Fréttablaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 46
„Þetta er mjög góður hópur. Það þýðir ekkert að gera svona nema bara með toppliði,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson, sem leikstýrir sjónvarps- þáttaröðinni Mannaveiðar sem verður sýnd hjá RÚV á næsta ári. Er hún byggð á bók Viktors Arnars Ingólfssonar, Aftureld- ingu, sem fjallar um rannsókn lög- reglu á morði á gæsaskyttu. Fjöldi þekktra leikara hefur verið ráðinn til að leika í þáttun- um, þar á meðal Hilmir Snær Guðnason, María Ellingsen, Þröstur Leó Gunnarsson, Gunnar Eyjólfsson, Halla Vilhjálmsdóttir og Þórunn Lárus- dóttir. Áður höfðu Gísli Örn Garðars- son og Ólafur Darri Ólafsson tekið að sér aðalhlutverkin. „Það hefur enginn afþakk- að boð um að taka þátt í þessu. Þarna er mjög mikið af skemmtilegum karakterum og þarna sjá leikararnir tækifæri til að búa til eftirminni- legar persónur. Sagan gerist á öllum stigum þjóð- félagsins, hjá ríkum og fátæk- um og í sveit og borg. Þessi saga er mikill samfélags- spegill og það finnst mér mjög skemmtilegt við hana,“ segir Björn. Mannaveiðar er fyrsta leikna sjón- varpsþáttaröðin sem Björn leikstýrir en áður hefur hann gert Sönn íslensk sakamál fyrir Ríkis- sjónvarpið. „Þetta er fyrsta skrefið hjá Sjónvarpinu því þar er mikill áhugi á að gera átak í því að búa til leikið íslenskt sjónvarpsefni,“ segir Björn. Fyrsti samlesturinn fer fram í dag en tökur hefjast í næsta mánuði og fara þær fram víðs vegar um landið. 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Enginn afþakkar Mannaveiðar Hafrún Alda Karlsdóttir er fastráð- in hjá danska hönnuðinum Henrik Vibskov, sem hefur notið mikilla vinsælda hér á landi og um heim allan á undanförnum árum. Hún starfar við mark- aðssetningu hjá Vibskov og ferðast stórborga á milli í þeim erindum. „Ég er að aðstoða manninn sem sér um söluna fyrir merkið. Við förum út um allt, til London, París og New York, og setjum upp „showroom“ með fötunum. Svo tek ég á móti kaupendunum sem koma frá búðunum til að versla,“ útskýrði Hafrún. Hafrún var verslunarstjóri í Spúútnik áður en hún fluttist af landi brott og hefur því reynslu af tískuheiminum. „Ég hef verið meira og minna í þessu síðan ég var átján ára að vinna í Morgan,“ sagði Hafrún, sem fluttist til Kaupmannahafnar í júní á þessu ári, eftir að hafa dvalist í París í ár. „Ég ætlaði að fara að læra frönsku, en endaði síðan á því að vera að kaupa inn fyrir Spúútnik,“ sagði hún og hló við. Kærasta Hafrúnar leist ekki á að búa í París og því varð Kaupmannahöfn fyrir valinu. „Ég var búin að vinna í „second- hand“-búðum svo lengi að ég ákvað að reyna að fara í eitthvað nýtt, yfir í aðeins meiri tísku. Ég skellti inn umsókn hjá Henrik Vibskov og mér var boðið að koma í svona „intern“- stöðu í þrjá mánuði. Svo var ég ráðin í framhaldinu,“ útskýrði Hafrún, sem er að vonum ánægð með nýju vinnuna. „Þetta er mjög fjölbreytt starf og ég fæ að ferðast mikið, sem er alveg frábært,“ sagði hún. Hafrún vinnur fyrir Henrik Vibskov „Við vorum þarna fimm til sex félagar sem ætluðum að fara í Þórsmörk en enduðum á stúku- móti á Jaðri. Ég var valinn úr hópi stráka í óopinbera fegurð- arsamkeppni. Þarna löbbuðum við eins og fífl og þurftum að lesa upp ljóð. Þetta var einn af þessum hápunktum í mínu lífi.“ Eitt hundrað myndir eftir listmál- arann Eggert Pétursson, sem mynda sýninguna 100 myndir í Gallerí i8, seldust upp á einum degi. Málverk Eggerts, þar sem flóra Íslands er í aðalhlutverki, hafa notið mikillar hylli, og langur bið- listi eftir verkum hans. Börkur Arnarson, annar eiganda Gallerí i8 segir það ekki algengt að sýning seljist upp á einum degi. „Það hefur gerst, en það hafa verið sýningar með kannski einu eða tveimur verkum, þannig að það er kannski erfitt að bera það saman. Það er óvanalegra þegar það er svona mikill fjöldi af myndum,“ sagði Börkur, sem vildi ekki gefa neitt upp um söluverðið, en sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins er þar um að ræða tugi milljóna, jafnvel allt að 80 milljónum króna. Þær tölur hafa þó ekki fengist stað- festar. Eggert sjálfur segir það vart hafa komið á óvart að myndirnar hafi selst á fyrsta degi. „Þær voru eiginlega seldar fyrir, það voru svo margir búnir að vera að bíða eftir myndum. Listinn var orðinn langur, og hann lengist nú bara ef eitthvað er,“ sagði hann. Eggert hefur áður sagt að hann komist ekki yfir að mála nema örfá verk á ári, enda bera málverk hans vitni um mikla nákvæmisvinnu. „Ég hef verið að mála myndirnar alveg frá því um áramót, en öll und- irbúningsvinna er búin að standa yfir lengi,“ útskýrði hann. „Þetta er samt eitthvað sem ég byrjaði á með því hugarfari að ég væri að mála tvö verk. Þannig gat ég það, eins og ég væri að gera tvær stórar mynd- ir, og ekki hundrað. Annars hefði þetta verið algjörlega óyfirstígan- legt,“ sagði Eggert og hló við. Minnstu myndirnar á sýningunni eru tólf sinnum tólf sentímetrar, en þær stærstu eru metri sinnum metri. Eggert kvaðst aðspurður ekki vera orðinn moldríkur yfir nótt. „Ég veit varla hvað þetta er ennþá, ég er ekki farinn að reikna það saman. En ég hef nú frekar verið að halda verðinu niðri en hitt,“ sagði listmálarinn. Hann sagðist telja að minnstu myndirnar hefðu farið á um 100 þúsund krónur, en vísaði að öðru leyti á Gallerí i8. Börkur Arn- arson vildi ekki tjá sig um tekjur vegna sýningarinnar. Sýningin í Gallerí i8 stendur til 27. október. Undir lok hennar verð- ur gefið út bókverk, með myndum af sýningunni í raunstærð. „Þeir sem ekki náðu í verk fá því kannski einhverja sárabót í bókinni,“ sagði Eggert kíminn.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.