Fréttablaðið - 28.07.2007, Qupperneq 1
Laugardagur
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í maí 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
38%
B
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
40%
70%
Sigurður Guðmundsson landlæknir glímir við skort og
sjúkdóma í Malaví.
Strákar eiga að vera
smart í veðurblíðunni
Bandaríska
geimferðastofnunin, NASA, hefur
að minnsta kosti tvisvar sinnum
látið drukkna geimfara stjórna
geimförum,
jafnvel eftir
að fram
höfðu komið
ábendingar
um að með
þessu væri
geimfarinu
stofnað í
hættu.
Þetta
kemur fram
í nýrri
skýrslu frá
óháðri
rannsóknar-
nefnd. Í
skýrslunni er ekkert gefið upp
um það hvenær þetta gerðist,
hvaða geimfarar áttu í hlut né
hvaða geimförum þeir stjórnuðu.
NASA lét setja þessa rannsókn-
arnefnd á fót eftir að geimfarinn
Lisa Nowak var handtekin í
febrúar síðastliðnum og ákærð
fyrir að hafa gert tilraun til
mannráns.
Drukknir geim-
farar hjá NASA Mjólkursamsalan (MS),
Auðhumla og Osta- og smjörsal-
an hafa höfðað mál á hendur Sam-
keppniseftirlitinu. Þess er kraf-
ist að Páll Gunnar Pálsson,
forstjóri Samkeppniseftirlitsins,
víki sæti við rannsókn á máli
mjólkuriðnaðarins sem hófst með
húsleit Samkeppniseftirlitsins í
höfuðstöðvum MS hinn 5. júní.
„Forstjóri Samkeppniseftirlits-
ins hefur opinberlega verið með
miklar yfirlýsingar um mjólkur-
iðnað. Í ljósi þess teljum við að
hann geti ekki farið hlutlaust yfir
okkar mál,“ segir Guðbrandur
Sigurðsson, forstjóri MS. Guð-
brandur segir að MS hafi óskað
eftir því að Páll lýsti sig vanhæf-
an en þegar hann gerði það ekki
var farið með málið til héraðs-
dóms. Þess er einnig krafist að
aðrir starfsmenn Samkeppniseft-
irlitsins víki sæti.
„Hvorki ég né aðrir starfs-
menn Samkeppniseftirlitsins
höfum forsendur til að víkja sæti
enda erum við alls ekki vanhæf
til meðferðar málsins,“ segir
Páll.
Í fyrra gaf Samkeppniseftirlit-
ið út álit þar sem þeim tilmælum
var beint til þáverandi landbún-
aðarráðherra að beita sér fyrir
breytingum á lögum sem kveða á
um að mjólkurafurðastöðvar séu
undanþegnar lögum um sam-
runaeftirlit. Páll segir að það álit
sé með öllu ótengt því máli sem
nú er til athugunar hjá Sam-
keppniseftirlitinu.
„Þetta er risaskref
sem nú hefur verið stigið, bæði
hvað varðar siglingaöryggi og til að
koma í veg fyrir meiri háttar meng-
unarslys á afar viðkvæmu lífríki
þessa svæðis,“ segir Hermann Guð-
jónsson siglingamálastjóri um sam-
þykkt undirnefndar Alþjóðlegu
siglingamálastofnunarinnar (IMO)
á reglum um leiðastjórnun flutn-
ingaskipa við suður- og suðvestur-
strönd Íslands. Hefðbundin sigl-
ingaleið flutningaskipa verður
færð lengra frá landi sem kemur í
veg fyrir að stór flutningaskip sem
bera mikið magn hættulegra eða
mengandi efna sigli eins nálægt
landi og tíðkast hefur.
Hermann segir að markmið
leiðastjórnunarinnar sé að vernda
mikilvægar uppeldisstöðvar helstu
nytjastofna og viðkvæmt fuglalíf
og að beina skipum frá siglinga-
hættum á siglingaleiðir sem telj-
ast öruggastar. Kjarni tillagnanna
er að tvær siglingaleiðir eru
afmarkaðar; innri leið fyrir skip
sem eru 5.000 brúttótonn og minni
og ytri leið fyrir stærri skip og
skip sem flytja hættulegan eða
mengandi farm. Einnig eru þrjú
svæði afmörkuð sem ber að forð-
ast með öllu. Tillögurnar útiloka
ekki siglingar gámaflutningaskipa
um innri leið vegna undanþágu
sem byggir á reynslu íslenskra
skipstjórnarmanna og hafi þeir
komið sex sinnum til hafnar við
Faxaflóa síðustu 18 mánuði. Einn-
ig mega minni olíuskip sigla innri
leið beri þau létta olíu sem gufar
hratt upp.
Forsvarsmenn Landhelgisgæsl-
unnar hafa gagnrýnt siglingaleiðir
flutningaskipa um innri leiðina
harðlega og kallað það glapræði að
flutningaskip sigli aðeins nokkr-
um mílum frá landi með stóra
farma af olíu og öðrum hættuleg-
um efnum. Halldór B. Nellet, fram-
kvæmdastjóri aðgerðasviðs Land-
helgisgæslunnar, fagnar
niðurstöðu IMO og segir hana
skipta miklu fyrir aukið siglinga-
öryggi og auki svigrúm til að
bregðast við óhöppum eða slysum.
„Við getum skipulagt eftirlit og
björgunaraðgerðir okkar betur í
mörgum tilfellum.“
Anna Fanney Gunnarsdóttir
landfræðingur vann ítarlega rann-
sókn á dreifingu olíumengunar í
hafi árið 2003. Þar voru bornar
saman siglingaleiðir suðvestur af
landinu. Í ályktunum rannsóknar-
innar segir Anna að samkvæmt nið-
urstöðum dragi um 50 prósent úr
hættunni á að viðkvæm strand-
svæði mengist ef siglingaleiðin
yrði færð utar.
Sextíu olíuskip sigldu innri leið-
ina til hafnar við Faxaflóa árið 2006
en tíu sigldu ytri leiðina. Þau báru
um 800 þúsund tonn af olíu og allt
að því fimmtíu þúsund tonn í hverri
ferð.
Risaskref í
siglingaöryggi
Reglur um leiðastjórnun flutningaskipa hafa verið
samþykktar. Risaskref í öryggismálum, segir sigl-
ingamálastjóri. Gæti afstýrt meiri háttar mengunar-
slysi á mikilvægustu uppeldisstöðvum nytjafiska.