Fréttablaðið - 06.07.2007, Page 25
Brynhildur Pálsdóttir á það til að baka vand-
ræði. Raunar ekkert minna en náttúruhamfarir.
„Þetta er hugmynd sem ég fékk þegar ég var í hönn-
unarnámi úti í Hollandi,“ segir Brynhildur sem búið
hefur til uppskrift að köku sem líkja má við virkt
eldfjall. „Ástæðan fyrir því að ég hugsaði um hönn-
unarverk úr deigi en ekki einhverju öðru efni er sú
að ég hef áhuga á bakstri og finn að hann er eitthvað
sem ég get gert betur en að logsjóða eða eitthvað
slíkt. Mér finnst líka matargerð og matarhönnun
spennandi viðfangsefni. Allir þurfa að borða og
öllum finnst gaman að borða. Sem hönnuður er
skemmtilegt að gera eitthvað sem allir geta notið.
Í Hollandi er varla til lófastór blettur ósnortinn.
Því fór ég að hugsa um hvort það væri í lagi að mað-
urinn setti mark sitt á náttúruna að eigin geðþótta og
í framhaldinu að hugsa um náttúruhamfarir í heimi
þar sem maðurinn er að reyna að stjórna öllu. Mig
langaði að búa til köku sem væri eins og náttúruham-
farir á matarborðinu. Þegar skorið væri í hana þá
gæti hún sprungið, runnið niður á dúkinn, jafnvel
eyðilagt borðið – eða ekki. Væri óútreiknanleg eins
og náttúran. Þess vegna bjó ég til leiðarvísi að virkri
eldfjallaköku sem er til sölu á Kjarvalsstöðum.“
– Má þá ekki heimfæra svona sprengingu upp á
allt sem mistekst í eldhúsinu?
„Jú, það getur verið ótrúlega fallegt að leyfa matn-
um að vera eins og hann vill. Þar sem við erum alltaf
með völdin og að reyna að stjórna getur verið gott að
leyfa hlutum að gerast bara. Við getum kallað það
stjórnlausa matargerð.“
Virk eldfjallakaka með
hamrabelti úr súkkulaði
SKY ÁSKRIFTARKORT AÐEINS 1 KR.
EF KEYPTUR ER MÓTTAKARI!
SKY HD
MÓTTAKARI
aðeins 79.000 kr.
EINSTAKT TILBOÐ:
Sky HD er bylting í sjónvarpstækni
Upplýsingar í símum:
820 3712 og 820 5280 og sky@internet.is
F
A
B
R
IK
A
N
Jói
Fel
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki