Fréttablaðið - 28.07.2007, Síða 8
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
8
1
3
1
NÚ GETUR ÞÚ SKOÐAÐ
PUNKTASTÖÐUNA
Í NETBANKANUM!
Hver keypti gamla Borgar-
bókasafnshúsið af listamannin-
um Odd Nerdrum?
Hvaða íslenska söngkona
stendur ásamt fleirum að
stofnun góðgerðarsamtakanna
Navia?
Hvaða þjóðir keppa til
úrslita í Evrópukeppni 19 ára
kvenna í knattspyrnu á sunnu-
dag?
Íslenska liðið Intersport
Iceland lenti í sjöunda sæti í
ævintýrakeppni á Grænlandi
eftir að hafa lagt að baki 120
kílómetra í einum rykk á tæplega
38 klukkustundum, hlaupandi,
gangandi og róandi. Keppnin
hófst síðasta laugardag.
„Þetta er algjör geðveiki,“
sagði Trausti Valdimarsson, einn
keppendanna, en hann var að
keppa í þriðja sinn. „Það má segja
að öll hversdagsleg vandamál
verða lítilræði í samanburði og
maður lærir að meta það að fá
mat, vatn, hreinlætisaðstöðu og
svefn.“
Lokaáfanginn
tók 38 tíma
Samtök hernaðar-
andstæðinga mótmæla fyrirhug-
uðum heræfingum hér á landi í
næsta mánuði. NATO-ríkin
Noregur, Danmörk, Bandaríkin,
Lettland og Ísland halda æfing-
una.
Í fréttatilkynningu frá samtök-
unum segir að æfingar af þessum
toga séu ekki aðeins aðferð
herveldanna til að þjálfa herlið
sitt heldur einnig til að staðfesta
áhrifasvæði sitt, berast á
gagnvart hugsanlegum andstæð-
ingum og jafnvel ögra þeim. Enn
fremur segir að það sé grátlegt að
Ísland skuli ýta undir hernaðar-
brölt með því að bjóða til
æfinganna.
Heræfingin er
misnotkun
Tekjur kvenna
eru að meðaltali fimmtán prósent-
um lægri en karla, samkvæmt
rannsóknum Evrópusambandsins.
Evrópusambandið hefur gert
skýrslu um leiðir til úrbóta.
Ein af orsökum launamunarins
er erfiðleikar kvenna við að
samhæfa einka- og atvinnulíf.
Konur eru frekar í hlutastörfum
og taka oftar hlé frá störfum. Í
skýrslunni segir að eina leiðin til
þess að ná árangri sé að ná
víðtæku samstarfi milli karla og
kvenna, frjálsra félagasamtaka,
atvinnulífsins og stjórnvalda um
að ráðast á vandann á öllum
stigum samfélagsins.
Fimmtán pró-
senta munur
Að minnsta kosti
þrettán létust og 71 særðist í árás
á hótel í grennd við Rauðu mosk-
una í Íslamabad í Pakistan í gær.
Sjö hinna látnu voru lögreglu-
menn. Enginn hefur lýst yfir
ábyrgð vegna árásarinnar en
öfgasinnaðir múslímar eru taldir
hafa staðið á bak við hana. Vitni
að árásinni sagði að líkamshlutar
og blóð hefðu verið úti um allt í
rústum hótelsins. Sprengjusér-
fræðingar fundu sundurtættan
efri hluta mannslíkama í rústun-
um og er þess vegna talið að um
sjálfsmorðsárás hafi verið að
ræða.
Árásin átti sér stað stuttu eftir
að pakistanska lögreglan hafði
skotið táragasi að hundruðum
mótmælenda sem höfðu safnast
saman í Rauðu moskunni og kraf-
ist þess að yfirvöld í Pakistan létu
múslimaklerkinn Abdul Aziz laus-
an úr haldi. Aziz var handtekinn í
umsátri pakistanska hersins um
Rauðu moskuna fyrr í mánuðin-
um. Herinn gerði innrás í mosk-
una hinn 12. júlí eftir vikulangt
umsátur þar sem að minnsta kosti
102 féllu.
Hrina árása herskárra mús-
líma á pakistanska hermenn
fylgdi í kjölfar innrásarinnar í
moskuna. Stjórnvöld í Pakistan
voru gagnrýnd harðlega fyrir
hana því talið er að mörg börn og
námsmenn hafi einnig látið lífið.
Yfirvöld í Pakistan opnuðu Rauðu
moskuna aftur fyrir almenningi í
gær til að reyna að lægja þessar
ófriðaröldur en upp úr sauð eftir
að mótmælendurnir byrjuðu að
henda steinum í óeirðalögregl-
una. Pakistanska lögreglan hand-
tók 25 mótmælendur í moskunni í
gær.
