Fréttablaðið - 06.07.2007, Side 6

Fréttablaðið - 06.07.2007, Side 6
Mannréttindadómstóll Evrópu dæmdi í gær íslenska ríkið til að greiða níu ára stúlku, Söru Lind Eggertsdóttur, rúmar sex milljónir króna í bætur auk einnar og hálfrar milljónar í málskostnað fyrir mannréttindabrot. Dómnum þótti ljóst að Sara Lind hefði ekki hlotið réttláta málsmeðferð þegar Hæstiréttur sneri við úrskurði Héraðsdóms í læknamistakamáli gegn ríkinu. Stúlkan veiktist strax eftir fæð- ingu árið 1998 og var metin með hundrað prósent örorku. Árið 2002 komst Héraðsdómur Reykjavíkur að þeirri niðurstöðu að örorku stúlk- unnar mætti rekja til mistaka starfsfólks Landspítalans og dæmdi foreldrum hennar tæpar þrjátíu milljónir í bætur. Hæstiréttur sneri þessum dómi við árið 2004 og sýkn- aði ríkið. Samkvæmt úrskurði mannrétt- indadómstólsins var brotið á Söru Lind þegar Hæstiréttur leitaði upp á sitt einsdæmi til Læknaráðs stuttu áður en málflutningur hófst. Byggði Hæstiréttur úrskurð sinn að miklu leyti á áliti Læknaráðs, þar sem meðal annars sátu fjórir starfs- menn Landspítalans. Með því að byggja úrskurð sinn á áliti starfsmanna varnaraðila braut Hæstiréttur sjöttu grein mannrétt- indasáttmálans, sem kveður meðal annars á um rétt manna til réttlátr- ar málsmeðferðar fyrir óvilhöllum dómstóli. „Þetta er mikill áfellisdómur yfir Hæstarétti,“ segir Eggert Ísólfs- son, faðir stúlkunnar. „Það er varla hægt að hugsa sér að hann geti lagst lægra en að brjóta gróflega á mann- réttindum á fjölfatlaðs barns.“ Hann segir niðurstöðuna sigur fyrir fjölskylduna, þó bæturnar séu vissulega lægri en þær sem héraðs- dómur dæmdi stúlkunni árið 2002. Heimir Örn Herbertsson, lög- maður stúlkunnar, segir sjálfsagt að í kjölfar dómsins verði skoðað hvort hún fái ekki frekari úrlausn sinna mála. Hann hyggist leita til íslenskra stjórnvalda eftir því að hlutur hennar verði réttur. „Það eru einnig heimildir í íslenskum lögum fyrir því að leita eftir endurupp- töku mála fyrir dómstólum, og ég tel sjálfsagt að skoða það.“ Ekki náðist í Gunnlaug Claessen, forseta Hæstaréttar og sitjandi dómara í máli stúlkunnar, við vinnslu fréttarinnar. Hjá dóms- málaráðuneytinu fengust þau svör að ekki verði rætt um dóminn fyrr en hann hefur verið þýddur. Er kominn tími á rigningu og rok? Heldur þú að lækkun lánshlut- falls hjá Íbúðalánasjóði muni slá á þensluna? Hæstiréttur braut á fjölfatlaðri stúlku Hæstiréttur braut á mannréttindum níu ára stúlku með vinnubrögðum sínum í skaðabótamáli hennar. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur dæmt ríkið til að greiða henni átta milljónir. Áfellisdómur yfir Hæstarétti, segir faðir stúlkunnar. „Vímuefna- og áfengis- neysla í þessu óhófi er geðröskun. Hvort sem það er orsök eða afleið- ing viðkomandi manneskju kemur málinu bara ekkert við,“ segir Sveinn Magnússon, framkvæmda- stjóri Geðhjálpar. Mál heimilislausra með geðfötl- un eru í ólestri að mati Sveins en hann segir að félagsmálayfirvöld og heilbrigðisyfirvöld verði að samræma aðgerðir sínar í þessum málum. „Ég er með sjötíu og sjö manns á skrá hjá mér yfir heimil- islausa einstakl- inga og sá listi er ekki tæmandi. Aðstæður þessa fólks eru vægt til orða tekið skelfilegar. Stór hluti þess á við vímuefnavanda að stríða og það ergilegasta er að hluti af fólkinu hefur ítrekað lýst því yfir að vilja stuðning en höndlar ekki sjúk- dómsins vegna að halda sér frá vímuefnum.