Fréttablaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 32
BLS. 4 | sirkus | 6. JÚLÍ 2007 Þ essi dagur var akkúrat eins og ég vildi hafa hann,“ segir Emil-ía Björg Óskarsdóttir, söng- kona úr stúlknasveitinni Nylon, sem var gæsuð af vinkonum sínum um miðjan maí og það allsvakalega. „Stelpurnar plötuðu mig í viðtal hjá Ívari Guðmundssyni á Bylgjunni og það er kjánalegasta viðtal sem ég hef farið í,“ segir Emilía hlæjandi þegar hún rifjar upp daginn eftirminnilega. Emília fór í viðtalið ásamt stöllum sínum úr Nylon en viðtalið fór ekki fram eins og hún er vön. „Ívar spurði mig rosalega persónu- legra spurninga og stelpurnar voru alltaf að koma með einhver „nasty comment“. Ég skildi ekki hvað var í gangi – af hverju þær voru að taka mig svona fyrir – og svo var rauða „on air“ ljósið alltaf logandi,“ segir Emilía. „En eftir nokkra stund spurði Ívar mig allt í einu hvernig mér litist á að gæsa- dagurinn byrjaði svona og þá komu allar hinar stelpurnar inn.“ Eftir sprellið á Bylgjunni lá leið Emilíu og vinkvenna hennar í Laugar. Þar fóru þær í hópeflisleiki áður en brúðurin verðandi var dregin niður í matsal og látin setjast á stól sem hún mátti ekki fara af, sama hvað tautaði og raulaði. „Allt í einu stóð Friðrik Ómar upp og söng til mín tvö lög. Það var alveg geðveikt,“ segir Emilía sem fékk nudd og annað dekur að söng loknum. „Svo enduðum við uppi í sumarbú- stað hjá vinkonu minni. Það var búið að skreyta allan bústaðinn og það var tekið á móti okkur með mojito. Svo fengum við okkur grillaðan humar og skemmtum okkur konunglega fram eftir nóttu.“ Það er óhætt að segja að söngkonan sé vinamörg en á annan tug vinkvenna tók þátt í að gæsa hana. Emilía gengur að eiga unnusta sinn, Pálma Sigurðsson, við hátíðlega athöfn í Breiðholtskirkju á næstunni. Það verður séra Valgeir Ástráðsson, fóstur- pabbi Emilíu, sem gefur brúðhjónin saman. Emilía vildi sjálf ekki tjá sig um brúðkaupið en sagði þó: „Það er mikil spenna og voða gaman.“ NYLON-STELPURNAR BRUGÐU Á LEIK FYRIR VÆNTANLEGT BRÚÐKAUP Geggjuð gæsun hjá Emilíu í Nylon EMILÍA Gengur að eiga unnusta sinn í Breiðholtskirkju á morgun. NYLON Stelpurnar í Nylon hrekktu Emilíu allsvakalega á gæsadaginn. É g og Valdimar Kristjónsson, hljóm-borðsleikari Jeff Who?, vorum að leika okkur og úr varð þessi sum- arsmellur,“ segir Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari sem var að láta frá sér nýtt lag, Waiting there. Um splunku- nýtt lag er að ræða sem aðeins kom inn á tonlist.is í gær. „Við erum að vinna í þessu og erum að fara að henda því í spilun hjá útvarps- rásunum og leyfa fólki að hlusta. Er það ekki alltaf tilgangurinn með sköpun- inni, að leyfa fólki að heyra eða horfa á það sem maður skapar?“ spyr Þorvald- ur Davíð og bætir við að þeir félagar séu mjög ánægðir með árangurinn. Valdimar samdi lagið en Þorvaldur Davíð samdi textann og syngur en það var Þórður Gunnar Þorvaldsson sem tók upp lagið og hjálpaði til við útsetn- ingar. Þorvaldur Davíð getur ekki sagt hvort von sé á meira efni frá þeim félög- um en segir að það sé aldrei að vita. „Við erum með nokkur lög í vinnslu en tíminn verður að leiða í ljós hvort eitthvað verður úr þeim. Mér fannst ekkert mál að semja textann, hann rann í gegn auðveldlega en þetta er enginn Megasar-texti,“ segir hann hlæjandi. Þorvaldur flokkar lagið sem popplag en að finna megi skír- skotanir í smá djass, funk og soul. „Sjálfur er ég alæta á tónlist en ég hef fyrst og fremst alltaf litið á mig sem leikara frekar en söngvara en ef maður dettur í rétta gírinn er skemmtilegt að syngja líka, sér í lagi ef það er eitthvað sem kemur beint frá manni sjálfum,“ segir Þorvaldur sem heldur út til New York í lok ágúst til að setjast á skólabekk í hinum virta Julli- ard-skóla. Þorvaldur hefur tekið sér pásu frá leiklistinni þar til hann byrjar í skól- anum og segir nauðsynlegt að hreinsa þannig hugann. „Ég held það sé mjög hollt að taka pásu en ég er að vinna að öðrum verk- efnum í staðinn enda verður maður ekki milljónamæringur af leiklistinni og verður að hala inn peninga á fleiri stöð- um. Ég er voðalega rólegur yfir skólan- um og er að klára pappírsvinnuna sem honum tengist, safna mér pening og gera mig ferðbúinn,“ segir hann en um fjögurra ára nám er að ræða. Hvað tekur við að námi loknu eða hvort hann komi yfirhöfuð heim aftur seg- ist Þorvaldur lítið spá í á þessum tímapunkti. „Ég ætla nú bara að einbeita mér að því að klára námið. Ég held að það sé ágætis fyrsta skref í þessu öllu saman,“ segir leikarinn og tón- listarmaðurinn Þor- valdur Davíð að lokum. Þorvaldur Davíð með sumarsmellinn í ár ÞORVALDUR DAVÍÐ KRISTJÁNSSON Þorvaldur hefur gefið út lagið Waiting there en hann hefur tekið sér pásu frá leiklistinni til að hreinsa hugann áður en hann sest á skólabekk í hinum virta Julliard-skóla. Ýmsir 100 Íslensk 80’s lög Ljótu Hálfvitarnir Ljótu Hálfvitarnir Garðar Thor Cortes Cortes 2007 Jógvan Jógvan Ýmsir Number 1 3CD Mika Life in Cartoon Motion KK og Maggi Eiríks Langferðalög Ýmsir Pottþétt 43 Hvanndalsbræður Skást of Gus Gus Forever Q.T.S.A. Era Vulgaris Björk Volta Lay Low Please Don’t Hate Me Ýmsir Óskalög Sjómanna (2CD) White Stripes Icky Thump Bon Jovi Lost Highway Ýmsir Icelandic Folksongs & Other F. Klaufar Hamingjan er björt Amiina Kurr Ólöf Arnaldsdóttir Við og við 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Á toppnum trjónir nýjasta safnplatan í 100 seríunni. 100 íslensk 80´s lög sem enginn má láta framhjá sér fara. Nostalgía af bestu gerð og ekki skemmir að þarna er að finna lög sem aldrei hafa komið út á geisladisk. Spútknikk hljómsveitin er án efa Ljótu Hálfvitarnir sem koma sterkir inn á sölulista Skífulistans. Gott íslenskt grín í bland við góða tónsmíði… Ljótu hálfvitarnir 100 íslensks 80’s lög Nældu þér í eintak Li st in n gi ld ir vi ku na 28 .j ún í- 5. jú lí 20 07 VINSÆLASTA TÓNLISTIN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.