Fréttablaðið - 06.07.2007, Síða 67
Miðjumaðurinn Stefán
Gíslason skrifaði í gær undir fimm
ára langan samning við danska úr-
valsdeildarliðið Bröndby. „Það er
mikill léttir að vera búinn að klára
þetta og ég er mjög sáttur,“ sagði
Stefán en félagið hefur fylgst með
honum í nokkurn tíma.
Stefán var seldur frá Lyn í Nor-
egi þar sem hann hefði orðið samn-
ingslaus í haust. „Það voru nokk-
ur félög sem sýndu mér áhuga en
mér fannst Bröndby vera mest
spennandi kosturinn og það var
alltaf fyrsti kostur hjá mér. Ég lít
á þetta sem skref upp á við fyrir
mig. Ég var búinn að ákveða að
færa mig um set frá Lyn fyrir
nokkru síðan,“ sagði Stefán.
Stefán skoðaði sig um hjá fé-
laginu í gær og leist vel á það sem
hann sá. „Þetta lítur virkilega vel
út. Allar aðstæður eru eins og best
verður á kosið og hér er mikið um
hefðir. Markmiðin hjá klúbbnum
eru skýr og metnaðurinn er mikill.
Bröndby lenti í sjötta sæti á síð-
asta tímabili sem er versta geng-
ið er mér sagt síðan félagið var
stofnað. Ég held að mér muni líða
vel hér,“ sagði Stefán.
Talið er að kaupverðið á Stef-
áni nemi allt að 110 milljónum ís-
lenskra króna. Lyn sá þann kost-
inn vænstan að selja Stefán til að
missa hann ekki frítt í haust en fé-
lagið gaf það út að það vildi aldrei
missa landsliðsmanninn.
Valdi mest spennandi kostinn
Forseti Real Madrid,
Ramon Calderon, sagði á opin-
berri heimasíðu félagsins í gær
að rætt hefði verið við fjóra stjóra
með það fyrir augum að þeir
tækju við knattspyrnustjórastöð-
unni hjá félaginu. Þetta eru þeir
Bernd Schuster, Ronald Koem-
an, Michael Laudrup og Arsene
Wenger.
„Við ræddum við þessa fjóra
en það virðist rökrétt að Schuster
verði næsti stjórinn okkar,“ sagði
Calderon jafnframt en allar líkur
eru á því að skrifað verði undir
samninga þessa efnis í næstu
viku.
Rætt við fjóra
mögulega stjóra
Rúnar Kristinsson bað um
skiptingu á 34. mínútu í leik KR
og Fylkis á miðvikudaginn vegna
veikinda. Rúnar sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær að hann hefði
verið slappur undanfarna daga
en taldi sig tilbúinn í slaginn gegn
Fylki. Annað kom þó á daginn.
„Ég prófaði mig fyrir upphitun-
ina sem ég tók svo þátt í en eftir
að leikurinn hófst hafði ég litla
krafta. Ég náði eiginlega ekkert
að vakna í leiknum. Ég bað því um
skiptingu til að setja frískan mann
inn. Ég vona þó að ég sé að hress-
ast,“ sagði Rúnar sem er vongóður
um að geta leikið með KR-ingum í
VISA-bikarnum gegn Val á þriðju-
daginn.
Fór út af
vegna veikinda
Stórleikur verður á Val-
bjarnarvelli klukkan 19.15 í kvöld
þegar topplið Vals og KR mætast
í Landsbankadeild kvenna. Eftir
sex umferðir hafa félögin unnið
alla leiki sína og er því um algjör-
an lykilleik að ræða fyrir fram-
vindu deildarinnar.
Katrín Ómarsdóttir, leikmaður
KR, sagði við Fréttablaðið í vik-
unni að Vesturbæjarliðið yrði að
vinna alla leiki sína í deildinni og
innbyrðisviðureignirnar við Val til
að verða meistari. Elísabet Gunn-
arsdóttir, þjálfari Vals, sagðist í
gær hlakka mjög til leiksins og að
öll einbeiting Valsstúlkna væri á
orrustunni í kvöld.
Stórleikur Vals
og KR í kvöld
U19 ára landslið karla
stendur í ströngu þessa dagana
þar sem það keppir í Gautaborg á
Opna Evrópumótinu í handbolta.
Liðið er komið í milliriðil þar
sem það gerði tvö jafntefli í gær.
Fyrst gerði liðið 22-22 jafntefli við
Tékka og síðar 26-26 jafntefli við
Slóvena.
Í dag mætir Ísland svo Norð-
mönnum og Eistum.
Tvö jafntefli
í Svíþjóð í gær
Þessar vörur fást í verslunum 66°Norður í Faxafeni og Bankastræti.
Vandaðir dún- og fibresvefnpokar
sem halda þér heitum við
íslenskar aðstæður.
Verð frá 10.200 kr.
REYKJAVÍK:
Kringlan
Bankastræti 5
Faxafen 12
KÓPAVOGUR:
Smáralind
GARÐABÆR:
Miðhraun 11
AKUREYRI:
Glerárgata 32
www.66north.is
Komdu og líttu á úrvalið
Útilega framundan?
EXPED Fold Dry Bag
Snilldarlausn fyrir blauta íslenska
veðráttu. Heldur öllu þurru sem
í pokann fer!
Margar stærðir og margir litir.
Verð frá 1.900 kr.
66
°N
o
rð
u
r/
ju
n
i0
7
Hágæða ítalskir gönguskór.
ARC TARP
Eins og verönd við tjaldið þitt.
Tekur 2 mínútur að setja það upp.
1,8 kg pakkað saman. Passar á öll tjöld
og er frábært í garðinn eitt og sér.
24.500 kr.
WALLCREEPER
Wallcreeper svefnpokinn virkar sem svefnpoki,
úlpa og teppi. Fullkomin með Bivy bag til að
sofa undir berum himni.
Gæsadúnn með ribstop skel 1,1 kg pakkaður.
27.800 kr.
EXPED Down Mat
Nauðsynleg fyrir ferðalög á Íslandi.
Margverðlaunaðar dýnur með silikonhúðuðum dún
sem gerir hann vatnsheldan og veitir þrisvar
sinnum meiri einangrun en hefðbundin dýna.
Tekur lítið pláss í bakpokanum.
13.900 kr.
EXPED Bivy Bag
Einstaklega léttur hlífðarpoki sem ver gegn veðri
og vindum án þess að verða rakur að innan.
18.500 kr.
SIM LIGHT dýnurnar
fylla sig sjálfar af lofti.
Léttar og þægilegar,
700 - 900 g pakkaðar.
EXPED Down booty
Gæsadúnsokkar, halda köldum tám hlýjum
og kósý. Tilvalið í tjaldið, bústaðinn eða
heima.Svefnpoki fyrir fæturna,
léttir og þægilegir.
6.900 kr.
SYN MAT 11.500 kr.
eins og Down Mat nema með gervifyllingu
SIM LIGHT Verð frá 8.800 kr.
Grant Hill gerði í gær tveggja
ára samning við Phoenix Suns.
Hill fær um fjórar milljónir dala á
samningstímanum en mikill missir
er að honum fyrir Orlando Magic
en Hill virti einnig fyrir sér til-
boðum frá Detroit Pistons, Miami
Heat, Dallas Mavericks og meist-
araliði San Antonio Spurs.
Hill fór til Suns