Fréttablaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 14
greinar@frettabladid.is Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Síðan Frakkar kusu Sarkozy í embætti forseta hafa þeir ekki haft neinn frið til að gleyma því og hugsa um annað, því Sarkozy er alls staðar og alltaf, hann er sýknt og heilagt í öllum fjölmiðlum, hvert sem höfði er snúið. Þegar hann fór í sumarfrí til eyjar við Atlantshafsströnd Bandaríkjanna nokkrum vikum eftir að kosningar vorsins voru afstaðnar, vonuðust menn líka til að fá eitthvert frí frá honum, en það fór á aðra leið. Ekki kom dagur án þess að fjölmiðlar greindu frá því að hann hefði skrifað bréf, látið frá sér fara yfirlýsingu, lent í handalögmál- um við papparassa eða snætt hádegisverð með Bandaríkjafor- seta. Svo andaðist erkibiskupinn fyrrverandi af París, þá sögðu fjölmiðlar frá því að Sarkozy hefði skrifað samúðarbréf, síðan að hann hefði tilkynnt að hann myndi koma sjálfur í jarðarför- ina, tekið flugvél til Parísar, setið við messu í Vorrarfrúarkirkju og flogið aftur til Bandaríkjanna. þannig leið vika eftir viku. Einu sinni var það í fréttunum, að þann dag hefði Sarkozy ekki gert nokkurn skapaðan hlut og var frá því skýrt ítarlega og í löngu máli; talið var upp allt sem hann hefði ekki gert, og var það löng þula. Að lokum kom Sarkozy aftur til Frakklands, „eins og hvirfil- bylur“ sögðu blöð, og lýsti því yfir að fríinu væri lokið (hvaða fríi? spurðu menn), nú skyldu hendur látnar standa fram úr ermum. Þá varð sviplegt slys við strendur Bretaníuskaga, flutningaskip sigldi á fiskiskip og stímdi beint áfram. Skipstjór- inn drukknaði en menn voru reiðir og sögðu að hægt hefði verið að bjarga honum ef flutningaskipið hefði ekki flýtt sér af slysstað. Skömmu síðar var þetta skip kyrrsett í franskri höfn, en áhöld voru um hvort hægt yrði að draga skipstjórann fyrir rétt í Frakklandi, þar sem hann sigldi undir fána Bahama- eyja eða einhvers álíka sjóveldis. En hvað um það, allt í einu var Sarkozy mættur við útför skipstjórans sem drukknaði, hann tók í höndina á ekkjunni og gaf yfirlýsingu. Svo var haldinn ríkisstjórnar- fundur og ráðherrum sagt að taka til óspilltra málanna. En í hvert sinn sem sagt var frá ákvörðun eða einhver sérstök stefna boðuð var Sarkozy mættur í fjölmiðlum með boðskapinn. Ef fyrir kom að viðeigandi ráðherra var á undan, fékk hann umsvifalaust snuprur hjá Sarkozy; stundum varð ráðherrann að draga í land og éta allt ofan í sig aftur. Forsætisráð- herrann var hreinlega sniðgeng- inn, enda lét Sarkozy þau orð falla að hann ætti ekki að gera annað en það sem honum væri sagt. Sagt var að hann væri farinn að velta því fyrir sér hvort embætti hans hefði verið lagt niður, en gleymst hefði að segja honum frá því. A.m.k. var svo að sjá að næstæðsti maður ríkisins væri ekki lengur forsætisráðherra heldur aðalrit- ari forsetaembættisins, sem einnig var senditík forsetans og sagði ráðherrum fyrir verkum. Hann var eins og Daníel dyra- vörður í dómsmálaráðuneytinu í Reykjavík forðum daga, og því hefðu ráðherrarnir frönsku getað raulað eins og þá var gert:„Hver veit nær sorgar hefjast él/hver veit nær söðlar Daníel.“ Sífellt bættist við þau afrek Sarkozys sem voru aðalfréttin á forsíðu: þegar allt var enn komið í hnút með stjórnarskrárnefnu Evrópu flaug hann til Berlínar og bjargaði málinu, hann kom því til leiðar að Líbýumenn slepptu hinum langþjáðu búlgörsku hjúkrunarkonum og sendi konu sína til Trípólí til að sækja þær, hann sagði Angelu Merkel fyrir verkum... Sarkozy er alnálægur, hann er uppi og niðri og þar í miðju. Undan öllum þessum ósköpum er franskur almenningur að kikna. Og nú fyrir skömmu bárust þau tíðindi að sett hefðu verið á fót samtök sem ætluðu að berjast fyrir því að landsmenn fengju „einn dag án Sarkozys“. Stefnt var að því að fyrir valinu yrði 30. nóvember, en þá er ár liðið síðan Sarkozy lýsti yfir framboði sínu. Þann dag skyldi hann sem sé ekki nefndur í neinum fjölmiðli, hvorki til ills né góðs, ekki skyldi fara frá fréttastofum ein einasta mynd, né heldur orð eða lína um gjörningar hans. Menn fengju að hvíla sig í algerri kyrrð. Ólíklegt er að þetta nái fram að ganga. En ef svo skyldi verða, er líklegt að forsetinn fari fram á eitthvað í sárabætur, og þá er kannske huggun fyrir hann að næsta ár er einum degi fleira, þá er hlaupár. Dagur án Sarkó Fréttablaðið segir í gær að austur-rískur starfsmaður í bakaríi hafi orðið fyrir því að fólk gengur út af því þar er ekki töluð