Fréttablaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 40
Langmest sótta myndin á Íslandi í dag Allir eiga sín leyndarmál. Óvæntasti sálfræðitryllir ársins. Mynd í anda Clueless og Mean Girls. Skemmtilegustu vinkonur í heimi eru mættar. www.SAMbio.is 575 8900 ÁLFABAKKA AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSSI KRINGLUNNI CUCK AND LARRY kl. 8 - 10:10 L BRATZ THE MOVIE kl. 8 L DISTURBIA kl. 10:10 12 CHUCK AND LARRY kl. 5:30 - 8 - 10:30 12 CHUCK AND LARRY kl. 8 - 10:30 MR. BROOKS kl. 5:30 - 8 - 10:30 16 BRATZ kl. 5:30 - 8 - 10:30 L DISTURBIA kl. 8 - 10:30 14 ASTRÓPÍÁ kl. 6 - 8 - 10:10 L ASTRÓPÍÁ kl. 6 RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 5:30 L VIP VIP MR. BROOKS kl. 8 - 10:30 16 BRATZ kl. 5:30 L LICENSE TO WED kl. 6 - 8 7 ASTRÓPÍÁ kl. 6 L BOURNE ULTIMATUM kl. 8 - 10 14 TRANSFORMERS kl. 10:30 10DIGITAL BRATZ - THE MOVIE kl. 6 L SHOOT ´EM UP kl. 8 -10 16 ASTRÓPÍÁ kl. 6 L MR. BROOKS kl. 8 16 VACANCY kl. 10 16 KNOCKED UP kl. 8 - 10:30 12 VEÐRAMÓT kl. 8 - 10:20 14 síðustu sýningar SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919 SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000 16 16 14 14 12 14 14 CHUCK AND LARRY kl. 6 - 8 - 10.10 HÁKARLABEITA 600 KR. kl. 6 HAIRSPRAY kl. 8 KNOCKED UP kl. 10.10 12 14 16 16 14 CHUCK AND LARRY kl. 5.40 - 8 - 10.20 HAIRSPRAY kl. 5.30 - 8 - 10.30 VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8 - 10.20 ASTRÓPÍA kl. 6 BOURNE ULTIMATUM kl. 8 - 10.30 !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SHOOT´EM UP kl.6 - 8 - 10 HÁKARLABEITA 600 KR. kl.6 VACANCY kl. 8 - 10 VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8 - 10.20 RUSH HOUR 3 kl. 8 - 10.20 SHOOT´EM UP kl. 6 - 8 - 10 SHOOT´EM UP LÚXUS kl. 4 - 6 - 8 - 10 HÁKARLABEITA 600 KR. kl. 4 - 6 HAIRSPRAY kl. 5.30 - 8 - 10.30 VACANCY kl. 8 - 10 VEÐRAMÓT kl. 5.40 KNOCKED UP kl. 8 - 10.40 BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 4 THE SIMPSONS MOVIE ÍSL. TAL kl. 3.45 -A.F.B. Blaðið - L.I.B., Topp5.is STÓRSKEMMTILEGT ÆVINTÝRI Í UNDIRDJÚPUNUM! - bara lúxus Sími: 553 2075 CHUCK & LARRY kl. 5.45, 8 og 10.20 12 HÁKARLABEITA ÍSL TAL kl. 6 600 kr. L HAIRSPRAY kl. 5.45, 8 og 10.20 L KNOCKED UP kl. 10.20 14 LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR www.laugarasbio.is - Miðasala á Go Go Smear The Poison Ivy er fjórða plata múm og sú fyrsta síðan Summer Make Good kom út fyrir þemur árum. Mannaskipan sveitar- innar hefur breyst mikið á þessum þremur árum. Kristín Anna Valtýs- dóttir er hætt, en þeir Gunnar Örn Tynes og Örvar Þóreyjarson Smára- son eru enn lykilmenn. Auk þeirra koma við sögu á plötunni þau Eiríkur Orri Ólafsson, Samuli Kos- minen, Hildur Guðnadóttir, Mr. Silla og Ólöf Arnalds, en þær þrjár síðasttöldu syngja á plötunni. Hvort sem það er breyttri manna- skipan eða einhverju öðru að þakka þá hefur tónlist múm breyst mikið frá síðustu plötu. Hljómsveitin var upphaflega þekkt fyrir frekar lág- stemmda og krúttlega raftónlist, en hún hafði þróast töluvert frá fyrstu plötunni til þeirrar þriðju. Á nýju plötunni er raftónlistin á undan- haldi og tónlistinni mætti lýsa sem mjög margslunginni og metnaðar- fullri blöndu af indí-rokki og þjóð- lagatónlist með áhrifum víða að, t.d. frá balkanskri tónlist og evrópskri kvikmyndatónlist. Hljóðfæraskipanin er mjög fjöl- breytt. Blásturshljóðfæri eru skemmtilega notuð, harmonikkan er áberandi í nokkrum laganna og strengir í öðrum og í staðinn fyrir krúttlega hvíslsönginn hjá tvíbura- systrunum er kominn fjölbreyttari söngur og raddútsetningar. Go Go Smear The Poison Ivy er villt og lifandi plata. Eins og ill- gresið sem hún er tileinkuð fer tón- listin óhindruð út um víðan völl og kemur sífellt á óvart. Maður hefur á tilfinningunni að hún hafi verið að gerjast og mótast fram á síðustu stundu. Oft blandast hefðbundnu hljóðfærin skemmtilega saman við raftólin. Ágætt dæmi um það er lagið A Little Bit Sometimes sem byrjar lágstemmt