Fréttablaðið - 28.07.2007, Side 66

Fréttablaðið - 28.07.2007, Side 66
 Keilismaðuinn og heimamað- urinn Björgvin Sigurbergsson er í frábærri stöðu í meistaraflokki karla þegar keppni er hálfnuð á Íslandsmótinu í golfi. Björgvin er sá eini sem hefur leikið undir pari á báðum dögun- um og er því kominn með þriggja högga forustu á Örn Ævar Hjart- arson sem lék eins og hann á þrem- ur höggum undir pari á fyrsta degi. Sá þriðji sem var á toppnum eftir fyrsta dag, Jóhannes Kristj- án Ármannsson úr GB, átti hins- vegar skelfilegan dag þar sem hann fékk 8 skolla og 3 skramba og lék á 17 höggum fleira en fyrsta daginn. „Þetta var mjög gott og ég spil- aði bara mjög vel. Ég fékk fugl á síðustu holuna og náði því að klára undir pari og það var það sem mig dreymdi um. Ég ætla að reyna að hanga upp toppinn og reyna að stríða þessum strákum. Þetta eru þrjú högg og þau eru jafnfljót að fara eins og þau eru að koma. Ég verð bara að einbeita mér að því sem ég er að gera en þetta lítur vel út ef ég held áfram að slá og pútta svona vel,“ sagði Björg- vin Sigurbergsson sem hefur parað 24 af 36 fyrstu holunum á mót- inu. Örn Ævar lék ekki eins vel og fyrsta dag- inn en var engu að síður sáttur. „Þetta var erfitt í dag. Það var meiri vindur en var í gær og þegar vindurinn blæs og sólin skín þá verða flatirnar gífurlega erfiðar. Það sýndi sig hjá mér því ég var í svolitlum vandræðum á flötunum. Yfirhöfuð þá var þetta rosalega góður hringur. Ég er að spila vel og vonandi næ ég að halda því áfram. Ég er mjög sáttur við stöð- una,“ sagði Örn Ævar Hjartarson. Birgir Leifur Hafþórsson var hins vegar í nokkrum vandræðum í gær og lék hringinn á 75 höggum eða fjórum höggum yfir pari. Birgir Leifur er því sex höggum á eftir Björgvini en er ekkert búinn að afskrifa neitt. „Þetta var ekki gott, ég var að ströggla og fann mig ekki í vindin- um. Slátturinn var ekki nógu góður hjá mér þannig að ég setti mig ekki í nógu mörg færi. Mér leið ekkert rosalega vel yfir boltanum og var að sveifla illa. Þetta var samt enginn stór skandall. Þetta er bara hálfnað og nóg af golfi eftir. Maður þarf ekki nema að detta í smá stuð eins og í seinni hlutanum í gær og þá er maður aftur kominn í gírinn. Þetta er bara rétt að byrja,“ sagði Birgir Leifur Hafþórsson. Alls 79 karlgolfarar komust áfram í gegnum niðurskurðinn en hann var miðaður við þá sem léku á 16 höggum yfir pari og betur. Þeir fá að leika síðustu tvo hring- ina. Í kvennaflokki komust 18 efstu áfram og miðaðist niður- skurðurinn við þær sem léku á 30 höggum yfir pari eða betur. Nína Björk Geirsdóttir er efst í kvennaflokki á sex höggum yfir pari en Ragnhildur Sigurðardóttir er aðeins þremur höggum á eftir henni. Nína Björk spilaði völlinn á einu yfir pari í gær en hún fékk þrjá fugla á fyrri níu holunum en fjóra skolla á síðari níu. Ragnhild- ur spilaði á 75 höggum en þeim næst standa Tinna Jóhannsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir á tólf höggum yfir pari. „Þetta gekk þokkalega hjá mér og ég er nokkuð sátt, ég var að slá vel og leikskipulagið gekk upp að mestu leyti. Það gekk vel í Hraun- inu þar sem ég spilaði á þremur undir og púttin voru að detta ágæt- lega,“ sagði Nína við Fréttablaðið í gær. Hlutirnir eru fljótir að breyt- ast í golfinu og hvort mótið snerist upp í einvígi við Ragnhildi var Nína ómyrk í máli. „Það er aldrei að vita ef maður heldur áfram að spila eins og maður,“ sagði Nína brosmild um leið og hún bætti við að völlurinn hefði verið frábær og aðstæður allar eins og best var á kosið. Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR er vön því að koma sterk inn á síðustu tveimur dögunum og var sem dæmi um það ekki í efsta sæti eftir tvo hringi þegar hún vann Íslandsmeistaratitla sína 2003 og 2005. Í Fréttablaðinu í gær var missagt að aðstoðardómari í leik ÍA og HK hefði beðist afsökunar á röngum dómi í þriðja marki ÍA. Það er ekki rétt, afsökunarbeiðn- in tengdist öðru atviki. Beðist er velvirðingar á þessu. Leiðrétting Það er nóg að gera hjá Íslandsmeisturum FH í knatt- spyrnu. Hafnfirðingar taka í dag á móti Keflavík í lokaleik 11. umferðar Landsbankadeildar karla í miðri annatíð. Frá 10. júlí til 16. ágúst spilar FH alls níu leiki, að meðaltali einn leik á fjórum dögum. Þar af eru tveir leikir í VISA-bikarnum, fjórir leikir í Meistaradeild Evrópu og þrír leikir í Lands- bankadeildinni. FH hefur spilað fjóra af þessum leikjum, unnið tvo og gert tvö jafntefli. Níu leikir FH á fimm vikum Framarar og Valsmenn karpa um Sigfús Landsbankadeild kvenna Björgvin Sigurbergsson úr Keili og Nína Björk Geirsdóttir úr Kili eru í góðri stöðu eftir annan daginn á Ís- landsmótinu í golfi sem fram fer á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði. Birgir Leifur Hafþórsson var í vandræðum. KR-konur áttu í litlum vandræðum með Keflavíkurstúlk- ur þegar þær unnu þær 5-0 í Landsbankadeild kvenna í gær en Keflavík. KR-liðið fór illa með fjölda dauðafæri og voru gestirnir í raun heppnir að sleppa burt með aðeins fimm mörk á bakinu. Olga Færseth átti mjög góðan leik fyrir KR, skoraði þrennu og lagði upp önnur tvö fyrir þær Fjólu Dröfn Friðiksdóttur og Hólmfríði Magnúsdóttur. Olga skoraði fyrsta markið eftir aðeins sex mínútna leik þegar hún skor- aði eftir laglegan undirbúning Hólmfríðar og kom síðan KR í 2-0 með marki úr víti eftir 29. mín- útna leik.Fjóla og Hólmfríður skoruðu síðan tvö mörk með fjög- urra mínútna millibili í upphafi seinni hálfleiks. Olga innsiglaði sigurinn síðan í lokin eftir lagleg- an undirbúning Emblu Grétars- dóttur sem lék þarna sinn 200. leik fyrir KR. Valur hélt samt toppsætinu á betri markatölu en KR með því að vinna 5-0 sigur á Þór/KA fyrir norðan. Katrín Jónsdóttir og Mar- grét Lára Viðarsdóttir skoruðu báðar tvö mörk og Nína Ósk Krist- insdóttir skoraði það fimmta. Tapið hjá Keflavík þýddi að Breiðablik náði 3. sætinu með 4-0 sigri á Fylki í Árbænum. Stjarnan byrjar vel undir stjórn nýja þjálfarans Huga Halldórs- sonar og vann 4-2 sigur á ÍR. Kim- berley Dixson skoraði tvö mark- anna en hin gerðu Helga Sjöfn Jóhannesdóttir og Björk Gunnars- dóttir. KR-konur léku sér að Keflavíkurstúlkum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.