Fréttablaðið - 28.07.2007, Síða 32
hús&heimili
Bjarni Snæbjörnsson leikari fór
fyrir forvitni sakir á varnar-
liðssölu bandaríska hersins, án
þess að gera sér neinar sérstak-
ar væntingar um að finna eitt-
hvað spennandi. Honum til mik-
illar furðu uppgötvaði hann þar
skemmtilega skrifstofustóla í
tonnavís og festi kaup á tveimur,
sem eru nú á meðal hans uppá-
halds húsgagna.
„Í fyrsta lagi þótti okkur þeir
svo flottir á litinn, auk þess sem
þeir voru tiltölulega ódýrir. Þeir
kostuðu ekki nema einhverjar
sjö þúsund krónur samanlagt,“
segir Bjarni og vísar þar með
í sambýlismann sinn, Frímann
Sigurðsson, sem var með honum
í för. „Svo hugsaði ég mér gott
til glóðarinnar, þar sem þeir eru
gríðarlega handhægir og þægi-
legir.
Eldhúsið okkar er nefnilega
frekar lítið og vegna hjólanna
henta þeir vel til að skjótast á
milli vasksins og skápanna. Svo
finnst mér mikilvægt að geta
látið mér líða vel á meðan ég
borða morgunmatinn og les blöð-
in. Það er svo nauðsynlegt að
byrja daginn vel, til að geta gert
allt sem maður ætlar sér.“
Ekki veitir af ef marka má
Bjarna, sem auk þess að vera út-
lærður leikari, vinnur á leikskóla
í sumar og undirbýr sig af fullum
krafti fyrir Reykjavíkurmara-
þonið. Stólana segir hann ein-
mitt nýtast vel í listinni þar sem
hann situr í þeim við ritstörf,
þótt hann vilji ekki veita frek-
ari upplýsingar um viðfangsefn-
ið að sinni.
„Ætli það sé ekki best að segja
að ég sé bara enn að bíða eftir að
vera uppgötvaður. Þangað til er ég
þó aðallega að reyna að uppgötva
sjálfan mig,“ segir hann og hlær.
roald@frettabladid.is
Nauðsynlegt
að byrja daginn vel
Bjarni Snæbjörnsson leikari heldur mikið upp á gamla bandaríska skrifstofustóla.
Bjarna finnst gott að hafa stílhreint í kringum sig og lífga síðan aðeins upp á
umhverfið með kitsch-hlutum eins og stólunum frá varnarliðssölunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL RÚNARSSON
Sebastian Straatsma er hol-
lenskur hönnuður sem fékk
skemmtilega hugmynd að list-
munum sem hann kallar ryks-
afnara (dustcollector). Þessi
verk eru byggð á klassískum
hollenskum vösum sem venju-
lega má sjá á antíksölum og á
fínni heimilum. Þeir hafa hlut-
verk vasa en eru sjaldan notaðir
sem slíkir. Þeir eru öllu heldur
stöðutákn og notaðir til skreyt-
inga. Hlutverk þeirra er nú að
safna ryki og vera fallegir. „Því
ekki að vera heiðarlegur og búa
til hluti sem eru aðeins gerðir
til skreytinga og ryksöfnunar?“
Þannig útskýrir Straatsma tilurð
ryksafnara sinna sem allir eru
handgerðir og engir tveir eins.
www.sebastiaanstraatsma.com.
Fallegir og safna ryki
Litrík fiðrildi setjast á grind af því sem
virðist vera klassískur antíkvasi.
Litríkur ryksafnari úr smiðju Sebasti-
ans Straatsma.
Eina hlutverk ryksafnaranna er að vera
fallegir og safna ryki.
RAFAEL MORGAN er brasilískur iðn-
hönnuður hjá Belo Horizonte. Fiskabúrið hans er
skemmtilega öðruvísi og stólnum má raða saman
eins og púsluspili. Gæti verið skemmtileg iðja
þegar gesti ber að garði, sannköll-
uð gestaþraut.
hönnun
POTTÁLFAR
Mörgum þykja garðálfar alveg
ómissandi í garðinn, sérstaklega á
sumrin. Sumum hættir þar af leiðandi
til að fyllast gríðarlegum söknuði
þegar þessir vinalegu litlu karlar
hverfa undir snjó eða niður í kjallara á
veturna. Nú hefur hönnuðurinn FRED
fundið ráð við því: Litla garðálfa og
alls kyns furðufígúrur sem má stinga
niður í inni- og útiblómapotta, þar
sem þeir geta notið sín allt árið um
kring. Það er því kannski nær að tala
um pottálfa en garðálfa.
Forsíðumynd: Vilhelm Gunnarsson tók þessa mynd af
vasa á heimili Ólafs Borgars Heiðarsson hárgreiðslumanns.
Útgáfufélag: 365 - prentmiðlar, Skaftahlíð 25, 105 Reykjavík,
sími: 550-5000 Ritstjórar: Kristín Eva Þórhallsdóttir kristineva@
frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is.
Auglýsingar: Ámundi Ámundason og Ásta Bjartmarsdóttir
s. 5175724 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@
frettabladid.is.
28. JÚLÍ 2007 LAUGARDAGUR2