Þeir öfgasinnuuðu múslímar
sem stjórnuðu uppreisninni eru
andstæðingar Musharrafs forseta
Pakistans og stuðningsmenn tali-
bana sem halda til í héruðunum
sem liggja að Afganistan. Þeir
vilja koma á sams konar samfé-
lagi í Pakistan og talibanar komu
á í Afganistan fyrir innrás banda-
ríska hersins. Talið er að sjálfs-
morðárásin á hótelinu komi sér
afar illa fyrir Musharraf, sem er
samherji Bandaríkjastjórnar í
stríðinu gegn hryðjuverkum. For-
setinn er undir miklum pólitísk-
um þrýstingi út af fjölgun árása á
pakistanska hermenn eftir inn-
rásina í Rauðu moskuna og fyrr í
mánuðinum var reynt að drepa
hann.
Þrettán féllu í
sjálfsmorðsárás
Rauða moskan í Íslamabad var opnuð í gær til að reyna að lægja ófriðaröldu
sem staðið hefur yfir í tvær vikur. Árás var gerð á hótel í nágrenni moskunnar.
Aðkoman hrikaleg segja sjónarvottar. Öfgasinnaðir múslímar taldir ábyrgir.
Bráðabirgðaákærur hafa
verið lagðar fram gegn Francois
Villepin, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Frakklands. Hann er
sakaður um að hafa á árunum
2003 til 2004 átt þátt í að breiða út
óhróður um flokksbróður sinn,
Nicolas Sarkozy, þáverandi ráð-
herra og núverandi forseta Frakk-
lands.
Málið er allt hið ævintýraleg-
asta. Villepin var á þessum tíma
utanríkisráðherra en Sarkozy inn-
anríkisráðherra í stjórn Jean-
Pierre Raffarin. Við sögu koma
leynilegir bankareikningar, einka-
spæjarar og skjalastuldur. Villep-
in er sagður hafa ætlað að tryggja
að Sarkozy gæti ekki keppt við sig
um að verða forsetaefni Íhalds-
flokksins.
Villepin gæti átt yfir höfði sér
allt að fimm ára fangelsi og háar
sektargreiðslur ef hann verður
fundinn sekur. Hann sagðist í gær
ætla að verja mál sitt „til þess að
sannleikurinn geti loks komið
fram í dagsljósið“.
Hann fullyrðir að hann hafi
„aldrei nokkurn tíma tekið þátt í
pólitískri refskák“.
Sarkozy fór aldrei dult með að
hann sæktist eftir forsetaembætt-
inu. Villepin þótti einnig um tíma
líklegt forsetaefni, en vinsældir
hans hröpuðu hratt þegar verka-
lýðsfélög og námsmenn tóku hönd-
um saman og efndu til mótmæla og
verkfalla gegn breytingum á vinnu-
málalöggjöf, sem Villepin reyndi að
fá samþykktar á síðasta ári.
Villepin þarf að svara til saka
Össur Skarphéðinsson
iðnaðarráðherra íhugar að end-
urnýja takmarkað virkjanaleyfi
Múlavirkjunar til fjögurra eða
fimm ára með ströngum skilyrð-
um. Þau eru að yfirborð Baulár-
vallavatns verði það sama og
áður og að rennsli verði í Straum-
fjarðará milli Baulárvallavatns
og lónsins við stífluna. Það yrði
gert með því að hafa jafnt rennsli
í virkjuninni. Samkvæmt samn-
ingi Múlavirkjunar við Hitaveitu
Suðurnesja á að veita meira vatni
á daginn en á nóttunni.
Virkjunin er stærri en hún var
samkvæmt áætlunum. „Þeir fóru
langt fram úr öllu saman,“ sagði
Össur, „en við erum að íhuga
hvort ekki sé hægt með þessum
mótvægisaðgerðum að tryggja
lífríki straumandarinnar og
urriðans á svæðinu. Svo virðist
sem straumöndin hafi þegar
aðlagað sig að svæðinu og hún
hafi fært sig til á ánni. En ef í ljós
kemur á þessum tíma eða fyrr að
þetta gengur ekki þá er ekki um
annað að ræða en að fyrirskipa
breytingar á virkjuninni.“
Össur telur að Múlavirkjun
hefði ekki átt að vera undanþegin
umhverfismati á sínum tíma.
Hann segir virkjanir af þess-
ari stærðargráðu verða
teknar fastari tökum í
framtíðinni.
Rennsli verði í Straumfjarðará