Fréttablaðið - 06.07.2007, Page 42

Fréttablaðið - 06.07.2007, Page 42
BLS. 14 | sirkus | 6. JÚLÍ 2007 Uppáhalds staðurinn minn FÖGNUÐUR Gestir Eyþórs og Dagmarar Unu fögnuðu þeim ákaft þegar þau komu út úr kirkjunni. MYND/KATRÍN JÓNSDÓTTIR PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON „Auðvitað mun maður einnig grípa í míkrafón- inn og troða upp þegar leikar standa sem hæst en ég ætla að spila sem mest af þeim lögum sem hafa höfðað til homma og lesbía í gegnum tíðina.“ M aður hristir ekki hátíð eins og Gay pride fram úr erminni og þetta styrktarball er einn liður í því að koma hátíðinni heim og saman enda starfa allir sem að henni koma í sjálfboðavinnu,” segir Páll Óskar Hjálm- týsson sem mun halda uppi fjörinu á NASA laugardaginn 07.07.07 á árlegu styrktarballi hátíðarinnar. Páll Óskar tekur undir að með styrktarballinu sé um nokkurs konar forskot á sæluna að ræða en sjálf Gay-pride-hátíðin fer fram eins og venjulega annan laugardag í ágúst. „Gay-pride byrjaði sem kröfu- ganga en nú þegar helstu mannréttindi eru komin í gegn hér á landi breytist hátíðin í þakkargjörð og því frábær leið til að halda partí en Ísland er náttúrlega lúxusstaður fyrir homma og lesbíur til að búa á,“ segir Páll Óskar sem verður plötusnúðurinn á ballinu annað kvöld. „Auðvitað mun maður einnig grípa í míkrafóninn og troða upp þegar leikar standa sem hæst en ég ætla að spila sem mest af þeim lögum sem hafa höfðað til homma og lesbía í gegnum tíðina,“ segir hann en bætir við að ballið sé að sjálf- sögðu fyrir alla þótt fókusinn sé á homma, lesbíur, tvíkynhneigða og trans gender fólk. Ballið er á morgun laugar- dag, en hægt er að kaupa miða í forsölu í dag á NASA. Miðaverð er 1000 krónur sem rennur óskipt til Gay-pride. indiana@frettabladid.is BALLIÐ ER FYRIR ALLA B rúðkaupið var alveg ljómandi vel heppnað og það voru allir himinlifandi. Þetta gekk fram- ar vonum,“ segir Dagmar Una Ólafs- dóttir sem gekk að eiga athafnamann- inn Eyþór Arnalds á laugardaginn var. Athöfnin fór fram í Selfosskirkju og það var séra Gunnar Björnsson sem gaf þau saman. Veislan fór hins vegar fram í Listasafni Reykjavíkur og þar var engu til sparað. Stórleikarinn Benedikt Erlingsson var veislustjóri en meðal þeirra tónlistarmanna sem komu fram má nefna Stefán Hilmars- son úr Sálinni hans Jóns míns sem og hljómsveitina Todmobile með brúð- gumann sjálfan í broddi fylkingar. Todmobile lék meðal annars Brúð- kaupslagið sem sveitin gerði frægt á árum áður. „Það var alveg yndislegt að heyra lagið enda er það alveg ótrúlega fal- legt. Ég var náttúrlega búin að heyra það áður en það var sérstaklega gaman að heyra það á sjálfan brúð- kaupsdaginn,“ segir Dagmar Una. Dagmar Una þótti skarta sínu feg- ursta á brúðkaupsdeginum, klædd gylltum brúðarkjól prýddum Swarov- sky-steinum, sem hönnuðurnir Munthe og Simonsen gáfu henni í til- efni dagsins. Og Dagmar var að vonum ánægð með vel heppnaðan dag. „Við stungum af aðeins fyrr en þetta fór allt vel fram. Ætli fólk hafi ekki skemmt sér fram undir