Fréttablaðið - 06.07.2007, Síða 64
Knattspyrnuheimurinn
logaði í gær vegna síðara marks
Bjarna Guðjónssonar gegn Kefla-
vík í fyrrakvöld. Þegar Keflvík-
ingar bjuggust við því að Bjarni
myndi láta þá fá boltann eftir að
leikmaður ÍA fékk aðhlynningu
vegna meiðsla hafnaði boltinn í
marki Keflavíkur eftir langskot
Bjarna.
Sjálfur segir Bjarni að hann hafi
aldrei ætlað að skora úr skotinu.
Hann vildi losa pressuna og senda
boltann aftur fyrir endamörk.
„Ég er fyrsti maðurinn til að
viðurkenna að ég ætlaði aldrei að
skora. Ef það hefði verið ætlun
mín væri líðan mín í dag ekki eins
og hún er,“ sagði Bjarni. „Við-
brögð mín eftir að ég skora hljóta
að sýna og sanna að ég ætlaði ekki
að skora.“
Keflvíkingar hópuðust að
Bjarna eftir atvikið og þurfti að
stía mönnum í sundur.
Spurður hvort ekki hefði verið
hægt að leiðrétta þetta mark með
því að leyfa Keflvíkingum að skora
strax í næstu sókn sagði Bjarni að
það hefði sennilega verið hægt að
gera einmitt það.
„Hins vegar voru viðbrögð Kefl-
víkinga ekki í lagi. Þeir réðust að
mér, ekki bara einn eða tveir held-
ur allir. Það er ekki þeim að þakka
að ég var ekki sleginn niður, held-
ur því að ég var dreginn í burtu.“
Bjarni sagðist hafa rætt þetta
mál við þjálfara ÍA, Guðjón Þórð-
arson. Sjálfur sagði Guðjón í sam-
tali við Fréttablaðið að viðbrögð
Keflvíkinga hefðu ekki gefið til-
efni til þess að gefa þeim mark á
móti.
„Það varð allt vitlaust,“ sagði
Guðjón. „Ef þeir hefðu bakkað frá
á þessum tímapunkti og við hefð-
um getað rætt málin, hefðum við
getað leyft þeim að labba í gegn og
skora. Sú staða komst hins vegar
aldrei á koppinn vegna framkomu
Keflvíkinga.“
Kristján Guðmundsson, þjálfari
Keflvíkinga, er ekki að kaupa af-
sakanir feðganna.
„Ég stend við það sem ég sagði
í sjónvarpsviðtalinu eftir leik,“
sagði hann. Þá sagði hann að
Bjarni hafi gert þetta með ásetn-
ingi og væri honum til skammar.
„Mér finnst einnig að ekkert
skuli hafa verið gert í framhald-
inu mjög óheiðarlegt og óíþrótta-
mannslegt.“
Hann segir að ásetningur
Bjarna hafi verið greinilegur.
„Hann var búinn að reyna þetta
áður en hitti bara ekki. Það er
líka óeðlilegt að sparka boltanum
frá miðju og koma honum þannig
aftur fyrir endamörk. Það er bara
óeðlilegt.“
Bjarni sagði aðspurður að hann
myndu engu breyta fengi hann
tækifæri til þess. „Ekki miðað
við hvernig viðbrögð Keflvíkinga
voru eftir leikinn. Það viðhorf
sem þeir sýndu sérstaklega eftir
leikinn finnst mér til háborinnar
skammar.“
Skilaboð hans til Keflvíkinga
voru skýr. „Markið sem ég skor-
aði átti aldrei að verða mark. Ég
biðst afsökunar á því. Sennilega
hefði verið hægt að leysa málið
öðruvísi. En úr því sem komið var
er markið minnsta áhyggjuefnið
af því sem gerðist í lok leiksins og
eftir hann.“
Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, sagði að ekki hafi komið til greina að gefa Keflavík mark á móti marki
Bjarna Guðjónssonar vegna viðbragða þeirra eftir markið. Þjálfari Keflvíkinga sagði framkomu Skaga-
manna óheiðarlega og óíþróttamannslega. Bjarni segir að markið umrædda hafi verið slysamark.
Aðstandendum ÍA og
Keflavíkur ber ekki saman um
atburðarrásina sem átti sér stað
að loknum leik liðanna í fyrra-
kvöld. Ljóst er að Bjarki Freyr
Guðmundsson, varamarkvörður
Keflavíkur og fyrrum leikmaður
ÍA, og eiginkona Bjarna Guðjóns-
sonar áttu orðaskipti.
Sjálfur sagði Bjarni að eigin-
kona sín hafi verið miður sín eftir
atvikið. „Það er vægt til orða tekið.
Þetta var mikið sjokk fyrir okkur.
Ég hef spilað mikið af leikjum við
misjafnar aðstæður en yfirleitt
eru öll deilumál einfaldlega búin
þegar leikurinn er flautaður af.“
Bjarni gat ekki sagt frá því hvað
þeim fór á milli en Guðjón Þórð-
arson, þjálfari ÍA, sagði málið al-
varlegt. Spurður um hvort hótan-
ir um líkamsmeiðingar og þaðan
af verra hafi átt sér stað svaraði
hann því játandi.
