Fréttablaðið - 06.07.2007, Side 36
BLS. 8 | sirkus | 6. JÚLÍ 2007
HELGA DÝRFINNA MAGNÚSDÓTTIR er á leið í Miss Tourism
fegurðarsamkeppnina sem fram fer í Kína næsta mánuðinn.
VONAST EFTIR VIÐURKENNINGU
ÉG VEIT EKKI ALVEG HVAÐA TITIL MIG LANGAR Í, ÆTLI MIG LANGI EKKI BARA Í ÞÁ ALLA
FYRIR FALLEGAN VÖXT
Helga Dýrfinna fór af landi brott í gær en hún lendir í Shanghai á morgun, þar sem fyrsti hluti
keppninnar fer fram. Um 110 stúlkur
taka þátt í keppninni víðs vegar að úr
heiminum. „Ég er orðin rosalega spennt
fyrir keppninni og öllu því sem henni
fylgir,“ segir Helga Dýrfinna í spjalli við
Sirkus. „Þetta er náttúrlega rosalega stór
keppni en hún leggst vel í mig og þetta
er mikið tækifæri til að komast út. Þetta
er bara þetta eina skipti og ég ætla að
reyna að njóta þess og vera bara ég sjálf
– það virkar yfirleitt best.“
Stífar æfingar
Það er ekki auðvelt að taka þátt í
svona fegurðarsamkeppni. Helga
Dýrfinna hefur stundað stífar æfingar
síðustu mánuði til að líta sem best út
þegar keppnin sjálf hefst. „Ég hef tekið
mataræðið í gegn og svo reyni ég að fá
húðina sem fallegasta. Ég lyfti tvisvar í
viku til að fá vöðvana fallega og fer
einu sinni í viku í smá brennslu en ég
þarf samt ekki að grenna mig,“ segir
Helga Dýrfinna.
Helga Dýrfinna fór í smá kínversku
kennslu áður en hún flaug út. „Það er
kínversk kona að vinna með mér og
hún hefur verið að kenna mér svolítið,“
segir fegurðardrottningin sem starfar
sem sjúkraliði á Landspítalanum í
Kópavogi.
Fimm titlar í boði
Fegurðarsamkeppnin samanstend-
ur í raun af fimm titlum. Ungfrú bik-
iní, Ungfrú diskó, besti þjóðbúningur-
inn, hæfileikaríkasti keppandinn og
svo aðaltitillinn Miss Tourism.
Í hæfileikakeppninni ætlar Helga
Dýrfinna að syngja lagið Somewhere
over the Rainbow. Hún er þegar búin
að taka undirspilið upp hjá Þorvaldi
Bjarna. „Það gekk alveg rosalega vel.
Ég syng lagið úti en verð að taka disk
með mér út til að leyfa aðstandendum
keppninnar að heyra,“ segir Helga sem
spilaði á orgel þegar hún var yngri.
„Ég get nú bara aðeins glamrað á það
núna. En ég hef sungið síðan ég var
sex ára og var meðal annars í Kársnes-
kórnum hjá Tótu.“
Helga Dýrfinna hefur einnig látið
sauma á sig diskókjól fyrir diskó-
keppnina. „Ég veit samt ekki alveg
hvað á að gera í þeirri keppni. Kannski
á ég að dansa svo ég ætla að taka lag
með mér sem ég get dansað við,“ segir
hún hlæjandi. „Ég ætla bara að reyna
að vera áberandi, það virkar vel. Ég er
algjör glimmer og glamúr gella og get
verið áberandi ef ég vil,“ segir Helga
Dýrfinna kokhraust.
Heiður að vinna
hæfileikakeppnina
„Ég veit ekki alveg hvaða titil mig
langar í, ætli mig langi ekki bara í þá
alla,“ segir hún hlæjandi. „En mig lang-
ar ekkert endilega í diskódrottningar-
dótið. Það væri mikill heiður að vinna
hæfileikakeppnina fyrir sönginn og
það er ábyggilega gaman að vinna bik-
iníkeppnina – fá viðurkenningu fyrir
það að vera flott vaxin.“
Helga Dýrfinna mun ekki prýðast
hefðbundnum íslenskum skautbún-
ingi í þjóðbúningakeppninni. „Þetta
er kyrtill, blái búningurinn, sem er
rosalega flottur. Búningurinn kemur
mjög vel út og saumakonan sagði að
ég væri með grannt mitti alveg eins og
þær í gamla daga.“
Á leið í heilbrigðisverkfræði
Helga Dýrfinna verður ekki alveg
ein þennan mánuð sem keppnin
stendur. Kærastinn hennar mun þó
heimsækja hana sem og fjölskylda
hennar. En á hún ekki eftir að sakna
kærastans? „Jú, alveg pottþétt en ég
vona bara að það verði svo mikið að
gera að tíminn verði fljótur að
líða.“
Helga Dýrfinna er þegar byrjuð
að plana framtíðina. Hún er búin
að skrá sig í heilsuverkfræði í
Háskólanum í Reykjavík. „Það
hentar mér vel að vera í skóla. Mér
finnst líka alltaf gaman að módel-
ast og væri til í að halda því áfram.
Svo ætla ég að halda áfram með
sönginn og ætla í skólann hjá Þor-
valdi Bjarna í haust,“ segir þessi
glæsilegi fulltrúi Íslands í Miss
Tourism-keppninni.
SIR
K
USM
YN
D
IR
/AN
TO
N
BR
IN
K