Fréttablaðið - 06.07.2007, Page 50

Fréttablaðið - 06.07.2007, Page 50
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. GULL- BRÚÐKAUP Hinn 13. júlí 1957 lögðu leið sína upp að altarinu í Hóladómkirkju þau María Pálsdóttir frá Hofi og Þórarinn Þórarinsson frá Vogum til að vinna hvort öðru ævilangt hjúskaparheit. Síðan hafa þau búið búi sínu í Vogum og meðal annars fætt og alið upp fimm mann- vænleg börn. Í tilefni þessara tímamóta verða þau hjón með opið hús til gestamóttöku í Skúlagarði föstudaginn 13. júlí næstkomandi frá kl. 19.00 og vænta þess að sem allra flestir vinir og vandamenn sjái sér fært að gleðjast með þeim þessa kvöldstund. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ingimundur Einarsson, áður bóndi í Leyni, Laugardal, Fossvegi 4, Selfossi, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands að morgni 4. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Lilja Guðmundsdóttir Guðrún Ingimundardóttir Þórir Snorrason Svanheiður Ingimundardóttir Magnús Guðjónsson Guðmundur Óli Ingimundarson Roswitha M. Hammermuller Fjóla Ingimundardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þorvaldur Þorvaldsson, bílstjóri, Núpalind 2, Kópavogi, lést á Landakoti þriðjudaginn 3. júlí. Þorvaldur Þorvaldsson Þorgerður Þorvaldsdóttir Jón Helgason Arnbergur Þorvaldsson Hanna Margrét Geirsdóttir Gróa María Þorvaldsdóttir Ingólfur Garðarsson barnabörn og langafabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Svanlaug Þorsteinsdóttir, Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ, lést á Hjúkrunarheimilinu Eiri 29. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Guðrún Aðalsteinsdóttir Sverrir Guðmundsson Þorgerður Aðalsteinsdóttir Jón Björnsson Ísfold Aðalsteinsdóttir Þorsteinn Aðalsteinsson Kristín Egilsdóttir Helga Aðalsteinsdóttir Aðalsteinn Aðalsteinsson Unn Krogen Birgir Aðalsteinsson Ásthildur Skjaldardóttir Svanlaug Aðalsteinsdóttir Brynjar Viggósson barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Helgigöngur undir Jökli fara fram í dag og á morgun á vegum Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls og Ingjaldshólskirkju. Doktor Pétur Pétursson og Sæmund- ur Kristjánsson leiðsögumaður og landvörður munu fara fyrir göngunni, ásamt Ragnheiði Karítas Pétursdótt- ur, sóknarpresti í Ingjaldshólspresta- kalli, sem sér um helgihald. „Við göngum þarna Guði til lofs og dýrðar, í lotningu og þökk fyrir sköp- unarverkið og áminnum um mikil- vægi þess að vernda náttúruna,“ út- skýrir Ragnheiður. „Ég sem sóknar- prestur mun annast helgistundir í upphafi og lok ferðana. Sæmundur Kristjánsson fléttar inn í þetta fróð- leik um staðarhætti og fleira á leið- inni. Á meðan verður doktor Pétur Pétursson með andlegar hugleiðingar og er því kannski rétt að kalla hann andlegan leiðtoga gangnanna.“ Gangan í dag hefst klukkan 19.30 við forna kirkjustaðinn Saxhól. Þar fer fram helgistund og ferðabless- un. Að svo búnu er förinni heitið um gamla þjóðveginn um Prestahraun og endað á Ingjaldshólskirkju klukkan hálf þrjú um nóttina, með helgistund og klukknahringingu. „Dagskrá seinni dagsins hefst klukkan 15.30 með viðkomu í Einars- lóni, sem er líka forn kirkjustaður,“ segir Ragnheiður. „Þar verður önnur helgistund og ferðablessun. Þaðan verður gengið upp Hellnakirkju, þar sem göngunni lýkur formlega með messuhaldi og altarisgöngu. Ekki er gist um nóttina en skipulagðar rútu- ferðir verða frá Ingjaldshóli að Sax- hóli fyrri daginn og frá Hellnakirkju að Djúpalónssandi þann seinni.“ Ragnheiður segist eiga von á góðri þátttöku þar sem vel hafi verið mætt í fyrra á Jónsmessu, þegar Helgi- göngur fóru fram í fyrsta sinn. „Þá slóst Jónína Bjartmarz, þáverandi umhverfisráðherra, með í för sem sérstakur heiðursgöngustjóri,“ rifjar hún upp. „Ásamt björgunarsveitinni Lífsbjörg í Snæfellsbæ, sem ætlar að endurtaka leikinn í ár til að tryggja örygga þátttakenda.“ Að lokum vill Ragnheiður benda áhugasömum á að taka með sér góða gönguskó, léttan bakpoka með regn- fatnaði og nesti og drykkjarvatn, þar sem ekki verði boðið upp á mat. Fólki gefist hins vegar tækifæri til að snæða þegar hlé verða gerð á göng- unni, fyrir sögustundir og andlegar hugleiðingar. AFMÆLISBÖRN Anna Frank og fjölskylda fara í felur www.minningargreinar.is „Ég mála sjálfsmyndir af því að ég er svo oft ein ... ég er viðfangsefnið sem ég þekki best.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.