Fréttablaðið - 06.07.2007, Síða 27
Sólveig Guðmundsdóttir
leikkona er skynsöm á flestum
sviðum, nema hvað skókaup-
um viðvíkur.
„Ég gerði tvímælalaust mín bestu
kaup þegar ég keypti íbúðina
mína. Hún er einfaldlega svo björt
og falleg og ekki spillir einstakt
útsýnið fyrir,“ segir Sólveig Guð-
mundsdóttir leikkona, sem býr í
70 fermetra stórri íbúð á Laufás-
vegi.
Sólveig hefur átt íbúðina í fimm
ár og þakkar móður sinni kaupin,
þar sem hún fann íbúðina á meðan
dóttirin var í námi erlendis. „Það
var verið að gera íbúðina upp
þegar mamma leit við en það kom
ekki að sök og hún féll kylliflöt
fyrir henni.
Ég átti þá íbúð fyrir, sem ég
hafði aldrei búið í heldur leigði út.
Hún var seld og þessi keypt í stað-
inn. Hér er frábært að búa og
óhætt að segja að mamma hafi hitt
naglann á höfðuðið. Kannski ætti
hún bara að stofna ráðgjafarfyrir-
tæki fyrir fólk í húsnæðisleit.“
Sólveig er jafnframt að velta
því fyrir sér hvort skynsemi móð-
urinnar komi að eins góðum
notum í skókaupum, sem eru yfir-
leitt verstu kaup sem leikkonan
gerir. „Mamma gæti þá kannski
afstýrt því að ég keypti enn eitt
skóparið í of litlu númeri,“ segir
hún hlæjandi.
„Ég skil ekki hvernig á þessu
stendur, en ég er alveg hrikaleg á
þessu sviði og stundum er ég með
hælsæri undan skónum. Kannski
er þetta eins og með stjúpsystur
Öskubusku, sem tróðu sér í of
litla skó.
Ég er samt að reyna að venja
mig af þessu og um daginn hafði
ég vit á að skila of litlum afmælis-
skóm. Ætli ég þurfi ekki bara
hjálp.“
Sólveig segist vita til þess að
fleiri eigi við þennan vanda að
stríða en vill þó ekki meina að
skynsamlegt sé að stofna stuðn-
ingshóp í kringum þolendurna.
„Það gæti nú orðið svolítið hættu-
legt,“ segir hún. „Við værum
vísar með að enda í einhverri skó-
kaupavitleysu.“
Kaupir alltaf
of litla skó
Í Byko fást alls konar sumarvörur.
Í verslunum Byko er nú hægt að fá
ýmsar sumarvörur á góðu verði.
Má þar nefna ferðagasgrill á
5.880 krónur, kælibox á 5.990
krónur og sláttuvél á 19.900
krónur. Auk þess er 25 prósenta
afsláttur af allri viðarvöru og
málningu í verslununum.
Betra sumar í Byko
Harðir diskar, margmiðlun-
arspilarar og ferðatölvur á
tilboði.
Tölvutek í Borgartúni er með
nokkur sumartilboð í gangi. Til að
mynda má fá Acer 2480 á 59.900
krónur. Sarotech-margmiðlunar-
spilari með fjarstýringu sem les
og spilar flest alla staðla fyrir
mynd og hljóð fæst á 23.900
krónur en 14.900
án harðs disks.
25 stykki af
DVD-diskum frá
Samsung og Ver-
batim kosta 1.990
krónur.
Tölvur á
tilboði
Reiðskólinn Faxaból,
Reiðhöllinni í Víðidal
Eigum laus pláss á námskeið sem hefjast
9. júlí, 23. júlí og 7. ágúst
fyrir byrjendur og framhaldshópa
Nánari upplýsingar og skráning í
síma 822-2225 eða á faxabol.is