„Það er ekkert sem réttlætir
þá framkomu að vaða á konu sem
er með börnin sín á leikvelli með
svívirðingum og hótunum. Það er
eitthvað sem knattspyrnuyfirvöld
geta ekki látið ótalið. Það verður
fjallað um þetta í okkar garði því
við munum aldrei geta sætt okkur
við þetta. Það er ekkert sem ger-
ist út á fótboltavelli sem réttlætir
svona framkomu.“
Bjarki Freyr vísaði þessu alger-
lega á bug í samtali við Fréttablað-
ið.
„Ég vil segja sannleikann sem
er að þetta er helber lygi. Hún
(eiginkona Bjarna) öskraði í and-
litið á mér og var einfaldlega í
móðursýkiskasti. Hún öskraði
tóma vitleysu. Það síðasta sem ég
sagði við hana er að hún ætti frek-
ar að lesa yfir manninum sínum
hvað heiðarleiki er.“
Bjarki vísaði einnig fullyrðing-
um um áðurnefndar hótanir á bug.
„Guðjón Þórðarson er þekktur
lygari og gerir allt til að hreinsa
sjálfan sig af einhverjum sökum.
Hvar sem hann hefur verið hefur
allt verið öllum öðrum en honum
að kenna.“
Kristján Guðmundsson tekur
undir orð Bjarka Freys. „Ég er
orðlaus yfir þeirri umræðu sem
hefur átt sér í stað í fjölmiðlum í
dag og þeim orðum sem þeir feðg-
ar hafa látið út úr sér.“
Sjálfur segist hann hafa átt
orðaskipti við konu sem honum
skilst að sé eiginkona Bjarna Guð-
jónssonar.
„Þegar ég labba upp að vallar-
húsinu byrjar þessi kona að öskra
á mig og spyr hvort ég ætli að
standa við það sem ég sagði í sjón-
varpsviðtalinu á Sýn. Hún hót-
aði mér einnig málshöfðun vegna
líkamsárásar. Þannig hefst þetta
og ég veit að það var hún sem
réðst að Bjarka, ekki öfugt.“
Hann ítrekaði furðu sína á um-
mælum Skagamanna. „Menn eiga
ekki að kasta steinum úr glerhúsi,
sérstaklega ekki í þeirri aðstöðu
sem þeir feðgar eru nú í eftir
þetta atvik. Ég hef farið yfir þessi
mál með leikmönnum okkar og við
erum sjálfir með vitni að þessum
atburði.“
Ásakanir á báða bóga hjá ÍA og Keflavík
Stimpingar fyrir framan búningsklefa ÍA
Síðara mark Bjarna Guð-
jónssonar fyrir ÍA gegn Keflavík í
fyrrakvöld er væntanlega eitt það
umdeildasta sem hefur verið skor-
að í íslenskri knattspyrnu. Þannig
lýsir Bjarni markinu sjálfur en
hann fékk boltann eftir að Skaga-
menn taka innkast. Þá hafði leik-
maður Keflavíkur sparkað boltan-
um út af svo að hægt væri að hlúa
að leikmanni ÍA sem lá meiddur á
vellinum.
„Ég fékk boltann eftir innkastið.
Ég er að fara að sparka boltanum
yfir til Keflvíkinga þegar ég heyri
að Baldur (Sigurðsson) kemur utan
í mig. Það fyrsta sem ég hugsa þá
er að hann megi ekki fá boltann á
þessum vallarhelmingi.
Aðeins nokkrum mínútum áður
gerði ég sama hlutinn og sparka
boltanum þannig að markvörður-
inn getur tekið markspyrnu.
Þarna ætlaði ég að gera það ná-
kvæmlega sama. Baldur hleypur
tvö til þrjú skref og hættir svo.
Ég vissi það ekki og er kominn á
ferð með boltann þegar ég skýt
honum. Ég vissi ekki af Ómari (Jó-
hannssyni, markverði Keflavíkur)
og horfi ekki á hann þegar ég tek
skotið.“
„Má ekki missa
boltann þarna“
Síðara markið sem Bjarni
Guðjónsson skoraði fyrir ÍA gegn
Keflavík í fyrrakvöld á sér ekki
mörg fordæmi en svipað atvik átti
sér stað í leik KR og Fram árið
1995.
Í stöðunni 1-1 meiðist KR-ingur
og Framarar sparka boltanum út
af. KR tekur innkast og spila bolt-
anum áfram í sókn þar sem Einar
Þór Daníelsson skorar gegn óvið-
búinni vörn Framara.
„Við vildum meina að leikur-
inn hefði aldrei stöðvast vegna
meiðsla. Það getur vel verið að það
hafi verið misskilningur í gangi,“
sagði Einar Þór þegar hann rifjar
atvikið upp. Hann segir að aldrei
hafi komið til greina að gefa Fram
mark.
„Framarar voru súrir en það
voru engin slagsmál eða leiðindi
sem fylgdu,“ sagði Einar. Þess
má svo geta að Guðjón Þórðarson,
þjálfari ÍA, var þá þjálfari KR.
KR skoraði líkt
mark árið 1995