Fréttablaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 1
Á sitt annað heimili í
Campoamor á Spáni
Ilmandi kaffibolli á veröndinni. Útsýni yfir
gamalt spænskt fjallaþorp. Merlandi máni á
Miðjarðarhafinu. Hoppandi gleði yfir lágum
matarreikningi vikunnar. Sól, hvíld og friður; í
eigin húsi við ströndina.Ekkert lát er á aðdráttarafli Spánar á íslenska sól-
dýrkendur.
„Ætli við séum ekki búin að fara tíu sinnum á
árinu, í samtals tíu vikur. Það er einfaldlega dásam
legt að eiga sitt heimili á Spáni fkaffið á
Mahersol sem starfað hefur í byggingariðnaði á
Spáni við góðan orðstír frá 1966.„Það skiptir miklu að rasa ekki um ráð fram þegar
maður kaupir sér fasteign á Spáni. Eignin verður að
vera þannig staðsett að hún mæti kröfum manns og
draumum. Fólk verður að vera meðvitað um hvar það
kaupir og möguleika á endursölu. Ef kaupandi ætlar
að flytjast búferlum finnum við stað þar sem fólk
hefur líka vetursetu í stað þess að selja eig i í
sem breytast í dra þ
PUMA GERVIGRASBUXUR
Verð áður: 3.990Stærðir: 116–164
Vesturlandsvegur
ReykjavíkMosfellsbær
Húsasmiðjan
Nóatún
Toppskórinn
Margt Smátt
Vínlandsleið
Sport OutletVínlandsleið 2–4, efri hæð
Grafarholt
Er skiptinemadvöl eitthva› fyrir flig?Fjölmörg lönd í bo›i. Ársdvöl, hálfsársdvöl,
3 mána›a dvöl og 4-6 vikna dvöl. Haf›u samband!
Auglýsing
FRÁBÆR TILBOÐ!
SÉRBLAÐ FYLGIR
Hlaðborðið svignar Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík27. SEPTEMBER7. OKTÓBER2007
DAGSKRÁ
www.riff.is
Geymið dagskrána
Hlaðborðið
svignar
Upplýsingamiðstöð í Hressó, Opið 11-20. Sími 615-3070 Hátíðin fer fram í Regnboganum, Háskólabíói,
Tjarnarbíói og Norræna húsinu.
Miðasala á riff.Is
Öll verkin á sýningu
listmálarans Eggerts Pétursson-
ar í Gallerí i8, 100 myndir, seld-
ust upp á einum degi. Á sýning-
unni eru eitt hundrað verk eftir
Eggert, sem er þekktur fyrir
málverk sín af íslenskri flóru.
Hannes Sigurðsson listfræð-
ingur telur að um sölumet sé að
ræða. „Ég held að það sé ekki
einsdæmi að sýning hafi selst
upp á einum degi. Ég veit að það
gerðist á Mokka fyrir nokkrum
árum, og held að það hafi gerst á
öðrum stöðum.
Með tilliti til fjölda mynda
held ég samt sem áður að þetta
sé met,“ sagði Hannes. „Hins
vegar eru þær ekki margar
sýningarnar með meira en
hundrað myndum,“ bætti hann
við.
Málverk Eggerts hafa notið
mikillar hylli og segir hann í
samtali við Fréttablaðið að það
hafi vart komið á óvart að mynd-
irnar hafi allar selst. „Þær voru
eiginlega seldar fyrir, það höfðu
svo margir beðið eftir myndum.
Listinn var orðinn langur, og
hann lengist nú bara ef eitthvað
er,“ sagði listmálarinn.
Ekki fékkst uppgefið hvert
samanlagt söluverð var en sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins hleypur það á tugum
milljóna.
„Við höfum orðið vör við að
fólk reyni að fá innlögn á sjúkrahús í stað
þess að nýta sér þjónustu á dagtíma,“ segir
Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabanda-
lagsins. Ástæðuna fyrir því segir Sigursteinn
vera þá að innlögn er sjúklingnum að kostn-
aðarlausu en dagþjónustan getur hlaupið á
tugum þúsunda.