miðnætti,“ segir Dagmar Una en það kom í hlut kántrísveitarinnar Klaufa að halda uppi fjörinu fram eftir kvöldi. Eyþór söng til Dagmarar Unu „Seyðisfjörður er einstaklega fallega staðsettur og það er vinaleg og mannleg stemning í bænum. Mikið er lagt upp úr varðveitingu og upp- gerð gamalla húsa sem mér finnst vera virðingavert og um leið búa til ákveðna stemningu og hjarta í bæinn. Góð kaffihús og frábært menningarlíf. Ég mæli eindregið með gistingu í mongólska tjaldinu en það er upplifun út af fyrir sig.“ Dýrleif Örlygs- dóttir „Uppáhaldsstaðurinn minn er sveitin mín rétt hjá Kirkjubæjarklaustri. Þetta er sveitasetur sem er í ættinni og við erum þarna eins mikið og við getum. Ég er meira að segja á leiðinni þangað núna.“ Þórunn Högnadóttir sjónvarpskona „Uppáhaldsstaðurinn minn er sundlaugin í Laugaskarði í Hveragerði. Þetta er besta sundlaug í heimi. Það er ótrúlega fallegt og friðsælt í henni og gott að vera.“ Rakel Magnúsdóttir söngkona „Minn uppáhaldsstaður á landinu eru heimahagarnir. Ég er alin upp í Merki á Jökuldal og það er hvergi fallegra á landinu, að mínu mati. Mér þykir sérstaklega vænt um einn blett en það er lítil laut sem er í stóru gili sem heitir Tregagil. Í þessari laut er yndislegt að sóla sig á góðviðrisdögum og stinga sér til sunds í ískaldri Tregagilsánni sem rennur þarna hjá.“ Dagmar Ýr Stefánsdóttir, fréttakona N4 SPURNINGAKEPPNI sirkuss Sv ör :1 .Í sa be lla (H en ríe tta In gi ríð ur M ar gr ét ). 2. A nn an la ug ar da g í á gú st e ða 1 1. á gú st . 3 . Ca t D ee le y. 4 . Rú m ar 6 0 m ill jó ni r. 5. K A. 6 . Is ai ah W as hi ng to n eð a D r. Bu rk e. 7 . P ál l Ó sk ar . 8 . E in ar M ár G uð m un ds so n. 9 . D an ie l Ra dc lif fe . 1 0. E va L on go ria . Logi Bergmann 1. Ísabella. 2. 11. ágúst. 3. Hef ekki hugmynd. 4. 20 milljónir. 5. Fjarðabyggð. Ólafía Hrönn 1. Ísabella. 2. Annan laugardag í ágúst. 3. Susan. 4. 30 milljónir. 5. KA. Ólafía Hrönn stöðvar hér með sigurgöngu Loga Bergmanns. Logi Bergmann skorar á Helga Seljan í Kastljósinu. Fylgist með í næstu viku. 1. Hvað heitir dóttir dönsku krón- prinshjónanna? 2. Hvaða dag verður Gay pride- hátíðin haldin? 3. Hvað heitir kynnirinn í So you think you can dance? 4. Hvað búa margir í Frakklandi? 5. Með hvaða 1. deildar liði í knattspyrnu spilar Hjalti Már Hauksson? 6. Hver var rekinn úr Gray’s Anatomy? 7. Hver gaf frá sér danslagið Allt fyrir ástina á dögunum? 8. Hver skrifaði bókina Nafnlausir vegir? 9. Hver leikur Harry Potter? 10. Hvaða aðþrengda eiginkona mun ganga í það heilaga 070707? LOGI BERGMANN EIÐSSON HEFUR VERIÐ ÓSIGRANDI SÍÐUSTU VIKURNAR. HANN SIGRAÐI SÓLEYJU ELÍASDÓTTUR LEIKKONU SEM SKORAÐI Á HALLDÓRU GEIRHARÐS- DÓTTUR SEM ER ERLENDIS OG ÞVÍ TÓK ÓLAFÍA HRÖNN JÓNSDÓTTIR ÁSKORUNINNI. 6. Isaiah Washington. 7. Páll Óskar. 8. Sjón. 9. Daniel Radcliffe. 10. Eva Longoria. 6 RÉTT SVÖR 6. Dr. Burke. 7. Páll Óskar. 8. Einar Már Guðmundsson. 9. Daniel Radcliffe. 10. Þessi dökkhærða. 7 RÉTT SVÖR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.