á harmonikku og píanói, en stigmagnast og endar á bjöguðum rafbassa. Go Go Smear The Poison Ivy er ein af þessum plötum sem vaxa við ítrekaða spilun. Hún er nógu marg- slungin til þess að maður uppgötv- ar eitthvað nýtt við hverja hlustun. Lögin eru misgóð, en að er nógu mikið að gerast á þessum rúmlega 40 mínútum til þess að heildar- myndin verði nokkuð sterk. Margslungin og metnaðarfull Hljómsveitin Sprengjuhöllin held- ur tvenna útgáfutónleika í næsta mánuði til að fagna útkomu sinnar fyrstu plötu, Tímarnir okkar. Upp- tökustjóri var Valgeir Sigurðsson sem hefur unnið mikið með Björk á undanförnum árum. Af plötunni hafa þegar heyrst þrjú lög og hafa tvö þeirra, Verum í sambandi og Glúmur náð efsta sætum vinsældalista. Síðustu mánuðir hafa verið farsælir fyrir Sprengjuhöllina því sveitin hefur fengið mikla útvarpsspilun, farið í hringferð um landið, spilað á Arn- arhóli 17. júní, á tónleikum Rásar 2 á menningarnótt og á Þjóðhátíð- inni í Eyjum. Á útgáfutónleikunum verður hægt að kaupa nýju plötuna og Sprengjuhallarboli á sérstöku kynningarverði. Fyrri tónleikarn- ir, sem verða í Austurbæ 12. okt- óber, hefjast klukkan 21.00 og hefst miðasala á hádegi í dag. Síð- ari tónleikarnir, sem verða í Ketil- húsinu á Akureyri kvöldið eftir, hefjast klukkan 22.00. Verða miðar á þá tónleika eingöngu seldir við innganginn. Nýrri plötu fagnað Bretinn Newton Faulkner hefur slegið í gegn með sinni fyrstu plötu, Hand Built By Robots. Platan sigldi á topp breska breið- skífulistans í ágúst, auk þess sem smáskífulagið Dream Catch Me hefur slegið í gegn. Næsta smáskífulag plötunnar, hið hugljúfa All I Got sem kemur út í næsta mánuði, þykir jafnframt lík- legt til að festa Faulkner í sessi sem einn efnilegasta tónlistar- mann Breta. Faulkner fæddist 11. janúar 1985 í Surrey á Englandi og er því aðeins rétt rúmlega tvítugur. Fimmtán ára byrjaði hann að spila á gítar og fyrsta hljómsveit hans var Green Day-eftirhermusveit, þar sem hann spilaði á bassa. Nokkru síðar stofnaði hann fönk-rokksveitina Half a Guy sem starfaði í tvö ár þar til hún lagði upp laupana. Eftir það ákvað Faulkner að treysta á sjálfan sig sem trúbador undir nafninu Newton Battenberg Faulkner. Á meðan jafnaldrar hans hlust- uðu á The Strokes og The White Stripes hlustaði Faulkner á gítar- leikarana Gordon Giltrap og Django Reinhardt og hljómsveit- ina Presidents of the United States of America. Á sínum yngri árum naut hann jafnframt leiðsagnar írska gítarmeistarans Erics Roche, sem nú er látinn úr krabbameini. Undir þessum áhrifum skapaði hann sér fljótlega nafn sem fram- bærilegur tónlistarmaður með eyra fyrir góðum melódíum. Útlit Faulkners þykir nokkuð sér- stakt, enda er hann rauðhærður með dredda í hárinu og skeggjaður. „Ég las um fordóma fólks í garð rauðhærðra um daginn,“ sagði Faulkner. „Það er víst mjög mikil umræða um þetta á meðal rauð- hærðra. Maður heyrir um að þeir líki ummælum fólks um háralit sinn við kynþáttafordóma, en ég hef ekki upplifað slíkt.“ Svo virðist samt sem útgáfu- fyrirtæki hans Sony BGM vilji gera sem minnst úr útliti hans því engin mynd af honum prýðir umslag nýju plötunnar. Málunum er þveröfugt farið með kollega hans Paolo Nutini, James Blunt og James Morrison, sem Faulkner hefur stundum verið líkt við. Nett andlit þeirra fá að njóta sín vel á þeirra plötum, enda talið að þeir geti grætt meira á útlitinu en hinn „skringilegi“ Faulkner. Hvað sem útlitinu líður er ljóst að Faulkner er orðinn afar vinsæll í Bretlandi og kannski hefur þessi sérstaða hans orðið til þess að hann hefur fengið meiri umfjöllun en ella. Undanfarna mánuði hefur Faulkner hitað upp fyrir James Morrison, Paolo Nutini og John Mayer auk þess sem hann söng við góðar undirtektir á Glastonbury- hátíðinni. Fram undan hjá kappan- um er síðan fjöldi tónleika og er hann í raun bókaður út allt árið, bæði í Bretlandi og í mörgum löndum Evrópu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.