Fréttablaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 23
Gengi kínversku SCI-vísitölunnar
féll um 5,25 prósent í kauphöllinni
í Sjanghæ við lokun viðskipta í
Kína í gær en fjárfestar telja auk-
inn fjölda skráninga á hlutabréfa-
markað og hlutafjáraukningu
fyrirtækja veikja markaðinn.
Þá ætla kínversk stjórnvöld að
gefa út ríkisskuldabréf fyrir jafn-
virði 120 milljarða króna í því
augnamiði að fjármagna erlendar
fjárfestingar.
Stjórnvöld hafa markvisst dreg-
ið úr þenslu á markaðnum, ekki
síst eftir harða gagnrýni um bólu-
myndun á kínverskum hlutabréfa-
markaði. SCI-vísitalan hefur þre-
faldast síðastliðið eitt og hálft ár,
þar af tvöfaldast frá áramótum.
Hún rauf 4.000 stiga múrinn fyrr
á árinu en hefur lækkað hratt upp
á síðkastið vegna aðgerða stjórn-
valda, svo sem með snarhækkun
stimpilgjalda í maí. Hún situr nú
í 3.615,87 stigum.
Greinendur hafa löngum varað
við leiðréttingu á kínverskum
hlutabréfamarkaði og gera ekki
ráð fyrir því að markaðurinn
austur frá hækki alveg á ný á
næstunni.
Fall á Kína-
markaði
Danska fjárfestingafélagið Prop-
erty Group hefur fest kaup á 39
fasteignum í Danmörku, Straum-
ur fjárfestingabanki var ráðgjafi
við kaupin.
Fasteignirnar voru keyptar af
félaginu Sampension, sem fór
með eignarhlut fyrir hönd lífeyr-
issjóða dönsku sveitarfélaganna.
Heildarstærð eignanna er tæp-
lega 107 þúsund fermetrar.
Property Group leggur áherslu
á fasteignakaup í Danmörku og
hefur sett sér að markmiði að
komast í hóp öflugustu fasteigna-
fyrirtækja á Norðurlöndum innan
fimm ára.
Straumur styður
fasteignakaup
Engin ládeyða hefur verið á inn-
lendum hlutabréfamarkaði í sumar
eins og oft gerist á þessum árstíma.
Heildarvelta með hlutabréf í Kaup-
höll Íslands nam 208 milljörðum
króna í júní og jókst um 87 prósent
á milli ára. Veltan í sama mánuði í
fyrra var um 111 milljarðar króna.
Velta á fyrri helmingi ársins var
alls 1.444 milljarðar króna sem var
34 prósentum meira en á sama tíma
í fyrra. Veltan í ár er nú þegar orðin
um tveir þriðju hlutar þess sem hún
var á metárinu 2006 þegar hún nam
alls 2.192 milljörðum króna.
Markaðsvirði hlutafjár var 3.565
milljarðar króna í lok júní og jókst
um 87 prósent á milli ára. Samanlagt
markaðsverð jókst um 83 milljarða
frá maí eða um 2,4 prósent.
Engin gúrkutíð á
hlutabréfamarkaði
Novator eignarhaldsfélag ehf. vekur athygli á því að
yfirtökutilboð þess í hlutafé Actavis Group hf. rennur
út næstkomandi mánudag, 9. júlí, kl.16.
Yfirtökutilboð
Actavis Group hf.
Þeir hluthafar sem vilja samþykkja yfirtökutilboð Novators þurfa að skila rétt útfylltu
samþykkiseyðublaði. Hægt er að skila eyðublaðinu með þrennum hætti:
• Til Landsbanka Íslands hf., Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík,
merkt „ACTAVIS YFIRTÖKUTILBOД
• Á faxnúmerið 410 3002
• Á vefsíðu Landsbankans, www.landsbanki.is
Samþykki hluthafa Actavis verður að hafa borist fyrir kl. 16:00 mánudaginn 9. júlí 2007.
Hluthafar eru hvattir til að skila samþykkiseyðublaðinu rétt útfylltu hið fyrsta.
Marel er stærsti hluthafinn í hollensku iðnsamstæð-
unni Stork með 19,5 prósent hlutafjár. Verðmæti hlut-
arins nemur 300 milljónum evra, jafnvirði tæpra 25,2
milljarða íslenskra króna. Eignarhluturinn er skráður
á hollenska eignarhaldsfélagið LME Holding en í því
fara Landsbankinn og Eyrir Invest saman með 40 pró-
senta hlut hvor en Marel 20 prósent. Til samanburð-
ar nemur markaðsvirði Marels rúmum 33 milljörðum
króna.
Þetta kom fram á hluthafafundi Marels í gær en
þar var samþykkt að veita stjórn Marels heimild til
að hækka hlutafé um 100 milljónir króna að nafnvirði
í 18 mánuði. Heimilt verður að ráðstafa hlutunum sem
greiðslu fyrir hluti í öðrum félögum eða til að fjár-
magna ytri vöxt fyrirtækisins.
Breska fjárfestingafélagið Candover hefur lýst yfir
áhuga á því að gera yfirtökutilboð í Stork upp á 47
evrur á hlut. Tilboðið er háð samþykki 80 prósenta hlut-
hafa og virðist fátt benda til að það hlutfall náist.
Marel stærsti hluthafi Stork