Fréttablaðið - 06.07.2007, Qupperneq 58
Nú þegar árið 2007 er hálfnað er ekki úr vegi að staldra við og skoða stöð-
una í tónlistarheiminum. Og þá kemur tvennt upp í hugann. Í fyrsta lagi
að hnignun tónlistariðnaðarins heldur áfram og í öðru lagi að árið stefnir
í að verða yfir meðallagi hvað gæði útgefins efnis varðar. Það fyrrnefnda
þrátt fyrir það síðarnefnda...
Plötusala í Bandaríkjunum hefur dregist
saman um sextán prósent það sem af er ársins
og samdrátturinn er mun meiri ef litið er til
baka til ársins 2000. Annarsstaðar í heiminum
er líka samdráttur þó að hann sé heldur minni.
Á Íslandi hefur verið aukin sala á innlendum
plötum undanfarin ár, en minni sala á erlendu
efni. Tölur fyrir árið 2007 liggja ekki á lausu.
Samkvæmt úttekt Rolling Stone hefur 5.000
starfsmönnum í plötuiðnaðinum í Bandaríkj-
unum verið sagt upp störfum á síðustu sex
árum (nú síðast 400 manns hjá Warner í maí)
og stóru plötufyrirtækin eiga í verulegum
vandræðum. Niðurhal og samkeppni við aðra
afþreyingu eru helstu ástæður. Plötubúðum
hefur líka fækkað mikið bæði í Bandaríkjun-
um og Evrópu og nú sem fyrr eru uppi kenn-
ingar um að dagar plötunnar séu senn taldir.
Ef gæði útgáfunnar er einhver vísbending þá er hinsvegar ekki ástæða
til að óttast. Í ár eru þegar komnar út fjölmargar frábærar plötur bæði
íslenskar og erlendar. Ég nefni sem dæmi nýjar plötur LCD Soundsyst-
em, Battles, Of Montreal, The National, Dizzee Rascal, Deerhunter, Ju-
stice og Rufus Wainwright í erlendu deildinni og plötur Seabear, Skáta,
Ólafar Arnalds, Aminu, Bjarkar, Gus Gus og Ölvis í þeirri innlendu.
Það hriktir í stoðum gömlu útgáfurisanna og útgáfulandslagið á
kannski eftir að gjörbreytast á næstu árum. Persónulega er ég hinsveg-
ar engan veginn tilbúinn að samþykkja þær hrakspár að platan sem slík
leggist af og tónlistarmenn fari bara að gefa út stök lög og spila á tónleik-
um. Allar bestu plöturnar eru heildstæð verk, ekki bara safn af lögum
og ég held að hvort sem þær verði seldar á diskum eða MP3-skrám eða
hreinlega gefnar þá muni tónlistarmenn áfram finna hjá sér þörf til að
búa til plötur.
Gott plötuár þrátt
fyrir samdrátt
Margverðlaunaður danshöfundur og einn af dómurum So You Think You Can Dance
DANSFESTIVAL DWC
21.-22. JÚLÍ
Allar nánari upplýsingar í síma 553 0000 í World Class, Laugum. Sjá einnig www.worldclass.is
Hefur hlotið American
Dance Music Awards og
MTV Awards, sem besti
danshöfundurinn.
Dan Karaty kemur
sérstaklega á vegum:
NÁMSKEIÐIN ERU
FYRIR ALLA!
SKIPT Í BYRJENDA- OG
FRAMHALDSHÓPA
ÞAÐ HEITASTA
FRÁ NEW YORK
!
VILT ÞÚ EIGA
DANSTÍMA
MEÐ
DAN KARATY?
EINUNGIS ÞESS
A HELGI!
100% SKEMMTU
N
LOFAÐ!!!
SJÓÐHEITAN
Danshöfundur m.a. Jessicu
Simpson, Kylie Minogue og
Britney Spears.
GÓÐUR OG SVALANDI
DANSGLEÐI með:
Þriðja plata Interpol er
væntanleg í búðir eftir
helgi en þriðja plata ýmissa
listamanna hefur oft reynst
þeim þrautinni þyngri.
Steinþór Helgi Arnsteins-
son athugaði málið betur.
Hljómsveitin Interpol byrjaði fyrst
að vekja athygli upp úr síðustu
aldamótum og eftir stuttan túr um
Bretland var sveitin meðal annars
fengin til að spila hjá útvarpsmann-
inum John Peel hjá BBC. Hljóm-
sveitin samdi loks við plötuútgáf-
una Matador sem þykir með þeim
virtari í sínum bransa (hefur haft á
sínum snærum sveitir eins og Yo la
tengo, Pavement, Belle & Sebastian
og fleiri). Í lok árs 2002 leit síðan
platan Turn on the Bright Lights
dagsins ljós sem er án nokkurs vafa
ein af betri plötum áratugarins.
