Fréttablaðið - 06.07.2007, Page 2
Það sem er alvarlegast við
þetta mál er að börn voru
með í för.
Vísindamenn í
Bandaríkjunum hafa komist að
því að bæði kynin tala jafnmikið.Í
rannsókninni voru hljóðnemar
festir á tæplega fjögur hundruð
háskólanema í allt frá tveimur
dögum upp í tíu í senn. Reiknað
var út hversu mörg orð hver
sagði á hverjum degi.
Niðurstaðan var sú að konur
sögðu að meðaltali 16.215 orð
daglega, en karlmenn 15.669.
Munurinn, 546 orð, er ekki
tölfræðilega marktækur, enda
munaði 45 þúsund orðum á þeim
sem mest talaði og þeim sem
sagði minnst.
Konur og karlar
tala jafnmikið
Lögreglumaður
þurfti að beita varnarúða á hund í
austurborginni í fyrrakvöld.
Lögreglumenn voru á leið í húsleit
í íbúð þegar þýskur schäfer-
hundur réðst að öðrum lögreglu-
mannanna og þurfti að beita úða á
hundinn til að stöðva hann.
Í íbúðinni fundust tæp 100
grömm af ætluðu amfetamíni og
var par á fimmtugsaldri handtek-
ið. Fólkinu var sleppt að lokinni
yfirheyrslu og telst málið upplýst.
Farið var með hundinn til
aðhlynningar á Dýraspítalann.
Úðaði á hund
sér til varnar
Frjókorn mældust í
óvenjulega miklu magni í Reykja-
vík síðustu dagana í júní, þegar
veður var hlýtt og þurrviðrasamt.
Í frjómælingum Náttúrustofnun-
ar Íslands kom í ljós að heildar-
fjöldi frjókorna í lofti var yfir
meðallagi bæði á Akureyri og
Reykjavík. Mælingarnar áttu sér
stað í maí og í júní.
Aðalfrjótími grasa á Íslandi er
þó enn eftir. Hámarki er yfirleitt
náð annað hvort í síðari hluta júlí
eða í byrjun ágúst.
Óvenju mikið
af frjókornum
Mikill viðbúnaður
var hjá björgunarsveitum á Suð-
urlandi þegar jeppi fór fram af
gígbarmi og hafnaði ofan í Ljótap-
olli skammt frá Landmannalaug-
um í fyrrakvöld. Þyrla Landhelg-
isgæslunnar var kölluð út enda
bentu fyrstu fréttir af slysinu til
þess að mikil hætta væri á ferð-
um.
Fernt var í bílnum þegar atvikið
átti sér stað, feðgar og tvær litlar
telpur – dóttir yngri mannsins og
vinkona hennar. Farþegunum
þremur tókst að koma sér út úr
bílnum áður en hann fór fram af
gígbarminum og hafnaði í vatninu
en ökumaðurinn fór niður með
bílnum. Hann slasaðist lítillega og
var fluttur með þyrlu Landhelgis-
gæslunnar á slysadeild Landspít-
alans í Fossvogi. Stúlkurnar, sem
eru átta og níu ára, voru fluttar
með sjúkrabíl á Selfoss óslasaðar
en nokkuð skelkaðar.
Lögreglan á Hvolsvelli fer með
rannsókn málsins og að sögn Atla
Árdal, varðstjóra á Hvolsvelli,
bendir ýmislegt til þess að um
glannaskap og ölvun hafi verið að
ræða. „Þarna sköpuðust engar
óviðráðanlegar aðstæður sem
voru örsök slyssins og þeir sem
hafa komið á þennan stað vita að
það er nær ómögulegt að fara
þarna fram af fyrir slysni,“ segir
Atli.
Feðgarnir hafa áður komið við
sögu lögreglunnar á Hvolsvelli
fyrir ýmis brot og höfðu báðir
verið sviptir ökuleyfi ævilangt.
Annar var síðast sviptur í nóvem-
ber á síðasta ári en hinn í júní síð-
astliðnum. Þá hafa báðir mennirn-
ir setið inni fyrir ýmis brot og eiga
feril um fjársvik, kynferðisbrot
og líkamsárásir auk ítrekaðra
umferðarlagabrota.
„Það sem er alvarlegast við
þetta mál er að börn voru með í
för. Þarna hefði getað orðið mjög
alvarlegt slys,“ segir Atli.
Fulltrúar barnaverndaryfir-
valda tóku á móti stúlkunum á Sel-
fossi. Anný Ingimarsdóttir, verk-
efnisstjóri félagslegrar ráðgjafar
hjá sveitarfélaginu Árborg, segir
að stúlkurnar séu komnar í örugg-
ar hendur og að málið verði kann-
að, meðal annars hvort fleiri börn
séu í umsjá þessara manna. Hún
segir að það sé alltaf litið alvarleg-
um augum þegar menn aka undir
áhrifum áfengis með börn í bíln-
um en ítrekar að enn sé aðeins um
grun að ræða.
Fjölmörg vitni voru að slysinu
því nokkuð var um ferðamenn við
Ljótapoll. Lögreglan hefur rætt
við nokkra og ber þeim flestum
saman um atburðarásina.
Kristján, var þetta mark tækt?
Ekkert bendir til
þess að meintur hryðjuverkamað-
ur sem lögreglan í Bretlandi
leitar að sé staddur hér á landi, að
því er segir í frétt frá ríkislög-
reglustjóra.
