Fréttablaðið - 28.07.2007, Side 62
Bubbi Morthens vill ekkert kannast við
að það andi köldu á milli sín og Megasar
þrátt fyrir orðróm um að Megas skjóti
föstum skotum á hann í laginu „(Minnst
tíu miljón) Flóabitanótt“ á nýjustu plötu
sinni Frágangur. Sjálfur hefur Megas
harðneitað þessum sögusögnum í
útvarpsviðtali.
„Ég lít á Magnús sem einn af mínum
fjórum eldri bræðrum. Ég get bara svar-
að þessu þannig að ástin hún á sér mörg
birtingarform,“ segir Bubbi Morthens,
sem hafði ekki heyrt lagið þegar Frétta-
blaðið ræddi við hann. „Frá mínum bæj-
ardyrum séð andar ekki köldu á milli
okkar en ég get ekki svarað fyrir Magn-
ús. Ég hef ekki haft samband við hann í
langan tíma en ég veit ekki til þess að
vináttusamband okkar hafi sprungið
nokkurn tímann.“
Auk fyrrnefnds lags og lagsins
„Gott er að elska“ af Frágangi
hefur því verið haldið fram að
lagið Hjálmar á plötu Megasar,
Svanasöngur á leiði, frá árinu
2000, sé einnig um Bubba. Þrátt
fyrir það segist Bubbi aldrei hafa
orðið var við að Megas hafi skot-
ið á sig í gegnum árin og
hefur sjálfur ekkert
nema gott um
meistarann að
segja.
Bubbi ásamt
bróður sínum
Tolla átti stóran
þátt í því að
koma Megasi á
kortið á sínum
tíma eftir nokk-
ur mögur ár. Megas söng Fatlafól
og Heilræðavísur á plötunni
Fingraförum með Bubba árið
1983 og árið 1988 gáfu þeir
saman út plötuna Bláir draum-
ar.
Ef taka á mark á sögusögnum
úr tónlistarbransaum kom eitt-
hvað upp á í samskiptum þeirra
eftir það sem varð til þess að
Megas og Bubbi urðu óvinir,
en sjálfur segist Bubbi
bera mikla virðingu fyrir
Megasi og hafi ekkert
upp á hann að klaga.
Lítur á Megas sem eldri bróður
Kate Moss er flutt inn til gítarleikarans Ronnie
Wood, sem ætlar að hjálpa henni að jafna sig á
sambandsslitunum við Pete Doherty. Ronnie,
sem leikur með Rolling Stones eins og flestir
vita, er gamall djammvinur Kate og njóta
þau þess nú að eiga góðar stundir saman
ásamt eiginkonu Ronnies, Jo.
„Ronnie og Kate eiga sína partísögu svo
það þykir svolítið óvenjulegt að þau séu að
slappa af saman,“ sagði heimildarmaður í
viðtali við The Sun. „Ronnie og Jo eru að
hjálpa henni að gleyma Pete. Ronnie er
óvirkur alki og þetta er því mjög gott
umhverfi fyrir hana.“
Það var einmitt eftir partísvall þeirra
þriggja sem Ronnie ákvað að fara í
meðferð en hann hafði áður játað að
drekka átta stóra Guinness-bjóra, tvær
flöskur af vodka og flösku af Sambuca á
hverjum degi.
Moss flutt inn
til Rons Wood
Fyrsta kvikmyndin um
Simpsons-fjölskylduna sívin-
sælu var forsýnd í Smára-
bíói síðastliðið fimmtudags-
kvöld með íslensku tali.
Mikil stemning var á sýn-
ingunni og klöppuðu áhorf-
endur bæði áður en myndin
byrjaði og í lok hennar.
Ungir jafnt sem aldnir létu sjá sig
á forsýningunni enda hefur Simp-
sons-fjölskyldan alla tíð höfðað til
allra aldurshópa. Davíð Þór Jóns-
son þýddi myndina, Jakob Þór Ein-
arsson leikstýrði og á meðal þeirra
leikara sem ljáðu raddir sína í
myndina voru Örn Árnason sem
Hómer, Margrét Gunnarsdóttir
sem Marge, Sigrún Edda Björns-
dóttir sem Bart og Álfrún Örnólfs-
dóttir í hlutverki Lísu.
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, TÖLVULEIKIR,
DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA!
SENDU SMS JA SMF Á 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ MIÐA
HEIMSFRUMSÝND MEÐ
ÍSLENSKU OG ENSKU TALI 27. JÚLÍ
11.
HVER
VINNUR
!
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
v
VINNINGAR ERU BÍ
ÓMIÐAR,
TÖLVULEIKIR, DVD M
YNDIR
OG MARGT FLEIRA!
SENDU SMS JA SMF
Á 1900 OG ÞÚ
GÆTIR UNNIÐ MIÐA
!
11.
HVER
VINNUR
!
HEIMSFRUMSÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI 27. JÚLÍ