Fréttablaðið - 21.07.2007, Page 25
Gunnar Hólm Hjálmarsson
iðnfræðingur fór fyrir tuttugu
manna hópi á vegum Ferðafé-
lagsins Útivist í bakpokaferða-
lag. Farið var um Fljótsdal og
Hraunin.
„Við fórum þessa ferð til að skoða
fossa í Jökulsá í Fljótsdal og
Kelduá, þar sem þeir koma til með
að hverfa eftir sumarið þegar
vatninu í ánum verður veitt í gegn-
um Kárahnjúkavirkjun,“ segir
Gunnar og bætir við að það sé
algjör synd, meðal annars vegna
þess hversu fallegir fossarnir eru.
„Ekki er mörgum kunnugt um
þessa staðreynd, þar sem fáir hafa
séð fossana,“ heldur Gunnar
áfram. „Það er nefnilega engum
fært um Þorgerðarstaðardal nema
gangandi og ríðandi fólki. Fossarn-
ir eru þar af leiðandi á meðal best
földu leyndarmála íslenskrar nátt-
úru.“
Gunnar segir einn flottasta foss-
inn sjálfsagt vera fossinn á ármót-
um Innri-Sauðár og Kelduár, þar
sem tveir fossar koma niður í sama
hylinn. „Síðan er magnað að horfa
upp eftir Kelduá og sjá átta eða níu
fossar bera hvern í annan,“ bætir
hann við. „Ætli þetta sé ekki ein
fallegasta fossaröð sem ég hef séð
og hef ég þó komið víða.“
Að mati Gunnars ber Kirkjufoss
í Jökulsá af vegna formfegurðar.
Fossinn sé mikilfenglegur þar sem
hann fellur niður í djúpt gil og eru
klettar sitthvoru megin við hann.
Ferðalagið tók fimm daga og
fyrir utan fossana hafði hópurinn
viðkomu á mörgum af helstu nátt-
úruperlum svæðisins. Má þar
nefna Hrakströnd, Jökulsá, Eyja-
bakkafoss og Eyjabakkakofa,
Ljósafell, Geldingafell, Folavatn,
Kelduá, Þorgerðarstaðadal og
Tungufell.
Ferðinni lauk síðan við Þorgerð-
arstaði, í Suðurdal, og voru ferða-
langarnir ánægðir við ferðalok
þótt veðrið væri ekki alltaf með
besta móti. Gunnar hvetur sem
flesta að nota tækifærið til að
skoða fossana áður en þeir hverfa
í haust, því þar með komi tíu nátt-
úruperlur til með að hverfa.
Best földu leyndarmál
íslenskrar náttúru
Ferðamannabólusetningar
og ráðgjöf
tímapantanir í síma: 535-7700
Læknasetrið Mjódd, Þönglabakka 1
www.ferdavernd.is ferdavernd@ferdavernd.is
ferðavernd