íslenska. Henni finnst þetta niðurlægjandi. Í leiðara blaðsins segir að umheimur- inn sé kominn til Íslands, og við því megi ekki bregðast með svona geð- vonsku og leiðindum. Alveg rétt hjá Einari Skúlasyni í Alþjóðahúsinu að við sem kaupum brauðið eigum miklu frekar að vera vinsamleg og hjálpa starfsmanninum að læra nokkur orð. Kannski ætti eigandi Sandholtsbakarís líka að hjálpa afgreiðslufólkinu sínu með íslensk- una? Ég held samt að til lengdar dugi ekki að yppta öxlum einsog ritstjórinn gerir, og raunar ýmsir fleiri: Nú eru upprunnir enskutímar, og þeir sem ekki una því eru bara fýlupúkar og eftirlegu- kindur. Enskutímar eru uppi víða um heiminn, einkum á okkar slóðum. Samt finnst mér ólíklegt að Austurríkismenn tækju því vel að þurfa að kaupa sér vínarbrauð á útlensku. Eða sjáiði fyrir ykkur Parísarbúa í bakaríi að þýða tarte aux fraises eða millefeuille á ensku? Útlendingar eru við störf um gervalla Evrópu, þar á meðal afgreiðslustörf. Alstaðar er þó gert ráð fyrir því að í almennum samskiptum – úti í búð eða inni í banka – sé töluð heimatunga við heimamenn. Erlent fólk við afgreiðslu kann í heimamálinu það sem til þarf. Raunar má leiða að því ágæt rök að það sé réttur borgaranna að vera þjónustaðir á því opinbera máli sem gildir á hverjum stað. Af hverju er Ísland hér undan- tekning? Vegna þess að við erum öll svo tvítyngd? Eða af því íslenska er svo útbreidd og fjölmenn að um hana þarf ekkert að hugsa? Við skulum sannarlega fara út í bakarí með bros á vör. En við eigum líka – bæði síbúar og ekki síður nýbúar sem margir leggja hart að sér við að læra málið – að ætlast til að geta talað íslensku á Íslandi. Það á ekki að niðurlægja einn né neinn. Höfundur er áhugamaður um brauð og bakkelsi. Að kaupa snúð á ensku V inna barna þótti til skamms tíma sjálfsögð í íslensku samfélagi. Langt fram eftir síðustu öld var alsiða að þau ynnu erfiðisvinnu, jafnvel þannig að af hlaust heilsutjón. Síðastliðinn áratug hefur í vaxandi mæli verið sett spurningarmerki við vinnu barna. Æ fleiri ákvæði í lögum, reglugerðum og samþykktum eru einnig sett til að draga úr vinnu barna og verja þau gegn því að vinna störf sem þau hafa ekki þroska til að sinna. Svo virðist þó sem ríkjandi atvinnuástand, með gríðarlegri eftirspurn eftir starfsfólki, hafi leitt til bakslags í þessari þróun. Í frétt blaðsins í dag kemur fram að í Ikea starfa börn allt niður í fjórtán ára aldur og hafa, í undantekningartilvikum þó, verið látin afgreiða á kassa þó að það sé beinlínis bannað þegar um svo ung börn er að ræða. Hins vegar er ekki bannað að börn beri ábyrgð á sér yngri börnum og því hafa börnin í Ikea verið höfð í barnapössun. Það sama er uppi á teningnum í Bónus á Egilsstöðum, þar sem yngstu börnin við afgreiðslukassana eru fjórtán ára, og væntanlega einnig í öðrum verslunum víða um land. Þetta er afleiðing þess að ákaflega víða vantar fólk til starfa, líka í störf sem til skamms tíma hefur verið veruleg eftirspurn eftir. Manneklan er þó alltaf mest þar sem lægst eru launin. Varla líður dagur án frétta af manneklu í umönnunarstörfum og við neytendum blasir vandinn í verslunum og á kaffihús- um, svo dæmi séu tekin. Algengt er orðið að þar megi lesa orðsendingar þar sem beðið er afsökunar á skertri þjónustu vegna manneklu. Því er það svo að sækist börn eftir vinnu og foreldrar þeirra veita samþykki sitt er eftirleikurinn auðveldur. Forráðamenn barna verða þó að staldra við áður en látið er undan þrýstingi. Börn eiga að fá að vera börn. Þau verða að geta stundað skólann sinn og hafa lausan tíma til að leika sér og iðka tómstundir. Réttur barna til að halda í barnæsku sína er meðal annars varinn í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem Íslendingar eru aðilar að. Vinna barna kemur iðulega niður á námi þeirra. Um þetta vitnar skólafólk. Börn sem vinna með skóla sinna heimanámi sínu verr og eru þreyttari í skólanum en hin sem ekki stunda vinnu. Einnig verður að hafa í huga að leggja ekki vinnu á börn sem þau hafa ekki þroska til að sinna, hvort heldur andlegan eða líkamlegan. Foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum allt til átján ára aldurs. Þeir verða að axla þá ábyrgð og meta hvort hollt sé fyrir barn þeirra að stunda vinnu, hvort nám þess beri af því skaða og hvort frítími og tómstundaiðkun skerðist um of. Þrýstingurinn getur verið mikill en ábyrgt foreldri kann að segja nei. Atvinnuþátttaka barna eykst á ný

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.