“ Hann segir tuttugu manns vera á götunni og í neyslu af þeim þrjá- tíu og einum sem voru í Byrginu þegar því var lokað. „Hinir eru í húsaskjóli hjá vinum og kunn- ingjum og það er auðvitað hús- næðisleysi út af fyrir sig.“ Sveinn hvetur yfirvöld til að setjast niður og fara vandlega yfir stöðuna en með réttum aðgerðum telur hann vandamálið ekki óyfir- stíganlegt. Tuttugu manns úr Byrginu á götunni og í fíkniefnaneyslu Eftir að hafa setið mánuðum saman undir harkalegri gagnrýni á Bandaríkin og utan- ríkisstefnu þeirra úr munni hins rússneska starfsbróður síns bar George W. Bush Bandaríkjafor- seti lof á Vladimír Pútín fyrir ein- lægni hans og hreinskilni, er leið- togarnir tveir hittust í sumarhúsi Bush-fjölskyldunnar í Kenne- bunkport í Maine í byrjun vikunn- ar. Nú undrast bandarískir Rúss- landsmálasérfræðingar hin mildilegu viðbrögð Bush við hörð- um orðum Pútíns. Stjórnmálaskýrendur vestra segja lof Bush í garð Pútíns til merkis um að Bandaríkjastjórn áliti Rússland nú aftur vera veldi sem þurfi að taka tillit til. En sumir Rússlandsmálasérfræðing- ar, svo sem Michael McFaul við Stanford-háskóla, segja að Bush sé með þessu að verðlauna Rúss- landsforseta fyrir hegðun sem ráðamenn Vesturlanda ættu ekki að láta óátalda. Frá bæjardyrum Kremlverja séð endurspegla hinar hlýju mót- tökur sem Pútín fékk hjá Bush bæði persónulega vináttu þeirra og endurreistan styrk og áhrif Rússlands í heimsmálum. Stjórnarflokkur Austur-Tímor, Fretilin, er stærsti flokkur þingsins eftir kosningar um helgina, en þarf að ræða við aðra flokka um myndun meiri- hlutastjórnar. Flestir stjórnarandstöðuflokk- anna lýstu því yfir að þeir vildu ekki starfa með Fretilin. Þetta gæti þýtt að flokkurinn lenti í stjórnarandstöðu, þrátt fyrir 29 prósent atkvæðanna. Líklegasta niðurstaðan verður þá samsteypustjórn undir forystu flokks sjálfstæðishetjunnar Xanana Gusmao, sem fékk 26 prósent atkvæða. Stærsti flokkur þingsins í vanda Munið bílastæðin í bílastæðahúsinu í Traðarkoti, beint að baki versluninni Kisan er opin í sumar mánudaga - laugardaga frá kl. 10:30 til kl. 21:00 Laugavegi 7 101 Reykjavík Sími 561 6262 www.kisan.is Heimsþekkt vörumerki eins og Sonia Rykiel, Bonpoint, Jamin Puech, Orla Kiely og fleiri ... Útsalan er hafin Átta húsbílum var lagt á bryggjunni í Hólmavík í fyrrakvöld, líklega til að sleppa við að greiða fyrir tjaldstæði. Stranglega bannað er að leggja bílum á bryggjunni. Þetta kvað ekki í fyrsta skipti sem húsbílafólk reyni með þessum hætti að losna undan því að greiða gistingu með því að leggja utan tjaldstæðisins í bænum. Frá þessu er greint á fréttavefnum Strandir.is. Eigendur húsbílanna átta færðu þá eftir að þeim var bent á að ólöglegt væri að leggja á bryggj- unni. Þeir fóru þó ekki langt heldur lögðu bílunum næturlangt í íbúðahverfi sem er staðsett á móti tjaldsvæði bæjarins. Lögðu húsbílum á bryggjunni til að spara pening

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.