Fréttablaðið - 19.09.2007, Side 46

Fréttablaðið - 19.09.2007, Side 46
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Ég hef nú ekki verið að leggja neinar tískulínur á þessum tíma, menn voru svona yfirleitt síðhærðir þarna. Ég ætla hins vegar að geyma það til elliár- anna að safna hári aftur.“ „Þetta var orðið nauðsynlegt, ég er náttúrlega hárgreiðslumaður og því er nauðsynlegt að breyta til,“ segir Jógvan Hansen, fyrsti sigurvegari hins íslenska X-factor, en hið mikla hár sem söngvarinn skartaði í þáttunum er nú fokið og eftir er nauðrakaður og svartur kollurinn. „Þetta er nú líka vandamálið með flottustu klippingarnar, þær eru mesta vesenið og ég var orðinn nokkuð þreyttur á henni,“ útskýrir Jógvan og bætir því við að þetta sé miklu þægilegra. Hárið var á sínum tíma eitt einkennismerkja söngvarans frá Færeyjum og hann var auðþekkjanlegur á makka sínum. En núna segir Jógvan að enginn þekki hann. „Og ég hef því fengið alveg ótrúlega mikinn frið,“ útskýrir hann. Sitt sýnist hverjum um nýju hárgreiðsluna og Jógvan hefur fengið athugasemdir um að hann verði svolítið barnalegur. „Sumir segja að ég sé eins og krakki en fyrir 29 ára gamlan mann er það bara hrós,“ segir söngvarinn, sem undirbýr sig nú af krafti fyrir George Michael- sýninguna á Broadway ásamt Friðriki Ómari. „Ég varð reyndar að hringja í Friðrik og spyrja hann hvort þetta væri ekki í lagi,“ segir Jógvan. Jógvan óþekkjanlegur með nýja klippingu Sigurjón Sighvatsson á nú í við- ræðum við bandarísku leikarana Toby Maguire og Jake Gyllenhaal um að leika í kvikmyndinni Broth- ers sem hann framleiðir. Sigurjón staðfesti þetta í samtali við Frétta- blaðið og segir viðræðurnar á lokastigi en ítarlega er fjallað um myndina í bandaríska kvikmynda- tímaritinu Variety. „Þetta hefur gengið mjög vel og í raun óvenju hratt fyrir sig,“ segir Sigurjón en eins og Fréttablaðið greindi frá í apríl á þessu ári mun írski leik- stjórinn Jim Sheridan leikstýra myndinni. Brothers er endurgerð dönsku kvikmyndarinnar Brødre eftir Susanne Bier en hún segir frá hermanni sem sendur er til Afganistan í baráttuna gegn ógn- arstjórn talibana og felur bróður sínum að gæta eiginkonu sinnar og barna. Líf þeirra flækist til muna þegar sá verður ástfanginn af eiginkonunni. Að sögn Sigurjóns er stefnt að því að framleiðsla kvikmyndar- innar hefjist í nóvember; enn eigi þó eftir að semja við leikkonu í aðalkvenhlutverkið en nokkrar séu í sigtinu. „Fyrst göngum við frá þessu,“ útskýrir hann. Ekki þarf að fjölyrða um að mik- ill akkur er fyrir Sigurjón að fá leikara af þessari stærðargráðu til liðs við sig. Gyllenhaal er í hópi eftirsóttustu leikara Hollywood af yngri kynslóðinni en hann lék aðalhlutverkið í hinni margverð- launuðu Brokeback Mountain eftir Ang Lee og var tilnefndur til Ósk- arsverðlauna fyrir leik sinn sem smalamaðurinn Jack Twist. Hann lék síðast í Zodiac sem þegar hefur verið orðuð við Óskarstilnefningu. Maguire er ef til vill þekktastur sem Köngulóarmaðurinn Peter Parker í kvikmyndum Sams Raimi en hefur jafnframt getið sér gott orð fyrir leik í „vandaðri“ kvik- myndum á borð við Wonder Boys og The Cider House Rules. Sigurjón Sighvatsson er bjart- sýnn á gott gengi myndarinnar; segir hana hafa enn meiri skír- skotun til bandarísks þjóðfélags en þess danska. „Í Írak eru til að mynda 500 danskir hermenn en 130 þúsund bandarískir. Brothers á því mjög mikið erindi til Banda- ríkjanna eins og staða heimsmála er í dag.“ „Ég er bara nokkuð ánægður með þetta, ég var nokkuð ósáttur með kreditlistann en er búinn að hafa samband við lögfræðinginn minn og vonandi verður þetta lagað,“ segir Gestur Valur Svansson, sem á bloggsíðu sinni, gastone.blog.is, greinir frá því að hann sé hugmyndasmiðurinn að sjónvarps- þáttaröðinni Næturvaktinni en hún var frumsýnd á Stöð 2 á sunnudagskvöld. Gestur er vallarstjóri á Vodafone-velli Vals- manna en hugmyndina að gríni á bensínstöð fékk hann fyrir nokkrum árum eftir að hafa sjálfur starfað á bensínstöð á sínum yngri árum. „Ég hafði samband við Ragnar Bragason á sínum tíma og við áttum nokkra fundi saman en síðan slitnaði upp úr því samstarfi. Ég varð því nokkuð hvumsa þegar ég sá að Stöð 2 væri að fara að framleiða Næturvakt- ina,“ segir Gestur. Eftir samningaviðræður fékk Gestur þó sitt framlag metið og samdi við Saga Film, framleiðanda þáttanna, um greiðslur fyrir það sem hann telur vera höfundarverk sitt. Ragnar Bragason, leikstjóri þáttanna, sagð- ist kannast við mál Gests og viðurkenndi að hann hefði vissulega átt hugmyndina að því að gera grín á bensínstöð. „Og þegar þetta fór að rúlla fyrir alvöru þótti mér því sjálfsagt að hann fengi sitt fyrir að hafa komið snjóboltanum af stað,“ útskýr- ir Ragnar sem vildi að öðru leyti ekki tjá sig um þetta, höfundarréttur væri flókið mál en stað- festi að hann kannaðist við óánægju Gests í kjölfar frumsýningarinnar. „Málið er í ákveðnum farvegi og mér skilst að hann hafi fengið viðurkenningu fyrir sitt framlag og greiðslur samkvæmt umrædd- um samningi.“ Vallarstjóri á bak við grínþætti

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.