bjarnason er á heimleið ef af líkum lætur. Hann klárar tímabilið í norsku úrvalsdeildinni þar sem hann leikur með Brann. Ekki er sjálfsagt að hann snúi aftur í Grindavík en hann útilokar ekki heldur að spila áfram erlendis. >óvissameðframtíðÁgústs Ekkert verður af því að körfuboltaþjálfarinn Ágúst Björgvinsson fari utan til litháens og taki við liði sem er á vegum hins sterka liðs l. rytas en það er eitt af 20 bestu körfuboltaliðum Evrópu. Það dæmi datt upp fyrir á endanum og Ágúst er þar með aftur kominn á markaðinn í leit að starfi. Einhver lið hugsa sér eflaust gott til glóðarinnar að næla í Ágúst sem náði frábærum árangri með kvennalið Hauka síðustu ár en undir hans stjórn vann liðið allt sem hægt var að vinna hér heima og fór svo í Evrópukeppni. tveir efnilegustu handboltamarkverðir landsins – pálmar péturs- son og Björgvin páll Gústavsson – eru nýkomnir heim frá Eskilstuna í svíþjóð þar sem þeir sóttu markvarðanámskeið hjá tveim af bestu markvörðum svía fyrr og síðar, tommy svensson og claes Hellgren. „Þetta gekk ótrúlega vel og námskeiðið fór fram úr björtustu vonum sem þó voru háar,“ sagði kampakátur pálmar pétursson. Hver einasti dagur hjá strákunum hófst klukkan átta með morgunmat og svo voru fyrirlestrar frá níu til hálf ellefu. Í kjölfarið var þrek með tommy svens- son. svo kom hvíld í nokkra tíma en seinni partinn var annar fyrirlestur og svo tveggja tíma æfing um kvöldið. alls voru fimmtán markverðir á námskeiðinu frá Íslandi, svíþjóð, Danmörku og noregi. pálmar heillaðist af báðum mark- vörðunum og þá sérstaklega af svensson. „tommy er snarbilaður snillingur. Gaurinn er 39 ára gamall en samt í þrisvar sinnum betra formi en maður sjálfur. Hann er bilað- ur. Honum dugar ekki að taka venjuleg hopp heldur verður helst einhver að kýla í magann á honum á meðan. Hann kom mér verulega á óvart því hann er allt öðruvísi en maður hélt að hann væri. Verulega indæll og maður fann á þeim báðum að þeir vildu að maður væri betri markvörður,“ sagði pálmar en svensson gaf öllum strákunum símanúmerið sitt og tölvupóstfang og sagði þá mega hafa samband hvenær sem væri með einhverja ráðgjöf eða annað. claes Hellgren hefur aftur á móti boðist til að vera markvarða- þjálfari þeirra félaga áfram. Það færi þannig fram að Hellgren fengi sendar spólur út með þeim félögum og svo væri hann í sambandi í kjölfarið með ráðgjöf. Þessi þjónusta er aftur á móti ekki ókeypis og strák- arnir vonast til að HsÍ og félögin hlaupi undir bagga með þeim enda ekki hlaupið að slíkri aðstoð og það frá þjálfurum sem kunna manna best að þjálfa markverði. „Þjálfun markvarða hefur rosalega mikið að segja og skólunin í svíþjóð er það góð að lélegir markverðir þar verða að miðlungsmarkvörðum á meðan góður mark- vörður hér verður líka miðlungsmarkvörður en ekki mikið meira enda vantar hefðina og þjálfunina. Von- andi njótum við liðsinnis Hellgren áfram. Það væri frá- bært,“ sagði pálmar. pÁlmarpéturssonogbjörgvinpÁllgústavsson: fóru Á markVarðanÁmskEið Í sVÍÞjóð Tommy Svensson er snarbilaður snillingur FóTbolTI Fram er fyrsta liðið í sögu 10 liða efstu deildar (1977-2007) sem klikkar á vítaspyrnu í þrem- ur leikjum í röð. Níu lið höfðu klikkað á vítum í tveimur leikjum í röð en Fram hefur misnotað víti í síðustu þremur leikjum sínum, gegn Fylki, KR og Breiðabliki. Öll þrjú vítin voru varin. Igor Pesic lét verja frá sér gegn Fylki og Breiðabliki en Hjálmar Þórarins- son gegn KR. Þá má einnig geta þess að eng- inn markvörður hefur varið víti í þremur leikjum í röð en Blik- inn Casper Jacobsen hefur varið tvö víti í síðustu tveimur leikjum Breiðabliks. Fjórir aðrir markverðir hafa varið víti í tveimur leikjum í röð undanfarin 30 ár. Albert Sævars- son gerði það síðast árið 2001 er hann lék með Grindavík en Hall- dór Halldórsson (FH, 1985), Stef- án Jóhannsson (KR, 1985) og Lárus Sigurðsson (Valur, 1994) náðu því einnig. -óój misnotuðvíti liðsemhafamisnotaðvítiítveimur leikjumíröðeðaoftar. fjöldi misnotaðra víta Hvernig 3 fram (2007) varið - varið - varið 2 ÍBV (1982) varið - í stöng 2 Ía (1985) varið - varið 2 Þór ak. (1987) varið - varið 2 keflavík (1989) yfir - varið 2 kr (1991) varið - varið 2 fram (1993) varið - varið 2 Þór ak. (1994) varið - varið 2 kr (1997) varið - varið 2 kr (2001) varið - varið Framarar settu vafasamt met á móti Blikum: Fyrstir til að misnota víti í þremur leikjum í röð igorpesicHefur misnotað tvö víti undanfarið með fram. fréttaBlaðið/DanÍEl FóTbolTI Ívar Ingimarsson, leik- maður Reading, hefur framlengt samning sinn við félagið um eitt ár og er nú bundinn því til árs- ins 2010. Má gera ráð fyrir því að samningurinn feli í sér launa- hækkun fyrir Ívar sem var valinn besti leikmaður liðsins, sem átti góðu gengi að fagna í ensku úr- valsdeildinni í vetur. Þrír aðrir leikmenn Reading framlengdu samninga sína á sama tíma, þeir Shane Long, James Harper og Simon Cox. -esá Ívar Ingimarsson: Framlengir við Reading ívaringimarssonfylgist hér með craig Bellamy, leikmanni liverpool. norDic pHotos/GEtty Ferðir á Old Trafford manchester united klúbburinn og Úrval Útsýn standa fyrir fjölda ferða á heimaleiki man.utd í ágúst, september og október Beint áætlunarfl ug til manchester með icelandair, gisting á hinu vinsæla novotel hóteli í miðborg manchester og miðarnir á leikinn eru í suðurstúku vallarins Farið er á eftirfarandi leiki man.utd v reading 10-13 ágúst man.utd v tottenham 24-27 ágúst man.utd v sunderland 31 ágúst - 3 september man.utd v chelsea 21-24 september uppselt man.utd v Wigan 5-8 október man.utd v middlesboro 26-29 október Verð: 66.500 kr. á mann í tvíbýli Innifalið: fl ug, skattar, gisting í 3 nætur með morgunverði, rútur til og frá fl ugvelli, miðinn á leikinn og íslensk fararstjórn. Nánari upplýsingar og skráning með tölvupósti tonsport@uu.is, í síma 585-4000 eða á heimasíðu okkar www.uu.is Ferðaskrifstofa Leyfishafi Ferðamálastofu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.