Fréttablaðið - 28.07.2007, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 28.07.2007, Blaðsíða 34
„Hugmyndin með Fagurkera er að gefa faglega ráðgjöf og þjónustu fyrir fólk sem stendur ráðþrota við skipulag á heimili og fyrirtækjum. Það getur verið skipulag á rými, vali á húsbúnaði og mismunandi efnum, aðstoð eftir flutninga eða ráðgjöf við val á listmunum svo eitthvað sé nefnt,“ segir Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, annar eigenda ráð- gjafaþjónustunnar Fagurkera. Guðbjörg er sjálfmenntaður útlits- og útstillingahönnuður og hefur unnið að faginu í þrjátíu ár. Meðeigandi hennar í fyrirtækinu er Ágústa Daníelsdóttir og segir Guð- björg samstarfskonu sína vera með góða smekkinn í genunum. „Ég var fyrsti útlitshönnuðurinn hjá IKEA á Íslandi en síðan þá hef ég verið í verslunarrekstri og unnið sjálfstætt sem ráðgjafi innan fagsins. Ágústa flytur inn belgíska sófa og smávöru ásamt því að hafa verið í verslunar- rekstri,“ segir Guðbjörg. Fyrirtæki af ýmsum toga eru helstu viðskiptavinir Fagurkera en einnig einstaklingar og fjölskyld- ur. „Mér finnst mjög gaman að fást við verkefni þar sem við hjálpum einstaklingum og fjölskyldum. Til dæmis fólk sem er að minnka við sig og þarf að skipuleggja heimil- ið með nýjum og gömlum húsmun- um. Fólk sem er að taka saman með tvær búslóðir eða ungt fólk sem er að skipuleggja fyrsta heimilið,“ segir Guðbjörg. Hún starfar einnig sem fast- eignasali ásamt því að reka Fagur- kera og segir ráðgjöfina nýtast vel í því starfi. „Ég er snögg að sjá hvernig má nýta rými og hjálpa oft fólki sem er að kaupa húsnæði tilbúið undir tré- verk eða gömul hús sem á að gera upp,“ segir Guðbjörg og bætir við: „Áður fyrr voru ekki margir sem gátu leyft sér slíka þjónustu en það hefur breyst mikið. Fólk getur leyft sér þetta og finnst ekkert athuga- vert við það. Sérstaklega finnst mér ungt fólk opið fyrir að fá slíka aðstoð enda sér það hvað það getur sparast mikill tími við gott skipulag á heim- ilinu,“ segir Guðbjörg. Nánari upp- lýsingar á www.fagurkeri.is. rh@frettabladid.is Vinkonurnar Ágústa Daníelsdóttir og Guðbjörg Vilhjálmsdóttir gefa góð ráð við skipulag og hönnun á heimilum og hjá fyrirtækjum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Eldhús Fagurkerans Guðbjargar í Vogunum er skipulagt eftir kúnstarinnar reglum. Smáatriðin geta verið mikilvæg til að heimilisfólkið njóti sín út í ystu æsar. Umfram allt fagurkerar Ágústa Daníelsdóttir og Guðbjörg Vilhjálmsdóttir bjóða góð ráð fyrir heimili og fyrirtæki. hönnun ECCO TRADING er hönnunarfyrirtæki sem hannar allt frá lömpum til sófa. Hér eru tveir stólar af vef- síðu fyrirtækisins eccotrading.com. Öldustóllinn er þokkafullur og rauður. Grindin er vafin með sterku efni svo úr verður stóll sem minnir á höggmynd. Borðastóllinn er sagður furðanlega þægilegur og fallegur er hann. ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir V.H. ehf. - Heiðarbraut 3 - 250 Garður - sími 864 2400 - www.volundarhus.is - volundarhus@volundarhus.is Verð frá kr. 175.000 Stærð: 9,7m2 Innifalið er allt viðarverk, glerjaðir gluggar og hurðir með lömum og festingum. Verð frá 8.490.000kr – Hús: 90m2 Svefnloft: 42m2 geymsla: 6m2 Innifalið er útveggja- og innveggjaeiningar, einangraðar og með rafmagnsdósum og börkum, glerjaðir gluggar og útihurðir, milliloft í einingum, þakeiningar og efni, pallaefni og samþykktar teikningar (arkitekt,verkfræði og rafmagn). Flutningur, ráðgjöf, tollar og vsk. 28. JÚLÍ 2007 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.