„Það er alveg stórskaðlegt þegar menn hafa
hvata til þess að nýta sér dýrari þjónustu en
nauðsynleg er,“ segir Pétur Blöndal alþingis-
maður.
Sigursteinn og Pétur eru sammála um að
fyrirkomulagið sé líklegt til að auka kostnað
við rekstur alls heilbrigðiskerfisins. „Ég veit
til þess að mörgum starfsmönnum heilbrigðis-
þjónustunnar svíður að rukka fólk, sem oft
hefur lítið milli handanna, um háar upphæðir.
Því taka þeir fremur ákvörðun um að leggja
það inn til að hlífa því við kostnaði,“ segir
Sigursteinn. Leggur hann til að öll gjaldtaka
fyrir heilbrigðisþjónustu verið lögð niður.
Það tryggi aðgang allra að þjónustunni, óháð
efnahag, auk þess sem komið hafi í ljós að
hallarekstur heilbrigðiskerfisins hafi stór-
aukist eftir að gjaldtöku var komið á.
Pétur telur gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu
þó óheppilega leið. Hann tekur hins vegar
heilshugar undir ábendingar Sigursteins um
að vissar kerfisvillur séu innan heilbrigðis-
þjónustunnar sem nauðsynlegt sé að lagfæra.
„Það er auðvitað ákveðin tilhneiging hjá öllu
góðhjörtuðu fólki, til dæmis læknum, að
reyna að koma fólki undan því að greiða há
gjöld. Það getur orðið til þess að þeir grípi til
ónauðsynlegra og dýrra úrræða, eins og inn-
lagnar á spítala,“ segir Pétur. Reikna má með
því að eitt sjúkrarúm á Landspítalanum kosti
ekki minna en sextíu þúsund krónur á sólar-
hring.
Á stefnuskrá ríkisstjórnarinnar er að ein-
falda þátttöku almennings í kostnaði við heil-
brigðisþjónustuna. Pétur segist ekki tilbúinn
til að segja hvenær úrbóta megi vænta. Kerf-
ið sé „óhemju flókið og er það vægt til orða
tekið“, segir Pétur. Áður en einföldun á því
geti hafist þurfi að kortleggja það. „Markmiðið
verður svo að jafna greiðsluþátttöku fólks og
létta hana gagnvart þeim sem nú þegar þurfa
að borga mikið,“ segir Pétur.
Spara á dýrari lækningum
Hallarekstur heilbrigðiskerfisins hefur aukist eftir að gjaldtaka hófst. Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, segir það stórskaðlegt að kerfið hvetji í rauninni til þess að dýr og ónauðsynleg þjónusta sé nýtt.
Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabandalagsins, vill fella niður gjaldtöku fyrir opinbera þjónustu.
Samstarf fyrir-
tækjanna NTC og Haga í sölu
tískufatnaðar á Íslandi verður
hugsanlega tekið skoðunar hjá
Samkeppniseftirlitinu að sögn
Guðmundar Sigurðssonar
aðstoðarfor-
stjóra.
Fyrirtækin tvö
ráða yfir
verslunum á
borð við
Debenhams og
Sautján og eru
samanlagt talin
hafa 75 prósenta
markaðshlutdeild. Samstarfið
felst í því að NTC opnaði nýverið í
Debenhams í Smáralind sérstaka
deild fyrir mörg vinsælustu
vörumerkin. Debenhams er í eigu
Haga.
Svava Johansen, eigandi NTC,
segir fyrirtæki sitt einfaldlega
hafa tekið pláss á leigu hjá
Högum. „Mér þætti mjög
einkennilegt ef samkeppnisyfir-
völd hefðu eitthvað við það að
athuga,“ segir Svava.
Skoða samstarf
tískuveldanna