Netúgáfa indverska dagblaðs-
ins The Hindu greindi frá því í
gærmorgun að indverskur maður,
Kafeel Ahmed, sem talinn er
tengjast sprengjutilræðunum í
Englandi og Skotlandi fyrir
skemmstu, væri að líkindum
staddur hér á landi. Í tilefni af
frétt þess efnis hefur greiningar-
deild ríkislögreglustjóra kannað
sannleiksgildi fréttarinnar, sem
virðist ekki á rökum reist.
Hryðjuverka-
maður ekki hér
Stofnuðu lífi tveggja
ungra telpna í hættu
Feðgar sem höfðu verið sviptir ökuleyfi ævilangt óku jeppa út í Ljótapoll á mið-
vikudagskvöld. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun og lögreglu grunar að um
glæfraakstur hafi verið að ræða. Með mönnunum í för voru tvö börn.
Ísraelskir hermönnum
og herskáum Palestínumönnum
lenti saman á Gaza-svæðinu í
gær. Níu manns féllu í átökunum,
sem herþotur, skriðdrekar og
jarðýtur Ísraelshers tóku þátt í.
Palestínumennirnir lögðu jarð-
sprengjur fyrir ísraelsku her-
mennina.
Abu Obeida, talsmaður Hamas-
samtakanna, sagði að vopnaðir
liðsmenn samtakanna hefðu hafið
átökin með því að skjóta á ísra-
elska hersmenn í njósnaleið-
angri.
Að minnsta kosti sex hinna
látnu voru Hamas-liðar. Samtökin
staðfestu að einn þeirra hefði
verið Mohammed Siam, herstjóri
Hamas á Mið-Gaza.
Síðar skaut ísraelsk herþota
eldflaugum á bækistöðvar skæru-
liða á svæðinu, að því er talsmað-
ur hersins upplýsti. Sjúkrahúss-
starfsmenn sögðu tvo menn hafa
farist. Talsmaður Hamas sagði þá
báða hafa verið liðsmenn samtak-
anna.
Ismail Haniyeh, forsætisráð-
herra palestínsku stjórnarinnar
sem Mahmoud Abbas Palestínu-
forseti vék frá í liðnum mánuði,
og talsmaður Fatah-hreyfingar
Abbas fordæmdu báðir þessar
aðgerðir Ísraelshers og hvöttu
Palestínumenn til að verjast.
Palestínumenn hvattir til varna
Reykjavíkurborg hefur
samþykkt að greiða þrjár millj-
ónir króna á ári vegna reksturs
friðarsúlu listakonunnar Yoko
Ono í Viðey.
Orkuveitan og borgarráð
ákváðu í fyrra að verja 15 milljón-
um hvor aðili til þess að kosta
framkvæmdir við friðarsúluna
sem reist verður samkvæmt hönn-
un Yoko Ono. Eins og fram hefur
komið í Fréttablaðinu er kostn-
aður við verkið kominn langt
umfram fyrstu áætlanir, jafnvel
að eitt hundrað milljónum króna,
og Yoko hefur boðist til að greiða
það sem á vantar auk þess sem
hún gefur sína hugmyndavinnu
við listaverkið sem ber heitið
Imagine Peace Tower.
„Það er ótvíræður heiður að
jafn virt og áhrifamikil listakona
og friðarsinni og Yoko Ono skuli
kjósa að starfa með Listasafni
Reykjavíkur að þessu verkefni.
Það er ekki síður mikilvægt að
bún bjóðist til að gefa Reykjavík-
urborg stærsta hlutann af verki
sem væntanlega mun vekja
athygli víða um heim og verða
minnisvarði til framtíðar um það
hlutverk í málefnum friðar sem
Reykjavík og Ísland hafa gegnt og
gera vonandi í enn ríkari mæli til
framtíðar,“ segir menningar- og
ferðamálasvið Reykjavíkur, í ósk
um heimild borgarráðs til að
ganga frá samningum við Yoko.
Listakonan gerir að skilyrði að
borgin greiði kostnað við rekstur
súlunnar og annist viðhald henn-
ar. Þá vill hún að súlan verði tilbú-
in fyrir 9. október í haust. Annars
dragi hún fjárframlag sitt til baka.
Þennan tiltekna Ono hefði eigin-
maður hennar, Bítilinn John
Lennon, orðið 67 ára hefði hann
lifað. Endaleg mynd af hönnun
súlunnar er ekki fáanleg hjá
Reykjavíkurborg.
Karlmaður sem
handtekinn var fyrir að lokka til
sín börn með hamstri í Efra-
Breiðholti var úrskurðaður í
gæsluvarðhald í gær.
Hann er grunaður um að hafa
beitt að minnsta kosti þrjár
stúlkur á aldrinum sex til ellefu
ára kynferðislegri áreitni á
miðvikudagskvöld.
Maðurinn er andlega vanheill
að sögn lögregluvarðstjóra og
mun geðlæknir skoða manninn og
meta ástand hans á næstu dögum.
Ef ástæða þykir til mun maðurinn
fá þá aðstoð sem hann þarf innan
veggja fangelsins. Ekki þykir
ráðlegt að flytja hann á geðdeild
vegna rannsóknarhagsmuna.
Í gæsluvarðhald
fyrir kynferðis-
lega áreitni