Fréttablaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 34
Ég þreytist ekki á að dásama feg- urðina í því hvað fólk getur verið ólíkt. Ég veit ekki hvaða árátta það er sem gerir það að verkum að maður er statt og stöðugt gramsandi í ímynduðum föndurkassa í leit að viðeigandi merkimiða fyrir nýja meðlimi í persónugalleríi hversdagsins. Eins og ég hef marglofað sjálfri mér að hætta því að skipa fólki á bása í höfðinu á mér stend ég mig samt iðulega að því að reyna að troða beljum á kálfabása og gefa nautum mjólkurbland. Svona til að misnota myndmálið algjörlega. Alveg frá því að vinkona mín í menntaskóla kom út úr skápnum sem mikill aðdáandi Backstreet Boys, sem í mínum vinahópi þótti hámark ósmekklegheitanna, hef ég dáðst að fólki sem þorir að bara vera, þó að öðrum finnist algert ósamræmi í skoðunum eða lífshátt- um þeirra. Af því að mér þykir þetta svo agalega heillandi, hvað fólk á sér margar hliðar, á ég erfitt með að skilja af hverju það skiptir suma svo ótrúlega miklu máli að falla inn í hópinn. Oftar en ekki er talað um ungl- inga í þessu samhengi, og vissulega getur hópeðlið í þeim aldursflokki verið afar sterkt. En það nær samt sem áður svo miklu, miklu lengra: þetta er uppspretta fótanuddtækja- æða og jeppafaraldra og flat- skjáafarsótta, eins og aðrir hafa bent á á undan mér. Það sem mér þykir verra er þegar það fólk sem ekki fellur í hópinn, sama hvort um er að ræða meðvitaða viðleitni til að skera sig úr eða ekki, er rakkað niður af áfergju. Við getum verið svo ofboðslega fljót að dæma. Munum bara að jeppakarlinn dreymir kannski um að hljóta frægð og frama í samkvæmisdöns- um, og uppreisnarsinnaða, bíllausa konan gæfi kannski annan lopa- peysuklæddan handlegginn fyrir að fá að hitta Backstreet Boys. Það eru margar hliðar á hverju máli, og enn fleiri á hverri manneskju. Au ka bú na ðu r á m yn d: Ál fe lg ur og þo ku ljó s 1.729.000 XR PEUGEOT Umboðsaðilar:

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.