Önnur platan, Antics, kom út
tveimur árum seinna og fékk ekki
nærri eins góðar viðtökur hjá
gagnrýnendum. Nýlega var platan
meira að segja valin ein af mestu
vonbrigðum seinni ára hjá einum
blaðamanni Stylus Magazine. Við-
tökurnar voru samt sem áður engan
veginn falleinkunn fyrir sveitina
enda seldist Antics frekar vel og
er þrátt fyrir allt stórfín plata sem
hefur margt upp á að bjóða.
Nú, nærri þremur árum eftir Ant-
ics, hefur Interpol kvatt Matador
og er búið að flytja sig yfir til eins
af plöturisunum. Ekkert óvenju-
legt skref, ef út í það er farið, enda
sveitin orðin eitt af stærstu nöfnun-
um í tónlistarsenunni í dag. Þetta
hafa einnig margar stórkostlegar
sveitir gert við fínan orðstír (Sonic
Youth, Modest Mouse og R.E.M til
þess að nefna örfáar).
Our Love to Admire heitir svo nýi
gripurinn. Inniheldur ellefu lög og
eiga þau að tryggja stöðu sveitar-
innar og helst auðvitað að bæta um
betur. Mörg bönd og margir tónlist-
armenn hafa hins vegar lent í mikl-
um vandræðum með þriðju breið-
skífu sína. Interpol er samt þannig
sveit að nánast engar líkur eru á
því að nýja platan floppi. Mikið
hefur samt gengið á hjá sveitinni
enda viðurkenndi trommarinn Sam
Fogarino í færslu á heimasíðu Int-
erpol í fyrra að bandið hefði hætt
fjórum sinnum á síðustu misserum.
Lítið hefur verið skrifað um nýju
plötuna enda eru meðlimir Interpol
þekktir fyrir andúð sína á fjölmiðl-
um. Aðalgítarleikari sveitarinnar,
Daniel Kessler, sagði hins vegar
nýlega í viðtali við NME að sveitin
hefði notast við hljómborð frá upp-
hafi til enda við gerð plötunnar, eitt-
hvað sem Interpol hefur ekki gert
áður. Þeir fáu miðlar sem skrifað
hafa um plötuna til þessa lýsa henni
sem mun útværari en fyrri plötur
og hafi mun grófari áferð. Fyrsta
smáskífa plötunnar, The Heinrick
Maneuver, gefur til kynna að sveitin
ætli að halda sínu striki og ber með
sér þennan eitraða Interpol-keim.
Kemst þó ekki upp á sama stall og
mörg bestu lög sveitarinnar.
Sveitinni hefur tekist líka stórvel að
koma í veg fyrir leka á plötunni og
erfitt hefur verið að nálgast hana,
nánast ómögulegt. Fáir dómar hafa
einnig litið dagsins ljós. Níu af tíu
hjá Drowned in Sound og eingöngu
þrír af fimm hjá All Music Guide
gefa manni lítið meira en eitt stórt
spurningarmerki.
Sveitin hefur verið að spila vítt
og breitt um Evrópu um þessar
mundir og fer síðan til Bandaríkj-
anna í haust. Ég sá sveitina spila
í Noregi um síðustu helgi og varð
fyrir nokkrum vonbrigðum. Með-
limir virtust hálf áhugalausir og
spiluðu eingöngu þrjú lög af nýju
plötunni. Undir lokin náði sveitin
samt að framkalla þá töfra sem ég
tengi við Interpol. Gefur manni von
um að nýja platan valdi ekki von-
brigðum en hún kemur í verslanir
hérlendis næstkomandi mánudag.
„Platan kom áður út fyrir tíu
árum, þann sjöunda sjöunda
1997. Þetta er hugmynda-
fræðileg plata sem geng-
ur alfarið út á töluna sjö og
verknaðinn við að gera plöt-
una frekar en lögin sjálf,“
segir Curver sem endurút-
gefur plötuna Sjö á morgun.
Platan var tekin upp á sjö
dögum árið 1997. Í 7 daga
vaknaði Curver klukkan 7.00
á morgnana eftir 7 klukku-
tíma svefn. Til að vakna tók
hann 7 armbeygjur og fór
svo í 7 mínútna sturtu. Frá
klukkan 7.00 til 24.00 hafði
hann 17 klukkutíma til að
semja og taka upp grunn að lagi á 7 hljóð-
rásir. Lögin eru allt að sjö mínútur á lengd
en byrja á sjö mínútna fresti
þannig að ef lagið er fjórar
mínútur er þriggja mínútna
þögn þar til næsta lag byrjar.
„Ég hafði það alltaf í huga
að endurútgefa plötuna
07.07.07. Mig langaði samt
til að gera þetta einhvern
veginn upp á nýtt þannig að
hún kemur út á DVD disk.
Á disknum er stafræn end-
urhljóðjöfnun af plötunni,
upptaka af plötuspilara að
spila alla plötuna, viðtal sem
Andrea Jóns tók við mig á
sínum tíma í tilefni útgáf-
unnar, alls konar myndir og
fleira dót.“
Platan kemur út í 77 númeruðum eintök-
um sem kosta 777 kr stykkið.
Curver endurútgefur Sjö