Fréttablaðið - 19.09.2007, Qupperneq 18
fréttir og fróðleikur
Munkar taka forystu í mótmælum
ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is
Háþrýsti-
þvottatæki
Úrvals háþrýstitæki á góðu verði.
Shinzo Abe þraut örendið
í embætti japanska ríkis-
stjórnarleiðtogans innan við
ári eftir að hann tók við því.
Afsögn hans er til marks
um að japanski stjórnar-
flokkurinn LDP er í miklum
kröggum.
Þegar Shinzo Abe tók við forystu-
hlutverkinu í japanska stjórnar-
flokknum LDP (Frjálslynda lýð-
ræðisflokknum) og ríkisstjórninni
fyrir ári var strax ljóst að hann átti
erfitt verk fyrir höndum. Fyrir-
rennari hans, Junichiro Koizumi,
hafði notið gríðarlegra almenn-
ingsvinsælda og hafði fylgt eftir
umbótastefnu sinni af sannfærandi
ákveðni, einnig gagnvart „fúnum
viðum“ í eigin flokki, þegar hann
ákvað að hætta.
Fyrstu alvarlegu veikleikamerkin
sýndi Abe í desember í fyrra,
þegar hann hleypti ellefu gömlum
flokkshestum LDP, sem Koizumi
hafði vikið úr flokknum vegna
andstöðu þeirra við einkavæðingu
japönsku póstþjónustunnar, aftur
„inn í hlýjuna“. Að mati stjórn-
málaskýrenda var þessi ákvörðun
teikn um að forsætisráðherrann
hefði gefið upp á bátinn að fylgja
eftir umbótastefnu Koizumis og að
hann mætti sín lítils gagnvart
gömlu klíkufurstunum innan
flokksins. Fljótlega leit enn frem-
ur út fyrir að Abe hefði heldur
ekki stjórn á eigin ráðherraliði,
þegar ráðherrarnir tjáðu sig opin-
berlega eins og þeim sýndist, þótt
það kæmi forsætisráðherranum
illa. Hneykslismál urðu hverjum
ráðherranum á fætur öðrum að
falli og einn þeirra stytti sér aldur.
Abe reyndi að bæta úr málunum
en flæktist þar með sjálfur í þver-
sagnir. Vinsældir hans og traust
meðal kjósenda þvarr. LDP beið
niðurlægjandi ósigur í kosningum
til efri deildar Japansþings í lok
júlí og var þá farið að fjúka í flest
skjól fyrir Abe.
Fyrst eftir embættistökuna
hafði stuðningur við forsætisráð-
herrann mælst yfir 70 prósent en í
sumar fór sá stuðningur vel niður
fyrir 30 prósent og mjakaðist
aðeins lítillega upp á við eftir all-
róttæka uppstokkun í stjórninni í
lok ágúst. Eins og í ljós kom er Abe
boðaði afsögn sína í síðustu viku
og var síðan lagður inn á sjúkra-
hús, að sögn vegna örmögnunar,
var sú uppstokkun örvæntingar-
skref af hans hálfu sem svo reynd-
ist ekki nóg til að hann sæi sér
fært að sitja áfram.
Í afsagnarræðu sinni tilgreindi
Abe að með því að víkja vonaðist
hann til að stjórn og stjórnarand-
staða gætu komið sér saman um að
framlengja þátttöku Japana í fjöl-
þjóðlega friðargæsluverkefninu í
Afganistan, en Japanar hafa stutt
það með því að hafa herskip á Ind-
landshafi sem eldsneytisstöð fyrir
bandarísk herskip sem styðja við
aðgerðir fjölþjóðlega herliðsins í
Afganistan. Þátttaka Japana í
verkefninu rennur út að óbreyttu
1. nóvember. Öll stjórnarandstað-
an, sem nú hefur meirihluta í efri
deild þingsins, er mjög ákveðin í
að ekki beri að framlengja þessa
táknrænu þátttöku Japanshers í
hinu „hnattræna stríði gegn
hryðjuverkum“ eins og Banda-
ríkjastjórn lítur á aðgerðirnar í
Afganistan og Írak.
Þannig tengist opinber afsagn-
arástæða Abes stefnu sem hann og
samherjar hans á hægrijaðri LDP
hafa reynt að setja í forgang allt
frá því hann tók við völdum en
hefur hlotið misjafnar undirteknir.
Hún snýst um að gera þjóðernis-
hyggju hærra undir höfði í Japan
og viðleitni til að hrista þær höml-
ur af hernum og japanskri utanrík-
isstefnu sem á hann/hana eru lagð-
ar samkvæmt stjórnarskránni sem
Bandaríkjamenn þvinguðu upp á
Japani eftir síðari heimsstyrjöld.
Allt í því skyni að gera Japan meira
gildandi í alþjóðamálum, ekki sízt
með það fyrir augum að láta Kína
ekki eftir að verða allsráðandi
stórveldi Asíu.
Áherzlan á að gera þjóðarstolti
hærra undir höfði nýtur reyndar
víðtæks stuðnings meðal japansks
almennings, en síður sú mikla
áherzla sem Abe og félagar leggja
á að hvika hvergi frá nánu banda-
lagi við Bandaríkin. Að Abe skyldi
hafa reynt að þrýsta Okinawa-
búum til að sætta sig við stækkun
bandarískrar herstöðvar þar varð
til þess að LDP tapaði stórt í því
kjördæmi í kosningunum til efri
deildarinnar í júlí.
Að sama skapi nýtur þátttaka
Japanshers í illa skilgreindum
aðgerðum í nafni hinnar hnatt-
rænu baráttu gegn hryðjuverkum
ekki mikil stuðnings í landinu.
Það þykir því ljóst að arftaki
Abes muni ekki fylgja eftir áherzlu
hans á að framlengja verkefni her-
skipanna í Indlandshafi.
Fyrst eftir afsögn Abes virtist Taro
Aso, 66 ára fyrrverandi utanríkis-
ráðherra, vera sennilegur arftaki í
embætti bæði flokksformanns og
forsætisráðherra. En ekki leið á
löngu unz Yasuo Fukuda, einn af
öldungunum í forystu flokksins (og
sonur fyrrverandi forsætisráð-
herra), kom fram sem það arftaka-
efni sem líklegast þótti að hljóta
myndi meirihlutastuðning innan
flokksins til að taka við. Hann er
ekki einn af hægrijaðar-haukunum
sem Abe setti mest traust sitt á,
meiri miðjumaður sem þannig
þykir líklegri til að byggja brýr
sem Abe tókst að brenna að baki
sér. Enda lýsti Aso því yfir um
helgina að hann teldi víst að Fukuda
hefði betur ef kosið yrði á milli
þeirra. Hann myndi þó áfram gefa
kost á sér þó ekki væri nema til að
veita flokksmönnum tækifæri á
opnu formannskjöri. Ákveðið hefur
verið að það fari fram 23. septemb-
er.
Haukinn Abe þraut örendið
Villast oft á
grunnsævi