Fréttablaðið - 28.07.2007, Síða 70

Fréttablaðið - 28.07.2007, Síða 70
Fréttamaðurinn Svavar Halldórs- son fékk hjartaáfall af völdum kransæðastíflu snemma í síðustu viku en er á batavegi. Svavar, sem er aðeins 37 ára gamall, var staddur á Siglufirði ásamt konu sinni, Þóru Arnórsdóttur fréttamanni, og börn- unum þeirra fjórum þegar atvikið átti sér stað. „Ég sat bara úti í garði hjá litlu systur minni í rólegheitum þegar þetta gerðist en við fjölskyldan vorum nýkomin úr þvælingi um Vestfirðina,“ segir Svavar, sem seg- ist ekki hafa áttað sig á því hvað var að gerast enda fátítt að menn á hans aldri fái hjartaáfall. Hann fór á heilsugæslustöðina á Siglufirði en var sendur hið snarasta með sjúkra- flugi til Reykjavíkur og þaðan á skurðarborðið í aðgerð. „Börnin fjögur urðu eftir hjá litlu systur og hún keyrði seinna með þau hingað suður. Þóra kom með mér í flugvél- ina. Þetta var í raun mögnuð reynsla – bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt. Svona atvik vekja mann til umhugsunar.“ Svavar segist hafa verið lang- yngstur á hjartadeild Landspítalans meðan hann lá þar. Hann segir að skýringuna sé fyrst og fremst að finna í genunum. „Þetta liggur í ættinni hjá mér. Lífshættirnir spila auk þess sitt hlutverk og þótt minn lífsstíll sé ekkert sérstaklega slæm- ur var hann það fyrir nokkrum árum. Þegar maður er á þrítugs- aldri veltir maður mataræði og reykingum ekki mikið fyrir sér. En nú þegar komið er í ljós að ég fékk ekki góða hendi þegar genunum var úthlutað er þetta undir sjálfum mér komið. Ef ég haga mér vel eru góðar líkur á að ég verði í lagi en ef ég passa mig ekki eru miklar líkur á að þetta gerist aftur.“ Svavar er sem fyrr segir á bata- vegi. „Ég á að taka því rólega í ein- hverjar vikur eða mánuði. Mér skilst að með heilbrigðu líferni eigi ég að geta náð fullum bata. Mér líður í sjálfu sér ágætlega en verð þreyttari en ég á að mér. Í raun finnst mér ég geta skellt á mig bak- poka og vaðið upp á fjall þannig séð. Ég þarf bara að vera meðvitaður um að ég eigi að fara varlega.“ 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Fanndís Friðriksdóttir „Það er auðvitað gaman að hafa komið einhverju frá sér sem getur nýst til almennilegra verka en ekki bara til þess að auka sjálfseg- óið,“ segir kvikmyndagerðar- maðurinn Ólafur Jóhannesson en hópur stelpustráka á Filippseyj- um hefur fengið leyfi til þess að nota mynd hans, Queen Raquela, sem verkfæri í baráttu sinni við stjórnvöld á eyjunum. Stúlkurnar eru frá höfuðborginni Manila og reka þar lítinn réttindahóp stelpu- stráka. Markmiðið með sýningu kvikmyndarinnar er að vekja athygli á málstaðnum og ekki síður að fá ráðamenn til þess að setja lög gegn mismunun, en stelpustrákar fá hvorki inngöngu í skóla né góð störf á Filippseyjum. Queen Raquela fjallar í grunn- inn um stelpustrák sem starfar sem vændiskona og dreymir um að giftast gagnkynhneigðum, vest- rænum manni. Ólafur lýsir henni sjálfur sem „lítilli, klassískri mynd um örlög stelpustráks á Fil- ippseyjum“. Hann segir hópinn í Manila bjartsýnan á að myndin muni skila tilætluðum árangri. „Þær eru alltaf mjög bjartsýnar enda alveg sérstök tegund og rosa- legur kraftur í þeim. Þetta er hins vegar ekki auðveldasta skrímslið að berjast við því stelpurnar búa í mjög íhaldssömu, kaþólsku og hræddu samfélagi. Það er þó í grunninn ekki ósvipað vestrænum samfélögum enda þurfa þessir hópar að heyja sömu baráttuna víðast hvar í heiminum.“ Myndin er ekki fullunnin og Ólafur segir að ekki sé búið að ákveða hvenær hún verði frum- sýnd. „Mér finnst samt við hæfi að byrja að sýna hana þarna úti.“ Stelpustrákar Ólafs í baráttuhug „Ég hef verið heima hjá mér í fjóra daga síðan í maí þannig að ég er ekki enn farinn að semja spurning- arnar,“ segir Páll Ásgeir Ásgeirs- son, sem ráðinn hefur verið spurn- ingahöfundur og dómari í Gettu betur, spurningakeppni framhalds- skólanna, næsta vetur. Páll er ekki ókunnugur spurningakeppnum, tók til að mynda þátt í Meistaran- um á Stöð 2 síðasta vetur. Hann hefur lengst af starfað sem blaða- maður en var upplýsingafulltrúi Þjóðleikhússins síðasta vetur. Páll segist taka nýja starfinu eins og hverju öðru verkefni. Hann gefur ekkert upp hvernig vinnan við spurningarnar mun fara fram, segir einungis: „Ja, hvernig borðar maður hval? Maður borðar hann í litlum bitum. Þetta er stórt verk- efni og maður getur bara samið eina spurningu í einu.“ Þegar Fréttablaðið náði tali af Páli í gær var hann farinn að huga að heimferð eftir langa vist á fjöll- um. Hann neitar því ekki að Gettu betur hafi leitað á hug hans undan- farið. „Ég lagði af stað með allan viðlegubúnað í bifreiðinni 29. júní og síðan hef ég sofið í tjaldi. Á þessum tíma hef ég hugsað um margt og þar á meðal þetta,“ segir hann. „Ég hef meðal annars verið að leggja mig eftir fuglahljóðum og grastegundum. Hvort það skil- ar sér í Gettu betur verður bara að koma í ljós. Setja ekki spurninga- höfundarnir alltaf sitt mark á keppnina að einhverju leyti?“ Páll Ásgeir verður dómari í Gettu betur

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.